Jæja!
Þá hef ég lokið veru minni á Akureyri sem var skemmtileg framar vonum. Reynsla flestra bekkjarfélaga minna af heilsugæslu er slæm en okkur Jónasi fannst mjög gaman á Akureyri. Kunnum við læknunum þar bestu þakkir fyrir frábærar móttökur og þá sérstaklega fyrir að reka okkur heim einum degi á undan áætlun.
Skólinn
Byrja í kloflæknakúrsinum á mánudag. Það er því best að forðast kvennadeildina næstu 6 vikurnar stelpur mínar - annars mætið þið kannski kunnuglegu andliti.
Sverrir Gúmm...
...er að storka mér. Ég er sannfærður um það. Alveg síðan ég lýsti vanþóknun minni á linkablogginu svokallaða hefur hann haft a.m.k. einn link í hverri setningu sem hann skrifar. Ef Sverrir væri vel upp alinn mundi hann vita að það er ljótt að storka sér eldri mönnum. Þessi ókurteisi Sverris helgast líklega af því að hann gekk sjálfala nokkur ár í kringum tvítugt og því mætti ætla að mannasiðir hans hafi hlotið talsverðan skaða af. Skammastu þín Sverrir, skrifaðu frekar eitthvað fallegt um stjörnurnar, blómin og landafræðina án linka.
Boltinn
Mínir menn að gera góða hluti í gær. Þessi mörk voru glæsileg og loksins virðist MUFC-maskínan vera að hrökkva í gang. Veron er að skila sínu glæsilega á miðjunni og ég skil bara ekkert í því að menn séu óánægðir með frammistöðu hans. Hann er að skila frábæru varnarhlutverki og síðan koma þessar gullsendingar hans inn á milli. Mínir menn komnir áfram og hafa ekki tapað stigi. Glæsilegur árangur. Það var ekki síður skemmtilegt að sjá Bayern tapa í Mílanó í gær. Þeir eru líklega dottnir úr Meistaradeildinni og það er ekki einu sinni víst að þeir komist í UEFA-keppnina.
Háskóladeildin
Ég held að ég sé óhappa fyrir læknadeild í háskóladeildinni. Við erum búnir að vinna tvo og tapa tveimur og hef aðeins komist í tapleikina - vísbending? Ég held það. Annars var þetta ótrúlega slakt hjá okkur í kvöld, ég átti hundlélegan leik og það sama má segja um félaga mína í læknaliðinu. Við töpuðum 2-0 fyrir sterku liði HR en á góðum degi hefðum við rúllað yfir þetta lið. Næsti leikur er við Viðskiptafræðinga og eftir því sem ég kemst næst útskrifast helmingur liðsins kl. 14 á laugardag og er því ekki gjaldgengur í leikinn sem er kl. 18:00 Það er því nokkuð ljóst að við munum sýna þeim hvar Davíð keypti ölið hér um árið.
Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli