29. ágú. 2002

Greyið hann Sjonni...
...reynir á aumkunarverðan hátt að svara fyrir þögn sína. Hann gerir sér hins vegar ekki grein fyrir því að nákvæmlega sama röksemdafærsla á við um mína bloggun í sumar þannig að viðurnefnið á mig fellur um sjálft sig. Þá hugsar Sjonni með sér að hann hafi verið þögull miklu skemur. Á þessu tvennu er hins vegar miklu frekar stigsmunur en eðlismunur. Skv. því væri ég t.d. AUMINGJABLOGGARI á meðan Sjonni er bara aumingjabloggari. Síðan reynir hann að réttlæta þetta með því að hann hafi tilkynnt um fjarveru sína. Er þá maður sem segist ætla að fremja morð og gerir það síðan, ekki jafnsekur og sá sem gerir það í hita augnabliksins? Málið er auðvitað það að hann er miklu sekari. Hann ígrundaði brot sitt alvarlega og ætti því að þola þunga refsingu. Svör þín eru aumkunarverð Sigurjón og sæma ekki svo greindum manni. Reyndu nú að færa almennileg rök fyrir máli þínu eða settu skottið á milli lappana og ýlfraðu þig í svefn.

Dizzzzzz dagsinz í boði Geizlans
Dizz dagsins fellur á vesalings konuna sem kom fram í Kastljósinu í gær og kvartaði undan heilbrigðiskerfinu. Hún sagði raunarsögu sína og eiginmanns síns og var hún mjög átakanleg enda hefur þetta fólk verið utangátta í heilbrigðiskerfinu eins og flest fólk sem komið er af léttasta skeiði. Það sem var sorglegast var það að konan virtist engan vegin gera sér grein fyrir að það voru 130 kg sem héngu utan á henni sem orsökuðu heilsubrest hennar miklu frekar en umhirðan um manninn. Hann er sem sé með þann hræðilega sjúkdóm Alzheimer's og þarf mikla umhirðu. Af vorkunn við konunni ætla ég að láta hér staðar numið en tilgangurinn með skrifunum er sá að benda á þá hræðilegu staðreynd að fólk virðist lifa í afneitun um óheilbrigt líferni sitt og kennir alltaf kerfinu um hvernig er komið um fyrir því. Ekki verða svona fólk.

Boltinn
Mínir menn auðvitað að brillera á þriðjudagskvöldið. Ruud og Skærið komnir í gang og Beckurinn ætlar að byrja tímabilið vel líka. Svo er það auðvitað þessi O'Shea sem er snillingur. Annars lítið að frétta úr boltanum annað en Ingvar Jón var eitthvað að blaðra um að Eiður væri á leiðinni til MUFC fyrir 7M punda. Ekki mikill peningur fyrir Eið og þá hefði maður svo sannarlega afsökun til að kaupa sér treyjuna. Annars held ég reyndar að hann mundi bara daga uppi þarna. Ruud og Skerið halda honum utan við liðið og ég held hann meiki ekki að vera ekki í sviðsljósinu.

Búdapest
Keypti mér ferðahandbók um Búdapest í gær og gluggaði aðeins í hana. Líst vel á þetta allt saman. Búdapest er greinilega falleg borg og ég á eftir að hafa nóg að gera í að skoða mig um. Reyni að blogga eitthvað á meðan ég er úti - það hlýtur að vera internetkaffi í Búdapest. Læt þetta duga í bili.

Engin ummæli: