8. okt. 2002

Langt síðan síðast!!
Hef ekki bloggað síðan í gamla daga. Einföld ástæða. Tölvuskortur er meginástæðan en óheppni og aumingjaskapur koma þarna við sögu einnig. Bið dygga lesendur afsökunar!!

Viðar...
...viðurkennir fyrir allra augum að hann beitir IH heimilisofbeldi. Þetta kemur fyrst og fremst fram á andlegu ofbeldi sem lýsir sér í því að hann neyðir hana til að horfa með sér á óperur læf. Ekki nóg með þetta heldur dregur hann hana með sér í einhvern grúppíuleiðangur til að láta feita óperusöngvara skrifa nafnið sitt á blað. Líkamlega ofbeldið er síðan bein afleiðing af hinu andlega ofbeldi en það lýsir sér fyrst og fremst í blöðrum á fótum Ingu Huldar. Leitaðu þér meðferðar Viðar, nú hefur þú farið yfir strikið. "You're entering the world of pain, my friend"

Kvikmyndir
Horfði á stórvirkið "The Big Lebowski" aftur um helgina eins og ráða má af síðustu setningunni hér að ofan. Þessi mynd er náttúrlega bara snilld. "But that's just like...my opinion man."

Boltinn
Mínir menn að gera góða hluti í gær. Var orðinn mjög svekktur á heppni Everton manna þegar rauðkollurinn ógurlegi skoraði í gær. Síðan var auðvitað bara eftir að flaka liðið þegar búið var að landa því. Seinna markið hjá Scholes verður sennilega eitt af glæsilegri mörkum vetrarins. Svona neglur á náttúrlega bara að banna. Greyið Wright átti aldrei möguleika í boltann en hann er líka alinn upp í Arsenal í seinni tíð og getur því aldrei orðið neitt annað en aumingi.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

Engin ummæli: