9. sep. 2002

Ferðasagan
Dagur 1
Ferðin byrjaði ágætlega hjá mér. Var kominn til Keflavíkur 2t fyrir flug og ætlaði að spóka mig í Fríhöfninni. Það endaði með því að ég keypti mér síma, rafmagnsrakvél og ferðageislaspilara sem raunar voru allt hlutir sem mig vantaði. Síðan gekk flugið til Köben mjög vel - ég las 50 bls. í hinni langdregnu Hringadrottinssögu sem Heiðar lánaði mér í vor og ég hef ekki enn lokið við. Ég var síðan lentur í Köben u.þ.b. 2t fyrir flugið til Búdapest með hinu stórkostlega flugfélagi MALEV. Þessum tíma eyddi ég að mestu í að skoða mig um í flugstöðinni, borða og bíða. Síðan varð að sjálfsögðu hálftíma töf á fluginu frá Köben og það þýddi að ég lenti ekki fyrr en um kl. 23 í Búdapest að staðartíma sem samsvarar því að kl. sé 21 hér. Þar kom,eins og tryggir lesendur vita, í ljós að töskurnar mínar komu ekki með vélinni og því varð ég að fara sneyptur, sveittur, skítugur og pirraður á hótelið til að þrífa fötin sem ég var í vegna þess að ég var ekki með neitt til skiptanna. Þeir lofuðu að sjálfsögðu öllu fögru og sögðu "Your luggage tomorrow, yes" :). Ég var því sæmilega bjartsýnn
Dagur 2
Var laugardagurinn 31. ágúst. Ég vissi að ég yrði að taka daginn snemma því allar búðir loka um 13 á laugardögum í Búdapest. Tók þá afspyrnu lélegu ákvörðun að labba niður í bæ sem eru líklega um 7-8 km (vissi það ekki). Kom niður í bæ um 11 og fann nokkrar ágætar búðir. Keypti mér m.a. stuttbuxur auk nærfata og sokka en þar sem ég hafði haft spurnir af því að Flugleiðir hefðu fundið töskuna mína í Róm ákvað ég að fara varlega í verslunargjörningum fyrst um sinn. Ég fór síðan eftir hádegi og leit á kastalahverfið sem er líklega annað af frægustu merkjum Búdapest. Þar var ég í um 4 tíma að skoða mig um og komst m.a. í leðurverslun sem átti merkilega sögu. Fór síðan heim á hótel um kvöldmatarleytið eftir að hafa rennt niður ljúffengum Hamborgarakóngi (Burger King). Á hótelinu voru auðvitað engar töskur en ég fékk þær fréttir að taskan ætti að koma um miðnætti til Búdapest og yrði kominn á hótelið þegar ég vaknaði. Þetta var annars ágætishótel og starfsmenn þess sáu algerlega um öll samskipti við flugfélagið varðandi töskurnar sem var mjög þægilegt. Ég fór snemma í háttinn enda vissi ég að ég yrði að vera vel upp lagður á sunnudeginum því þá hófst ráðstefnan.
Dagur 3
Svaf lengi fram eftir en hélt síðan af stað í bæinn þar sem til stóð eitthvert málþing á vegum GlaxoSmithKlein (lyfjafyrirtæki). Tók því rútu og lest niður í bæ og gekk þaðan u.þ.b. 2 km að Varosliget sem útleggst Borgargarður á íslensku. Þar var heimssýning árið 1896 að ég held og byggð einhver höll sem ég hafði því miður ekki tíma til að skoða. Þarna er líka svokallað Hetjutorg þar sem er minnismerki um allar fallnar hetjur Ungverja síðan fyrir milljón árum. Síðan er þarna safn sem heitir Safn fínna lista (Museum of Fine Arts). Þar var s.s. fyrsta fyrirlestrablokkin í viðbjóðslega heitum en fallegum sal sem var fullur af listaverkum eftir fræga karla. Síðan var farið á fínasta veitingahús Búdapest um kvöldið. Þar var pöntuð 6 rétta máltíð þar sem m.a. var að finna steikta gæsalifur sem er víst fínasti matur norðan Alpafjalla. Þetta var ljúffeng máltíð og rann vel niður með rauðvíni og Tokayi sem er víst einhver þjóðardrykkur þeirra Ungverja. Hann er svolítið eins og blanda af hvítvíni og sjerrí - nokkuð gott. Síðan var farið heim í háttinn.
Dagur 4
Var eiginlega fyrsti alvörudagur ráðstefnunnar og þá kíkti maður aðeins á nokkra fyrirlestra en meirihlutanum af deginum eyddi ég í að kaupa mér föt þar sem Rómverjunum gekk e-ð illa að koma töskunni minni um borð í flugvélina. Um kvöldið var síðan borðað á öðrum mjög fínum veitingastað rétt utan við Búdapest og þar fékk ég mér eitthvað sem kallast Spit-Steak. Þetta er sé smátt sneiddar nautalundir sem er rúllað saman með beikoni og steikt á teini. Þetta er jafn ótrúlega gott og það hljómar og mun ég einhvern tíma prófa þetta á gasaranum heima. Síðan skellti maður sér í háttinn.
Dagur 5
Vaknaði snemma og tók aðeins meira þátt í ráðstefnunni sem annars einkenndist að miklu leyti af málhöltum austantjaldsmönnum í bland við Japani og Ítali sem töluðu mjög lélega ensku. Auk þess hjálpaði 30 stiga hiti og léleg loftræsting ekki til við að halda manni vakandi þannig að maður eyddi mestum tíma í að skoða veggspjöld sem voru e-ð um 1200 á þessu þingi. Um kvöldið fóru síðan Íslendingarnir síðan í óperuna en ég fékk ekki miða svona seint og eyddi því kvöldstundinni á hótelinu. Fór snemma að sofa enda átti ég að kynna posterinn minn daginn eftir.
Dagur 6
Vaknaði tiltölulega snemma og sá þá mér til mikillar undrunar skilaboð frá hótelmóttökunni að farangurinn minn hafði borist kvöldið áður. Fór því og náði mér í föt og mætti á þingið. Gerði aðra tilraun til að hlusta á liðið sem var að halda fyrirlestra þarna en gafst fljótlega upp vegna hita og enskukunnáttuleysis fyrirlesara. Kynnti síðan veggspjaldið mitt um hádegið. Gekk frekar illa til að byrja með enda vissi ég ekki fyrr en ég kom út að ég átti að kynna verkefnið stuttlega á ensku. Þetta er ekki auðvelt að gera óundirbúinn og því fór sem fór. Ég fór í þvílíkan mínus og flest sem ég ætlaði að segja kom vitlaust út úr mér. Síðan hafði fólk tækifæri til að spyrja og þá loksins náði ég mér upp úr skítnum og gat svarað frekar vel fyrir mig. Um kvöldið fórum við Rafn (kennarinn minn) á stærsta markað Búdapest sem er staðsettur í einhverri gamalli lestarstöð að ég held. Keypti þar forláta útskorið tafl o.fl. Síðan fórum við og fengum okkur það sem átti að vera Pork tenderloin (Svínalund) en var eiginlega bara svínamör. Frekar mikill vibbi en ungverskt rauðvín sem við drukkum með var með því betra sem ég hef drukkið en ég man því miður ekki nafnið á því. Síðan skildu leiðir því Rafn átti pantað flug eldsnemma á fimmtudagsmorgninum heim en ég ætlaði að vera áfram fram á laugardagsmorgunn.
Dagur 7
Fór niður í bæ um morguninn og keypti mér e-ð af íþróttafötum. Síðan fór ég og tók veggspjaldið mitt og raunar tvö önnur sem tilheyrðu Rafni niður en þingið kláraðist um hádegi á fimmtudeginum. Síðan fór ég og skoðaði mig um í kringum Þinghús Ungverja sem er hitt aðalsmerki borgarinnar. Glæsileg bygging en eins og flest annað í Búdapest frekar niðurnítt. Það er þó verið að vinna í endurbótum á því og sumir hlutar þess eru bara reglulega fallegir. Gekk síðan góðan hring um Margrétar-eyju sem er í Dóná rétt ofan við Þinghúsið. Droppaði þar inn á fínasta veitingastað um fimmleytið og snæddi nautalundir og bjór sem var lostæti (það var ekki til rauðvín). Síðan var það bara bælið enda ekki gaman að mínu viti að kanna næturlíf einsamall.
Dagur 8
Skoðaði m.a. minnismerki um Gellert nokkurn sem mun vera píslarvottur Búdapest en sagt er að honum hafi verið varpað í eikartunnu niður af hæsta tindi borgarinnar. Þetta er um 120 m há hæð sem gnæfir þverhnípt yfir Dóná. Mjög glæsilegt minnismerki að grunninum til en unglingar Búdapest-borgar hafa tekið að sér að nútímavæða merkið með veggjakroti sem er ekki fallegt. Síðan tók ég annan rúnt um Kastalahverfið og fór snemma í háttinn enda átti ég flug um tíuleytið daginn eftir og var búinn að ákveða að vera snemma í því á flugvöllinn.
Dagur 9
Ég var því kominn upp úr átta á flugvöllinn og gat skoðað mig vel um. Var nú með 2 töskur í stað einnar og merkti nú allt saman vel til að fá örugglega töskurnar alla leið. Fluginu var síðan seinkað um 45 mínútur og þar með var orðið ljóst (eftir því sem ég best vissi að ég mundi missa af vélinni til Íslands þar sem ég átti að lenda um 12:40 að ungverskum tíma í London en vélina að fara þaðan kl. 13:00. Sem betur fer eru Bretar svo sérvitrir að þeir breyta sumartímanum fyrr en aðrar þjóðir og því lenti ég kl. fyrr en ætlað var þ.e. kl. 11:40 að staðartíma í London og hafði því góðan tíma til að spóka mig um Heathrow-flugvöll. Síðan gekk flugið heim eins og í lygasögu, lagði af stað 5 mín á undan áætlun og var lent 15 mín á undan áætlun. Ég fór í fríhöfnina eins og lög gera ráð fyrir. Keypti vín, nammi og body-lotion handa konunni og síðan kom rúsínan í pylsuendanum. Töskurnar mínar komu ekki með vélinni. Þær voru enn í London. Fékk þær reyndar í gær sunnudag, rúmum sólarhring á eftir áætlun en ég hlakka til að láta í mér heyra á skrifstofum Flugleiða á morgunn.

Bottom-line: Ef ykkur langar að fara til Búdapest, farið eftir tíu ár og ekki fljúga með Malev. Ferðin var þrátt fyrir allt sæmileg og fær 2* af 5 mögulegum. Góðar stundir

Engin ummæli: