2. sep. 2002

Enginn farangur enn!
Hef ekki enn fengið farangurinn minn en skilst ad hann hafi endað í Rómarborg og sé væntanlegur þaðan um hádegið í dag. Annars hef ég orðið að ganga í strigaskóm allt sem ég fer, m.a. á einn fínasta veitingastað Búdapest í gær. Smakkaði m.a. gæsalifur sem er alveg rosalega góður matur en kannski ekki eins góður og verðið gefur til kynna

Búdapest...
...er alveg rosalega falleg borg en það eru fyrst og fremst framhliðar húsanna sem eru glæsilegar. Það hefur verið einhver misbrestur á viðhaldi og þrifnaði húsanna hér. Skoðaði kastalahverfið á laugardag, gekk líklega á milli 20-30 km og var gjörsamlega búinn á því enda fór ég í háttin kl. 21 að staðartíma sem mundi vera kl. 19 heima. Þessi kastali og hverfið í kringum hann er eitthvert það glæsilegasta mannvirki sem ég hef séð. Þarna er fjöldinn allur af kirkjum og einhvers konar trúartengdum byggingum ásamt fjölda safna og hallarbygginga. Tók e-ð rúmlega 30 myndir bara í þessu hverfi. Síðan er stefnan sett á að skoða Þinghúsið og Borgargarðinn á fimmtudag og föstudag en þá er þingið sem ég er á búið.

Læt þetta gott heita í bili og reyni að láta heyra betur í mér á morgunn.

Engin ummæli: