29. apr. 2004

Geislinn 26 ára!
Rétt er það. Geislinn fyllti tuttugasta og sjötta aldursárið skömmu eftir hádegið í dag 28 apríl. Ekki get ég sagt að afmælisdagurinn hafi verið beinlínis skemmtilegur þar sem Geislinn þurfti í munnlegt próf í skurðlæknisfræði en það gekk vonum framar og Geislinn hélt upp á daginn með langþráðu fríi, fótbolta, safaríkri grillaðri nautasteik með bakaðri kartöflu, fersku salati og bernaisesósu. Þessu var skolað niður með ljúffengu Casillero del Diablo rauðvíni gerðu úr Cabernet Shauvignon þrúgum og einum ísköldum Thule. Í eftirrétt var grillaður banani fylltur með Mars-súkkulaði og ís. Namm! Afmælisgjafir voru að mestu í formi dollara enda stefnir Geislinn á heimsókn til bróður síns til Ameríkunnar eftir mánuð.

American History X
Var síðan að ljúka við að horfa á þá frábæru kvikmynd, American History X sem ég hafði ekki séð í langan tíma. Stórkostleg mynd um þær hvatir sem oft á tíðum liggja að baki fordómum og hatri og þá grundvallarspurningu sem allir verða að spyrja sig um slíkar tilfinningar - líður manni eitthvað betur með slíkt hatur og slíka hleypidóma. Ég held að það sé fátítt að einstaklingar sem láta slíkar hvatir ráða gerðum sínum fyllist hamingju eða gleði. Líf þeirra snýst um að vola yfir því hvað aðrir hafa haft af þeim.

Þann 26. apríl...
...varð aldraður bróðir minn, Jón Bragi, einu árinu ríkari þegar 36. aldursárið kvaddi hann og það 37. heilsaði (fyrir trega þá varð hann 36 ára). Til hamingju með það gamli.

Síðan ég skrifaði hér síðast hafa einnig orðið þau merku tímamót að 2000. gesturinn heimsótti síðuna síðan ég setti teljarann upp fyrir nákvæmlega 12 vikum síðan. Það gerir u.þ.b. 175 manns á viku eða 25 manns á dag. Kannski hefur einhver áhuga á bullinu í mér.

Engin ummæli: