28. júl. 2002

Jæja!


Það er eitthvað lítið að gera hérna á slysadeildinni í nótt. Skríllinn greinilega að hvíla lúin bein fyrir helgi verslunarmanna. Raunar er þetta eitt mesta rangnefni á helgi sem ég hef nokkurn tíma heyrt. Það eru bókstaflega allir í fríi nema verslunarmenn (og reyndar heilbrigðisstarfsfólk). Það ætti að kalla einhverju skárra nafni eins og t.d. unglingahelgin í ljósi þess að hver einasti unglingur sem bokku getur borið lætur veigar renna um kverkar sínar (og raunar allan líkamann að utan sem innan). Annars er ég mjög hlynntur þessari helgi. Gott tækifæri til að detta í það með stæl. Æ Æ er ég kannski bara að vinna um "verslunarmannahelgina"? Það verður síðan tekið á því í fyrrnefndri ferð Ferðafélags PAPA CHUCK og félaga sem verður farinn aðra helgi. Þá verður sko stuð.


Á föstudaginn nk. kemur til landsins víkingur mikill og landkönnuður er Gunnar öfugfætti heitir en hann hefur dvalið við sukk og svínarí á meginlandi Evrópu síðastliðna fimm mánuði eða svo. Er ég auðvitað búinn að sjá til þess að hann fá afar hlýlegar gúmmímóttökur á Keflavíkurflugvelli enda maðurinn með eindæmum grunsamlegur í útliti. En til að útskýra viðurnefnið þá hlýst það ekki einungis af því að Gunnar notar vitlausan fót til að sparka í leðurknetti heldur einnig vegna þess að hann getur bara skorað með réttum fæti. Það er því augljóst að himnafaðirinn er að reyna að koma einhverjum skilaboðum til Gunnars sem í linnulausu ölæði sínu skilur ekki upp né niður og reynir ítrekað að nota öfugan fót. Því hefur hann fengið viðurnefnið Gunnar öfugfætti.


Í gær var Viðar nokkur Pálsson með grillveislu og kíkti ég til hans við litla kátínu viðstaddra enda eru félagar mínir úr Garðahreppi farnir að gleyma mér vegna afburðaslakrar þátttöku í hittelsi hópsins síðustu misseri. Viðar hefur þó, eins og sönnum félaga sæmir, ekki gleymt mér og fær hann eina þökk fyrir boðið og aðra fyrir minnið. Eins og allir sem Viðar þekkja vita þá er heilinn í drengum eins og dótið sem hengt er í fjósloft til að flugur límist á það. Maðurinn man bókstaflega allt sem hann les. För U-HU-heilans er heitið vestur á bóginn en hann hyggst leita að fornum ritum í Kaliforníu, nánar tiltekið í Berkley. Þetta er auðvitað þekkt andófsmiðstöð og gaman verður að sjá hvort Viðari tekst ætlunarverk sitt að verða fyrsti hægrisinnaði sagnfræðingur sögunnar þrátt fyrir að læra þar sem mótmæli við allt og alla eru iðulega skipulögð. Annars er eftirsjá í honum Viðari. Nú muna Garðahreppsmenn sjálfsagt ekki eftir mér framar.


Af mér er allt gott að frétta. Mér hefur tekist að narra Eddu til að kaupa með mér íbúð og erum við að fara að þreifa fyrir okkur á kaupmarkaðnum á næstunni. Það verður greiðslumat og pakkinn í byrjun ágúst og síðan byrjum við að leita. Ég er spenntastur fyrir Vesturbænum og Hlíðunum en Edda vil endilega kaupa einhvers staðar út á landi t.d. Grafarvogi. Ætli við förum ekki milliveginn og kaupum í Fossvogi, Smáíbúðahverfi eða Ártúnsholti. Hlakka annars til vetursins. Ég má að öllum líkindum vinna á slysó eins mikið og ég kæri mig um (72 tíma í mánuði) og verður það kærkomið þegar afborganir af íbúð fara að hrannast upp. Síðan eru auðvitað mjög skemmtilegir kúrsar á 5. árinu, m.a. geð-, tauga-, kvenna-, barna- og augnlæknisfræði. Ég er eins og flestir vita svolítið heitur fyrir barnalæknisfræði enda trúi ég að menn eigi að pína þá sem eru í þeirra þyngdar- og/eða stærðarflokki. Síðan hefur sumarið opnað mér nýja sýn á bæklunarskurðlæknisfræði en eins og allir vita hef ég ekki verið spenntur fyrir skurðgreinum hingað til. Annars er mér sagt að ég hafi ekki réttu eiginleikana í þetta fag, menn verða víst að vera jafnsterkir og górilla en ekki meira en tvöfalt greindari. Því miður uppfylli ég bara annað skilyrðið.


Að lokum ætla ég að fagna tveimur yndislegustu fréttum sumarsins. #1 Rio kominn til MUFC, maðurinn er náttúrlega snillingur og hverrar krónu virði. #2 Það er búið að selja greppitrýnið til Blackburn og ætti vinur minn og nafni Magnús Gísli að vera glaður og kátur þessa daganna enda hefur hatað fátt meira um dagana en Andy Cole og Dwight greyið Yorke. Til hamingju Maggi.


KK Gísli BB


P.S. Blökkumennirnir hjá UNITED verða sífellt hvítari sbr. Rio og Wes

Engin ummæli: