20. sep. 2002

Leiðinlegasti bloggarinn!!
Nei, Viðar! Mér finnst þú ekki leiðinlegasti bloggarinn. Hins vegar held ég að þessi Hjörtur sem er með B.A. í íslensku sé þess vafasama heiðurs aðnjótandi. Ekki nóg með að hann hafi haft fyrir því að skrifa heila B.A.-ritgerð um álit sitt á hinu alíslenska orðatiltæki "að rokka feitast" heldur eru allar aðrar færslur á blogginu hans líka afburðaleiðinlegar. Ég hallast þess vegna að því að það ætti fremur að standa B.S. (fyrir Bull Shit) á útskriftarskírteini hans úr HÍ. Síðan heitir maðurinn líka Hjörtur... hesturinn minn heitir Hjörtur og er ég ekki frá því að sú skynuga skepna beri af þegar þeir nafnar eru bornir saman hvað varðar líkamlegt atgervi og greind. Geta fjölmargir sem kynnst hafa þessari afburðaskepnu vottað þetta.

Skólinn
Er nú að ljúka fjórðu viku í sjö vikna barnalæknisfræðikúrsi. Líkar þetta alveg rosalega vel og er enn hrifnari af þessari undirgrein læknisfræðinnar en ég var áður. Samt á ég víst eftir að fara á skemmtilegustu deildirnar að áliti bekkjarfélaga minna. Þessu litlu kríli eru algjör gullmolar. Þau kunna ekki að ljúga eins og fullorðna fólkið. Málið er nefnilega það að margir fullorðnir gefa rangar upplýsingar þegar maður er að taka sjúkrasögu. Þessu litlu heiðarlegu kríli eru ekki enn búin að læra að ljúga og stundum koma alveg óborganleg ummæli af vörum þeirra. Einn sagði hér um daginn þegar hann var spurður hvort hann hefði ofnæmi f. e-u, að hann væri ekki með ofnæmi fyrir kisum og svoleiðis en hann var alveg viss um að hann væri með ofnæmi fyrir litlu systur sinni. Síðan spræna litlu gríslingarnir stundum á mann svo þetta er svolítið fyndinn sjúklingahópur.

Helgin
Það er stefnt á feita vísindaferð í dag og svolítið sukk og svínarí á eftir með bekkjasystkinunum. Síðan þarf ég að klára grein, sem á að birtast í Læknablaðinu í október, á morgunn. Síðan held ég að ég sökkvi mér bara í lestur barnalæknisfræði á sunnudaginn þegar ég er búinn að fylla út vinnuskýrslu fyrir ágúst.

Góða helgi öll sömul.

Engin ummæli: