Boltinn
Góð úrslit í meistaradeildinni í gær fyrir utan að íkveikjuliðið Arsenal þurfti endilega að taka upp á því að vinna allt í einu á útivelli. Það er ljóst að þeir eru með slarkfært lið í vetur og ég held að Ferguson verði að spýta í lófanna og binda endi á sigurgöngu þessa liðs sem fyrst. Annars verður annar dollulaus vetur því ég sé ekki fyrir mér að United taki Real eins og þeir eru að spila. Ég er farinn að hafa áhyggjur af þessum Milan Baros. Allt í einu er Liverpool komið með framherja sem kann að klára færin sín en það hefur ekki sést á Anfield síðan Fowler var seldur. Vona að Houllier haldi áfram að vera þrjóskur og noti greyið hann Owen og varnarjaxlinn Heskey sem mest.
Verkefni
Líkt og hjá Viðari er nóg að gera hjá mér í skólanum. Er á deildum fram til kl. 13 en þá byrja yfirleitt fyrirlestrar sem standa til 15 eða 16 eftir því í hvernig skapi menn eru. Síðan fer maður heim og reynir að vinna í þeim verkefnum sem manni hefur verið sett fyrir og að lokum er það síðan lestur námsefnisins sem er mjög skammt á veg kominn. Reyndar fer ég 2 vikur á Heilsugæsluna á Akureyri í október og þá getur maður notað dauðan tíma til að lesa. Síðan byrjar kvennakúrsinn strax í kjölfarið en hann er 6 vikur að lengd. Síðan þegar honum er lokið taka við bókleg próf í kvensjúkdóma- og barnalæknisfræði. Annars kemur það mér sífellt á óvart hvað ég þekki mikið af fólki sem á börn. Mér finnst ég þekkja næstum hverja einustu móður sem kemur með barnið sitt á barnadeildina. Er ég orðinn svona gamall?
Hef ekki fleira handa ykkur í dag, verð að fara að undirbúa fyrirlestur um hvítblæði í börnum sem ég á að flytja í fyrramálið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli