28. júl. 2002

Jæja!

Í fyrsta skipti í marga mánuði er stund milli stríða í vinnunni til að blogga svolítið. Af mér er lítið að frétta annað en vinnan, svefninn og sumarið. Boltinn hefur meira að segja setið á hakanum og hef ég aðeins mætt í fimm leiki Ástarinnar í sumar og fengið að líta eitt rautt spjald, þrjú gul (þar af tvö fyrir kjaft) auk þess sem ég hef skorað 3 og lagt upp önnur 3. Þetta hefur þó verið fremur rýrt hjá okkur riddurum Ástarinnar.

Vinnan er fín og í fyrsta skipti síðan ég var í sveit sem ég hef kynnst alvöru vinnu með hamagangi og látum og hinum yndislega þreytusvefni eftir vaktirnar. Þetta er sem sé mjög fínt. Plan sumarsins það er sem eftir er liggur fyrir. Vinna og sumó um verslunarmannahelgi. Ferðaklúbbur Papa Chuck skoðar Austurland helgina þar á eftir. Síðan er vinnuhelgi og loks kemur síðasta vinnutörnin sem líkur föstudaginn 23. ágúst og síðan er brúðkaup þann 24. ágúst hjá Rögnu megabeibi og Gumma körfunörra. Síðan er það bara vinna og svefn inn á milli. Byrja að blogga aftur af krafti í haust.

KK Gísli BB

Engin ummæli: