Tölvuleysi og leti!!
Hef ekkert getað bloggað um helgina vegna netleysis og leti. Er ekki tengdur alheiminum heima.
Réttir
Fór í hinar árlegu og mikilvægu Skaftholtsréttir á föstudag í kjölfarið á mínum eigin kjöldrætti í Kollgátunni á Háskóladaginn. Við höfðum stefnt á að keppninn yrði búinn eftir hraðann þar sem við vorum fremur tímabundnir. Ætluðum síðan bara að láta okkur hverfa og leyfa Orator að glíma við bjölluspurningar og vísbendingar. Ég vildi að ég gæti kennt því um að við hefðum tapað vegna þess að það glumdi svo í salnum þegar Logi las hraðann (sem það og gerði). Málið er bara það að munurinn á liðunum var bara alveg rosalega mikill. Þau tóku okkur í ... eh ... eh ... eh... bakaríið. Síðan kom auðvitað hápunktur dagsins - réttirnar. Var kominn austur um 14:30 og tók strax til við drykkju hina mestu. Var farinn að finna svolítið á mér við upphaf heimferðar. Þarna er féð s.s. rekið heim á hestum og auðvitað fylgir pelinn með. Við sulluðum því talsvert á heimleið og vorum orðnir rakir að innan við heimkomu. Þess ber að geta að veður var með besta móti í manna minnum, um 20 stiga hiti og sól. Síðan var mjólkað eins og venjulega og loks étin kjötsúpa sem verður betri með hverju árinu hjá þeim stöllum frá Steinsholti. Ekki svo að skilja að það sé sama súpan ár eftir ár, það er alltaf gerð ný. Síðan var auðvitað tekið réttaball með tilheyrandi drykkju og skemmtun. Papar héldu uppi stuðinu með smá hjálp frá Árna útlæga. Ballið fær 3 stjörnur (frádráttur fyrir rólega byrjun og viðveru flestra vistmanna barnaheimilis Gnúpverja). Síðan var maður kominn í háttinn kl. 4 um nóttina og vaknaði kl. tæplega 11 um morguninn. Þá var þrumað í bæinn því til stóð að fara í brúðkaup hjá Elínu og Kidda seinna um daginn. Ég get nú ekki sagt að heilsan hafi verið góð en hún skánaði og var orðin fín um 3-leytið en þá voru enn 2t til stefnu því athöfnin átti að hefjast kl. 17.
Brúðkaupið...
...var vægast sagt snilld. Athöfnin skemmtileg og veislan enn betri enda hélt Tríó Briggs uppi stuðinu. Maturinn var snilld, vínið flæddi þannig að það stóðu yfir manni ca. 40 þjónar (eftir 5 glös virtust þeir vera það) með flöskur og maður mátti varla gjóta augum að glasi án þess að e-r bætti í það. Þetta og ótakmarkað framboð á bjór eftir matinn leiddi til almennrar ölvunar. Síðan þegar við loksins fórum úr veislunni milli 2 og 3, var haldið á skemmtistaðinn NASA sem ég hef aldrei barið augum áður. Þar var mjög gaman en sakir þreytu tókst mér í fyrsta skipti á ævinni að sofna dansandi. Það var því ákveðið að drífa mig heim í svefninn þar sem til stóð að rífa mig á lappir um morguninn til að kveðja Nonna bróður í hádegisverðarboði. Það var og gert og var ég alveg ógeðslega þunnur fram eftir degi. Losnaði ekki við þynnkuna fyrr en eftir dýrindis kjúlla og ís hjá tengdó. Síðan var auðvitað tekinn bolti til að reka þynnkuna enn frekar á brott. Þar með eru málefni helgarinnar útrædd.
Boltinn
Ég hef bara eitt að segja um ensku eins og stendur. Mínir menn eru aumingjar. Hérna heima gerðist hins vegar sá yndislegi atburður að Fylkismönnum mistókst að verða Íslandsmeistarar og verða nú að vinna Skagamenn á Skaganum á meðan KR-ingar þurfa að taka á móti Þórsurum. Hef lengi velt því fyrir mér hvort sé verra, KR eða Fylkir. Niðurstaða: Fylkir því Þór og Golli halda með þeim.
Andlát
Bloggið hans Sjonna er dáið. Blóm, kransar og endurlífgun vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast þess er bent á bloggið hans Chewie sem uppfært næstum eins sjaldan!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli