Jæja börnin góð. Ég veit þið hafið beðið spennt fyrir framan tölvuskjáinn síðustu daga eftir því að ég segði e-ð gáfulegt en eins og treggreindum mönnum er tamt hefur mér ekki dottið neitt gáfulegt í hug. Auk þess hef ég ekki haft tækifæri til ítarlegra bloggskrifa. Ég hef hins vegar tekið eftir að hræðilegir atburðir hafa gerst um helgina. Maður myrtur í Reykjavík (reyndar á fimmtudag) og svo kórónaði Sjonni þetta með því að byrja að blogga aftur. Það eru nú takmörk fyrir því sem hægt er að leggja á saklausa borgara þessa lands.
Helgin...
...var góð. Á föstudag var ég reyndar á vakt á barnadeildinni og fór síðan beinustu leið í háttinn í kjölfarið en á laugardag hélt hinn ágæti Hannes (a.k.a. Magnús Gísli Eyjólfsson) alveg þrusumagnað náttfatapartý í tilefni af 25 ára afmæli sínu. Það var auðvitað boðið upp á vín og mat að hætti hússins en fyrir þá sem ekki vita er Magnús með gestrisnari mönnum. Ég verð nú reyndar að viðurkenna að ég gerðist eymingi og sötraði aðeins óáfenga drykki og fór síðan bara heim eftir partýið. Ég hef hins vegar haft spurnir af því að einhverjir hafi heimsótt öldurhús borgarinnar undir morgunn, íklæddir náttfötum einum fata. Ljós-Gíslinn óskar Magnúsi Gísla að sjálfsögðu til hamingju með silfurfæðinguna sem og þeim Arnóri spýjukappa og Jóhanni Davíð ræðukappa við sömu tímamót.
Boltinn
Gamla eimreiðin er komin í gang og eins og flestir vita þarf yfirleitt meira en franska útlendingahersveit til að stöðva slíkt ferlíki. Það verður gaman að sjá hvernig mínir menn munu valta yfir Arsenal og Liverpool á næstu vikum. Raunar hef ég meiri áhuga á að United einbeiti sér að Meistaradeildinni en það er allt í lagi að taka Úrvalsdeildardolluna í leiðinni ef önnur lið hafa ekki áhuga. Ruud er kominn í gang og Scholes, Veron, Silvestre og Keane allir á leiðinni í sparkstígvélin aftur. Nú síðast komu fréttir af því að Keane væri að ná undraverðum bata eftir mjaðmaraðgerðina. Ég held að það verði tekið Blizz a la MUFC næstu vikurnar og þessum vesalingum sýnt hvar Davíð keypti ölið (í Bermúda-skálina). Annars vil ég að lokum óska Fylkismönnum til hamingju með Blikkdolluna sem þeir unnu á laugardaginn. Það er best að hafa bara draslið þar sem það á heima - hjá hinu draslinu. Ég er alvarlega að spá í að gerast KR-ingur bara til að skaprauna konunni minni og vinum. Ég lýsi því hér með yfir að á meðan Víkingur Reykjavík spilar ekki í efstu deild þá mun ég halda með KR.
Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli