10. okt. 2002

Hnignun blogga!
Mér finnst margir bloggarar vera farnir að byggja blogg sitt fyrst og fremst á því sem þeir finna á bloggum annarra. Þessa gryfju hefur til dæmis góðkunningi minn Sverrir fallið í síðustu vikurnar og hefur því miður ekki komið mikið af hans annars smellnu hugarórum á netið. Kannski er Sverrir kominn með sviðsskrekk eftir að margir félagar hans hafa verið kallaðir á aldir ljósvakana til að ræða um þessi mál. Sá umræðuna í Kastljósinu í gær og fannst hún með eindæmum leiðinleg. Það eina sem hélt mér við efnið voru skemmtileg komment Stefáns inn á milli hávísindalegra sálgreininga konunnar sem þarna var. Mér finnst sumt ekki eiga heima í góðum fréttaskýringaþáttum eins og Kastljósinu. Þar vil ég sjá áhugavert fólk sem hefur eitthvað merkilegt að segja um þjóðfélagið. Ekki svo að skilja að Stefán og konan séu ekki áhugverð - þau voru bara að tala um áhugavert efni á óáhugaverðan hátt. Blogg er í mínum huga eitthvað sem ég geri til að skemmta mínum vinum og kunningjum og ætlast ekki til að aðrir séu að hnýsast hér... fariði ef þið þekkið mig ekki...eruð þið ekki farin enn? Drulliði ykkur í burtu!!! #$%&#W#/&$%&$/

Háskóladeildin
Læknanemar hófu titilvörn sína í Háskóladeildinni á fremur bleyðukenndan hátt í gærkvöldi. Aðeins mættu 10 menn til leiks í upphafi og öttu aðrir menn kappi í lélegum afsökunum fyrir mætingarskorti sínum. Sumir eru að fara í stöðupróf í lífefnafræði...í næstu viku. Aðrir þóttust hafa verið í fótbolta fyrr um kvöldið. Enn aðrir þóttust þurfa að vinna. Það fór því sem fór og læknadeild tapaði 0-2 fyrir raunvísindadeild. Þessi úrslit gefa ekki rétta mynd af gangi leiksins því raunvísindamenn áttu lítið annað en skyndisóknir eftir að við náðum 11 manna liði um miðjan fyrri hálfleik. Við náðum þó ekki að snúa mikilli boltavörslu (e. possession) í marktækifæri enda spilaði vörn raunvísindamanna eftir afar vel útfærðri stærðfræðiformúlu sem okkur tókst ekki að finna lækningu við. Einskorðuðust færi okkar að mestu við fyrirgjafir og föst leikatriði en þar sem raunvísindamenn virðast stærri en læknanemar fór sem fór. Mæli samt með því að sumir í liðinu fari í heilaígræðslu. Einn þeirra fór upp í skallaeinvígi við mig og tapaði aumlega. Tók hann þá á það ráð að sparka í kálfann á mér og þegar ég spurði hverju sætti sagði hann með sætan simpansasvip (alls ekki ósvipaður Árna Johnsen svipnum): "þú hoppaðir á mig, hálfvitinn þinn"!! Ég hváði og fór að hlæja en hann gekk í burtu með tárin í augunum. Annars var leikurinn prúðmannlega leikinn og lítið um ljótar tæklingar. Dómari leiksins virtist ekki vera með reglurnar á hreinu en það kom ekki að sök enda menn prúðir eins og áður sagði. Vona að það verði góður dómari þegar við spilum á móti Orator. Lögfræðingar verða alveg snarvitlausir ef ekki er dómari á staðnum. Þá á ég bæði við dómsalinn og fótboltavöllinn. Skemmst er að minnast þess þegar ónefndur lögfræðinemi kallaði mig fávita frá hliðarlínunni eftir að ég fiskaði aukaspyrnuna. Þetta var nú allt í góðu mín vegna en dómarinn misskildi þetta víst eitthvað og hélt að umræddur laganemi væri að tala við sig. Laganeminn fékk því umsvifalaust rautt spjald og var rekinn inn í bíl. Ekki skánaði munnsöfnuðurinn við þetta og hefði sígildur sjóari verið stoltur af honum. Annars var ljúft að leggja Orator í HM2002 um daginn.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

Engin ummæli: