15. apr. 2004

Baugstíðindi
Stórkostlegir blaðamennirnir þarna á Fréttablaðinu. Framan á fréttablaðinu í dag er sagt frá 2ja ára Þjóðverja sem stakk móður sína af og var pikkaður upp af lögreglunni. Þegar hann var spurður nafns sagðist hann heita "mömmustrákur". Í fyrsta lagi er þetta náttúrlega ekki frétt heldur skrýtin saga. Þetta er því svona týpísk Moggasveitófrétt. Í öðru lagi enda þeir svo á því að segja frá því þegar móðir drengsins endurheimti son sinn og kalla það endurfundi feðginana????? Skrýtið - ég hélt þau væru mæðgin. Það er svo lítið að marka mig miðað við þær miklu mannvitsbrekkur sem prýða blaðamannaflota Fréttablaðsins. Horbjóður íslenskrar blaðamannastéttar er þarna saman kominn í sælureit mannorðsræningja, lygara og samviskuleysingja. Það eina sem ég tek mark á í Baugstíðindunum, DV og Fréttablaðinu, eru smáauglýsingarnar.

Enn af Birni
Ég ætti kannski að fylgjast betur með fréttum áður en ég básúna skoðanir mínar hérna á síðunni. Þegar allt kemur til alls réð Björn ekki annan af þeim tveimur sem Hæstiréttur mælti með í starfið. Kjánaprik getur þú verið Bjössi. Jæja, þá stendur fyrri úrskurður Ljós-Gíslans frá 8. apríl síðastliðnum en pistillinn frá 12. apríl dæmist ómerkur.
Pæling: Ætli Björn komist upp með að skipa núna annan af hinum tveimur í sæti Hæstaréttardómara en ekki konuna? Hvers vegna kærðu hinir tveir ekki? Má það kannski ekki af því þeir eru karlar eða af því að þeim var ekki mismunað á grundvelli kynferðis heldur hæfileika? Er þá ekki hægt að kæra Úrskurðarnefnd jafnréttismála eða a.m.k. lögin um störf hennar, og leggja þau fyrir hana sjálfa til úrskurðar? Það væru nú aldeilis fréttir til næsta bæjar og fréttamennirnir á Baugstíðindum gætu safnað málvillum í sarpinn með óvandaðri og ábyrgðarlausri umfjöllun sinni.

Engin ummæli: