Helgin
Eins og menn vita þá er ég ekki nettengdur heima þannig að það fer lítið fyrir færslum hjá mér um helgar. Annars var þetta rosaleg helgi. Á föstudag var tekið svakalega á því í vísindaferð. Það var farið í Líf hf. sem er móðurfyrirtæki ýmissa fyrirtækja í heilbrigðisiðnaði. Þar var vel veitt af bæði mat og drykk. Fyrir áhugasama var það mexíkanskur matur með Corona-bjór, rauðvíni og hvítvíni. (svo var líka óáfengt fyrir Árna pneumo) Síðan var haldið á Astró (eða sósujafnarann eins og Þór kallar hann). Þar var tekið svakalega á því og það endaði með því að ég lagði mig pínulítið á Kaffibarnum undir morgunn. Síðan var farið heim. Þar sem konan var á fylleríi með vinnufélögum sínum þá hélt ég auðvitað að það væri upplagt að taka tvistara og við félagarnir: ég, Ingvar og Þór ásamt Hirgittu Baukdal, ákváðum að lyfta okkur aðeins upp. Ég lyfti mér aðeins hærra en margir aðrir og því var sunnudagurinn erfiður. Raunar lyfti ég mér svo hátt að ég er kominn með magasár og þarf að éta e-r lyf næstu vikuna og fara varlega í bjórinn.
Boltinn
Mínir menn að rétta úr kútnum vonandi. Þeir tóku Tottenham í bakaríið á laugardag og gefa lokatölurnar 1-0 engan veginn rétta mynd af yfirburðum minna manna. Kasey Keller var langbesti maður vallarins og það þurfti víti frá Ruudaranum til að sökkva totturunum. Veron var góður á miðjunni og stóra systir kom inn á í fyrsta skipti í vetur. Litla systir átti líka góðan leik.
Davíð...
...var góður í imbanum í gær. Mér fannst hápunkturinn þegar hann sagði að það væri oft mikil eftirspurn eftir stjórnmálakröftum Jóns Baldvins þegar hann kæmi í frí á Íslandi. Einnig hneykslaðist hann réttilega á vinnubrögðum ástkærrar borgarstýru vorrar sem lét sjálf gera skoðanakönnum á því hvort landsmenn vildu hana í landsbyggðarmálin. Auðvitað vill stór hluti landsmanna hana þangað. Samfylkingarmenn vegna þess að þeir halda að hún eigi roð í Dabba kóng og sjálfstæðismenn af því að þá hrynur skýjaborg vinstri manna í Reykjavík og af því að þeir vita að Dabbi rúllar pólítíkum um fingur sér. Þeir einu sem vilja hana ekki eru Framsóknarmenn sem vita að þá eru þeirra dagar taldir og vinstri grænir því þeir vita að allt tískuumhverfisverndarsinnaða pakkið vaknar af vondum draumi og fattar að það er bara að kjósa Hinn íslenska kommúnistaflokk en ekki einhverja græna fingur.
Ráðgáta vikunnar
Hvernig er hægt að vera kommi og á móti stóriðju? Hvernig er hægt að vera umhverfisverndarsinni en samt á móti því að Kópasker hverfi af yfirborði jarðar? Hvernig er hægt að vera með skalla en samt ekki borgarstjóri? Hvernig er hægt að vera skemmtilegur en samt kommi?
Svar: Þú getur heitið Skalla-Grímur Sigfússon
Afsakið
Þetta þyrfti ég nú að setja inn á spássíuna mína en ég kann það bara ekki enda lítill tölvunjörður þó mikill njörður sé. Fyrir menn sem fá vond lýsingarorð í hæsta stigi á sig á þessu bloggi eins og Hjörtur nokkur fékk nýlega er rétt að taka fram eftirfarandi:
1) mörg lýsingarorð eru bara til í efsta stigi hjá mér, þetta veldur t.d. því að góður matur, góð tónlist o.s.frv. verður oft besti matur eða besta tónlist sem ég hef smakkað eða heyrt. Þetta á þó mun oftar við um vond lýsingarorð eins og leiðinlegur og vondur og ljótur.
2) stundum þegar mér er mikið niðri fyrir verð ég full orðhvatur og sauryrtur og skildu menn ekki taka það persónulega heldur líta fremur á það sem lesti á mínum annars óendanlegu persónutöfrum fremur en sína eigin ókosti.
3) ég er hægrisinnaður maður og áskil mér fullan rétt til að uppnefna alla sem eru ósammála mér án þess að ég beri ábyrgð á slíkum uppnefnum á opinberum vettvangi. Menn verða að muna að ég hef sterka stöðu þegar kemur að því að bera fyrir mig stundarbrjálæði. Ég er nefnilega brjálaður hverja stund. Ég er því eiginlega miklu fremur stundabrjálaður en stundarbrjálaður.
4) ég er alltaf ósammála þér - hver sem þú ert - af því að mér finnst gaman að vera ósammála - nema þegar ég er sammála.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli