Dufþakur gegn Boltafélagi Reykjavíkur
Spilaði minn fyrsta leik með mínu nýja félagi í gær. Var leikið gegn Boltafélagi Reykjavíkur sem yfirleitt er kallað B.R., líklega vegna þess að það hæfir stafsetningarhæfileikum ákveðinna leikmanna betur. Annars voru þetta flestir ágætis drengir og ekki hægt að kvarta yfir þeim sem mótherjum en inn á milli voru þvílíkir hálfbjánar. Geislinn hefur nú verið þekktur fyrir að senda dómaranum tóninn en hefur samt aldrei á ævinni heyrt annað eins kjaftbrúk gagnvart dómara.
Ónefndur leikmaður liðsins bauð dómaranum til dæmis að koma flautunni hans fyrir í rassgatinu á honum og annar kallaði dómarann þroskaheftan aumingja. Sem betur fyrir (lesist því miður) heyrði dómarinn ekki til þeirra og þeir sluppu því með skrekkinn.
En þá að leiknum. Geislinn hóf leikinn og lék í framlínunni við annan mann í leikkerfinu 4-4-2. Það gekk ágætlega til að byrja með og þegar fyrri hálfleikur var vel á veg kominn tókst okkur að setja mark þegar Jónatan nokkur vann boltann fyrir utan teig, prjónaði sig í gegnum vörnina og setti boltann í hornið af stakri yfirvegun. Honum leist hins vegar ekkert á að vera yfir og því jafnaði hann fljótlega fyrir B.R. með glæsilegum skalla utan af kanti. Við þetta fór eitthvað úrskeiðis í leikkerfi okkar og B.R. gekk á lagið og setti tvö mörk og fengu þeir að auki vítaspyrnu sem þeir misnotuðu reyndar.
Fyrir leikhlé tókst okkur reyndar að klóra í bakkann þegar Heiðar félagi minn í framlínunni komst inn í sendingu til markvarðarins og setti boltann í netið. Staðan í hálfleik var því 3-2 og má segja að við höfum verið óheppnir að skora ekki fleiri mörk en kannski líka að fá ekki á okkur enn fleiri.
Í hálfleik var ákveðið að skipta um taktík og datt ég því niður á hægri kantinn og kantmaðurinn fór inn á miðjuna í leikkerfið 4-5-1. Við þetta gjörbreyttist leikur Dufþaks og við tókum fljótlega völdin á miðjunni. Sóknir B.R. einskorðuðust við örfáar hættulegar skyndisóknir en annars lágum við töluvert á þeim. Um miðjan seinni hálfleik bar pressan árangur og við náðum að jafna eftir einfalda sókn upp hægri kantinn, háa fyrirgjöf og einfalda afgreiðslu Heiðars. Við sóttum síðan látlaust eftir þetta og áttum nokkur hálffæri og örfá dauðafæri en tókst ekki að skora þannig að leikar enduðu 3-3.
Líklega voru þetta sanngjörn úrslit en það var svekkjandi að klára þetta ekki miðað við hvað við vorum með mikla yfirburði í seinni hálfleik.
Sjálfur átti ég lélegan leik enda kannski ekki beinlínis í leikæfingu, hef ekki spilað á stórum velli í tæpt ár. Lagði þó upp síðasta markið okkar og átti nokkra spretti en sinnti varnarhlutverkinu illa á kantinum og þarf að bæta það. Það kemur vonandi með forminu.
Mínir menn...
...tóku Rassenal í Háboruna í gær og gerðu drauma þeirra um þrennuna eftirsóknarverðu að engu. Það var gaman. Mínir menn voru að sjálfsögðu miklu betri sem endranær. Gaf mér ekki tíma til að horfa á leikinn.
Mínir menn í Barca halda áfram góðu gengi sínu og hafa nú ekki tapað í tólf leikjum í röð. Þeir eru farnir að nálgast toppliðin hratt en líklega enda þeir í fjórða sæti og rétt slefa inn í Meistaradeildina.
Mótsögn dauðans (og Heiðar bullar)
Ríkissjónvarpið hefur hækkað afnotagjöldin en einnig ætla þeir að hætta því eina sem þeir gera vel – sýna beint frá alþjóðlegum íþróttaviðburðum. Heiðar telur þetta góðar fréttir en ég skil ekki í hvað peningarnir eiga að fara. Kannski á að bæta um betur í ömurlegri innlendri dagskrárgerð eins og Atinu og Mósaík.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli