29. okt. 2002

Þetta var skrifað kl. 19:00 þann 29.10.'02
Skoðanakönnun Samfylkingarinnar og grey dagsins
Sá Stefán Jón Hafstein gera hið ómögulega á sunnudagskvöldið í Kastljósinu. Honum tókst að lækka enn frekar í áliti hjá mér. Hann taldi rétt að skoða inngöngu í Evrópusambandið nákvæmlega en vildi ekki taka afdráttarlausa afstöðu til umsóknar um inngöngu. Hvernig er hægt að vera svo ömurlegur stjórnmálamaður að þú þarft leyfi kjósenda þinna til að íhuga eitthvað. Heldur maðurinn að það hafi enginn íhugað aðild að Evrópusambandinu? Ætli hann trúi því ekki að það sé allt Samfylkingunni að þakka að landsmenn heyrðu yfirleitt af því að það er til eitthvað sem heitir Evrópusamband. Auðvitað eru allir flokkar löngu búnir að skoða hvort þeim finnst inngangan raunhæfur möguleiki (nema kannski Samfylkingin) og taka afstöðu á þeim grundvelli. Það ömurlega var samt að sjá þennan mann uppstrílaðan í nýjum jakkafötum. Maður sem hefur skapað sér ímynd í gegnum árin, með því að klæðast eins og hann sé á leið á réttaball í skítugu fjárhúsi, hlýtur bara að líta kjánalega út í nýtísku jakkafötum. Stefán fær því viðurnefnið grey dagsins.

Súrt grín úr smiðju Geislans
Hafið þið heyrt um konuna sem var svo feit að á nóttunni bjuggu leðurblökur í leggöngunum á henni.
Þetta ætla ég að reyna að hafa fastan lið í blogginu mínu. Þeir sem þekkja mig vita að djókið verður ekki mikið súrara en það sem kemur frá mér.

Háskóladeildin
Við læknanemar mætum í kvöld hrokatittunum úr lögfræðinni í Háskóladeildinni. Þetta verður klárað eins og twix-súkkúlaði í frímínútum. Spái stórsigri læknadeildar.
Helgi Áss er reyndar venjulega í markinu hjá þeim en það er bein útsending frá skólaskákmóti Vogaskóla í sjónvarpinu í kvöld svo ég held að hann mæti ekki. Spennandi mót!!!!! Ég hef nú verið lunkinn við að setja hann hjá þeim í gegnum tíðina og við vonum auðvitað að það verði ekki breyting á.

MUFC
Mínir menn mæta Maccabi Haifa á Kýpur og ætla greinilega að gera riðilinn spennandi með því að nota varaliðið og tapa leiknum. Fylgist með þessu af fæðingarvakt sem stendur til kl. 21. Síðan fer maður beint í leikinn við Orator.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

Engin ummæli: