Tvær frábærar greinar
Þrátt fyrir diss mitt í garð linkabloggs í gær ætla ég að benda ykkur á tvær góðar greinar. Sú fyrri er eftir hinn bráðsnjalla og skemmtilega Hjölla Páls sem skrifar eiturbeitta grein gegn misbeitingu atkvæða á Frelsinu í dag. Hjörleifur er eins og bræður hans með munninn fyrir neðan nefið en þó fer enn meira fyrir ótrúlegri ritsnilli sem maður hefur oft séð hjá Viðari bróður hans. Hin greinin birtist á netmiðlinum Soccernet í dag og fjallar um þetta eilífa karp um hver eigi að fylgja Owen í fremstu víglínu. Læt ykkur eftir að lesa greinina - hún segir nákvæmlega það sem mér finnst.
Um kjördæmapólítíkina
Ég er, eins og Hjölli, afar ósáttur við atkvæðisbrotið sem ég fæ að ráðstafa reglulega. Ég get alveg skilið að landsbyggðarfólk sé svekkt yfir því að sitja eftir með sárt ennið í einhverri mannlausri vík fyrir vestan, þegar allir sem vit höfðu eru löngu búnir að forða sér á mölina, þrátt fyrir atkvæðaleysið. Pólítíkusar segja allir að það sé mjög mikilvægt að byggð haldist dreifð á landinu. Menn eiga helst að búa á öllum útkjálkum, þarf minnst einn vinstrisinnaðan vitavörð á hvern skaga, minnst eitt frystihús í hvern fjörð, minnst einn þingmann á pláss. Menn ganga jafnvel svo langt að heimta að ríkisstofnanir séu fluttar í byggðarlagið þeirra til að einhver passi mannlausu húsin þegar allir aðrir eru fluttir þaðan. Síðan eiga deyjandi bæjarfélög að fá styrk frá ríkinu til að byggja upp ferðamannaiðnað. Hvaða útlendingur haldið þið að komi hingað til að skoða gömul frystihús? Það á bara að smala þessum sauðum á fáa staði á landinu: Ísafjörð, Akureyri, Egilstaði, Suðurnesin og síðan Reykjavíkursvæðið (og kannski Selfoss svo við getum haft Skímó-safn þar þegar þeir slá í gegn). Nú veit ég að Hrefna gleypir skeiðina sína. Bottom-lænið er það að það á ekki að styrkja byggð á stöðum þar sem peningurinn skilar sér ekki til baka í ríkiskassann. Það á ekki að byggja jarðgöng svo fólk á Ólafsfirði geti lesið Moggann á hverjum degi - til þess er internetið.
Um umhverfisvernd og svokallaða umhverfisverndarsinna
Æ, greyin. Ég ferðaðist aðeins um Austur- og Norðausturland í ágúst og skoðaði marga fallega staði. Þarna er náttúruvernd búinn að ata fegurð landsins með alllskyns pöllum og plönkum úr rússnesku timbri (þeir fá hann ódýrt í gegnum VG). Ég kom t.d. á þann forkunnarfagra stað Ásbyrgi. Ég kom þarna síðast þegar ég var 13 ára og fannst alveg rosalega fallegt. Ég hlakkaði því til að koma þangað aftur en varð fyrir miklum vonbrigðum. Vissulega er staðurinn fallegur en nú er búið að byggja einhvern forljótan pall yfir hálfa tjörnina. Þetta er nú það sem nútíma náttúruvernd snýst um. Það má ekki virkja neðanjarðar og búa til vötn en það má byggja forljóta viðarkumbalda og allskyns palla og drasl fyrir þjófótta þýska túrista. Það má heldur ekki sökkva einhverjum mýrarflákum sem enginn hefur séð nema fuglinn fljúgandi, allra síst 101-umhverfisverndarsinnarnir. Auk þess kveikir fólk ekki á þeim gífurlegu möguleikum sem svona lón geta haft fyrir dýralíf. Mér er til dæmis sagt að Sultartangalón sé einn vinsælasti náttstaður grágæsa þegar þær koma niður af hálendinu á haustin. Auk þess sagði mér fróður maður að lónið norðan Vatnajökuls myndi ná upp að jökulröndinni og menn þekkja nú hvaða aðdráttarafl Jökulsárlón hefur fyrir ferðamenn. Það eru því mun meiri möguleikar fyrir ferðamannaiðnað en menn gera sér grein fyrir þarna í kringum virkjanir við norðanverðan Vatnajökul. Staðreyndin er nefnilega sú að það er nóg náttúrufegurð að skoða fyrir ferðamenn þrátt fyrir að það sökkvi eitthvað af mýrum norðan Vatnajökuls. Hins vegar held ég að það megi gera mun betur í allskyns ævintýraferðum fyrir áhugamenn um jaðaríþróttir og veiðar svo dæmi séu tekin.
Boltinn
Ísland-Skotland á morgunn verður örugglega baráttuleikur. Íslendingarnir taka þetta á endanum 3-1 með mörkum frá Eiði og Heiðari Helgusyni (2).
Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli