19. okt. 2002

Loksins, loksins!!!
Nú er ég loksins orðinn nettengdur aftur heima hjá mér. Hef ekki haft nettengingu í baðstofunni síðan um sláttarbyrjun.

Akureyri...
...er skolli skemmtilegt byggðarlag. Hef dvalið þar við nám síðastliðna viku og líkar ágætlega. Við erum s.s. á kúrs í heimilislæknisfræði á heilsugæslustöðinni á Akureyri og líkar bara nokkuð vel. Þarna ræður ríkjum Pétur nokkur Pétursson og mun hann vera litli bróðir Páls á Höllustöðum. Pétur er ákaflega skemmtilegur maður, hagyrtur og sniðugur, auk þess sem hann er mjög blátt áfram. Hann tjáði okkur Jónasi (bekkjarfélaga mínum sem er með mér þarna f. norðan) að skírlífi væri alls ekki skilyrði á kúrsus og því vildi hann vera viss um að hann væri ekki að gera okkur óleik með því að setja okkur saman í herbergi. Þess má geta að við Jónas erum báðir fráteknir.

Herbergið...
...sem við Jónas deilum á Akureyri er ekki víðlent en þó nógu stórt fyrir okkur Jónas. Þarna er sjónvarp og gott baðherbergi. Baðherbergið er reyndar þeim galla haldið að kranarnir á vaskinum hafa víxlast. Þetta veldur því að þegar við Jónas förum á fætur hálfmeðvitundarlausir í morgunsárið þá hefur það viljað brenna við að við þvoum okkur úr köldu vatni en burstum skoltinn með heitu. Þetta eru ekki góð skipti.

Heilsugæslan
Við Jónas höfum, ólíkt flestum bekkjarfélögum okkar, skemmt okkur sérlega vel á heilsugæslunni. Það er ekki síst að þakka góðu skipulagi og skemmtilegum læknum á Akureyri. Ég fór t.d. til Grenivíkur í gær en þangað hafði ég aldrei komið áður. Það er alltaf gaman að koma á staði sem maður hefur ekki séð áður.

Boltinn
Grey skinnin hans Atla stóðu loks fyrir sínu á miðvikudaginn og lögðu afspyrnuslakt lið Litháa í skemmtilegum leik. Eiður sýndi loks hvað í honum býr, með landsliðinu og vonandi er hann búinn að finna taktinn. Ég held nú samt að það sé farið að minnka sandurinn í tímaglasinu hans Atla. Hann er búinn að gera fína hluti með þetta lið en menn geta staðnað í þessu og ég vona að hann fari út í þjálfun félagsliða aftur fljótlega. Þá mundi ég vilja fá Teit Þórðarson heim í nokkur ár og síðan gæti Willum Þór tekið við og gert okkur að heimsmeisturum árið 2030.
Greyið með taglið gerði víst frábæra hluti í leik Englendinga á miðvikudaginn. Því miður gat ég ekki notið þessarar yndislegu stundar en eins og flestir vita hef ég mikla óbeit á Dabba Sjóara - hann er kominn fram yfir síðasta söludag og löngu orðinn súr.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

Engin ummæli: