Geislinn grætur
Tvennt er það sem grætir Víkinginn unga. Í fyrsta lagi er það ömurlegt gengi minna manna í ensku deildinni en þeir tapa nú hverjum leiknum á fætur öðrum, nú síðast gegn Blackburn á Evil Park. Það er nú ljóst að hið ömurlega þriðja sæti fellur þeim í skaut þetta árið líkt og fyrir tveimur árum þegar aumingjunum í Liverpool tókst að ná öðru sætinu.
Í öðru lagi er það síðan próflesturinn sem nagar í mér Víkingssálina. Ég er kominn með upp í hvirfil af þessum endalausu sjúkdómum og meðferðum þeirra. Er reyndar búinn með skurðlæknisfræðina - gekk ágætlega í munnlega en í skriflega prófinu gekk mér ekki nógu vel. Vonum samt að það hafi sloppið. Nú á ég sem sagt eftir þrjú próf í lyflæknisfræði. Fyrst fer ég í vitjun sem er verklegt próf og verður líklega á þriðjudagsmorgunn (kemur í ljós á mánudaginn). Síðan er munnlegt þann 11. maí og skriflegt þann 12. og svo er ég búinn með læknisfræðina. Eftir það tekur við frí í rúman mánuð, fyrst hálfur mánuður hér heima og svo tæpar þrjár vikur í landi tækifærana þar sem við Edda ætlum að heimsækja Óttar bróður og fjölskylduna hans sem við höfum ekki séð síðan í fyrrasumar. Við hlökkum mikið til og ef fréttir að vestan eru nákvæmar hlakkar þau svo sem ekki minna til.
Fjölmiðlafrumvarpspæling
Ef ríkið vill ekki að fyrirtæki í markaðsráðandi stöðu eigi meirihluta í fjölmiðlafyrirtækjum, verða þeir þá ekki að selja ríkisútvarpið og -sjónvarpið. Ríkið (og/eða sveitarfélög) hefur markaðsráðandi stöðu í heilbrigðisgeiranum, löggæslu og brunavörnum.
Annars fagna ég þeirri hugmynd Davíðs og Dóru að leggja niður afnotagjöld að RÚV með haustinu. Það væri fínt að losna við þá skatt- og sjónpíningu sem Ríkissjónvarpið er.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli