Aumingjabloggari hvað!!!
Viðar og Sjonni virðast standa í þeirri trú að það sé nóg að blogga að meðaltali 2svar í viku til að sleppa við ákúrur félaga sinna en ég ákúra þá hér með fyrir slælega bloggframmistöðu. Ég er reyndar svo þreyttur eftir ofurbloggið í gær að ég ætla að hafa þetta stutt í dag. Langar eiginlega bara að dissa Flugleiðir.
Rússneska flugfélagið!
Flugleiðir eru orðin mjög undarlegt flugfélag. Fór í dag að kvarta og hitti á mjög vingjarnlega stúlku sem ég skil bara ekki hvernig hafði þolinmæði í að vera vingjarnleg á meðan ég hellti mér yfir hana. Auðvitað ræður hún engu greyið og þarf síðan að þola svona yfirgang frá fíflum eins og mér. Þetta virðist hins vegar vera eina leiðin til að fá einhverju framgengt þarna (sbr. að töskurnar mínar komu til Búdapest rúmum 6 klst. eftir að pabbi hafði hraunað yfir starfsmenn Flugleiða). Hún var sem sé hin hjálplegasta en tjáði mér að hámarksbætur sem Flugleiðir bjóða upp á eru 8000 kr. - sama hversu lengi þeir týna farangrinum manns. Svona virkar bara einokun - þeir þurfa ekkert að bæta fyrir mistökin heldur les maður úr svipnum á liðinu: "Hvað ætlar þú að gera góði, fljúga með öðru flugfélagi næst? Þú getur líka farið með Norrænu, aumingi!" Þeir vita nefnilega sem er að þeir þurfa ekkert að bæta manni skaðann því maður neyðist til að versla við þá aftur hvort sem manni líkar betur eða verr. Þessi stúlka féllst engu að síður á að taka upp kröfu mína á þetta ungverska flugfélag (aðrar 8000kr) og sagði mér að leggja inn skriflega kvörtun til Flugleiða sem ég og gerði. Að sjálfsögðu hældi ég þessari stúlku í hvert reipi í kvörtunarbréfinu og vona að hún fái að heyra af því. Síðan er auðvitað hægt að tala við tryggingafélagið sem ég var tryggður hjá. Það er kannski síðasta hálmstráið. Meiri fréttir af þessu síðar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli