21. apr. 2004

Afmælisbarn dagsins
Gunnar Thoroddsen stórmógúll og ofurbloggari er 26 ára í dag. Til hamingju með daginn gamli.

Þorgeir
Ég hef gefist upp á að koma vitinu fyrir Þorgeir enda hef ég engan tíma fyrir það. Hef þegar eytt of miklum tíma. Hann mun að sjálfsögðu fagna sigri eins og lúserarnir sem öskruðu: "Úrslitamark!!!" rétt áður en þeir minnkuðu muninn í 10-1 í leikfimi í gamla daga. Ég mun kannski gefa mér tíma til að svara honum þann 12. maí en ég efast um að ég nenni því. Til þess er geðheilsan of dýrmæt og hún skánar ekki við að rífast við vegg. Kosturinn við að vera veggur er sá að þér verður ekki hnikað í afstöðu þinni (mjög heppilegt í fari t.d. lögreglumanna á vakt) en ókosturinn er sá að framfarirnar verða engar sem er afskaplega óheppilegt. Flestum lögregluþjónum tekst að leggja veggnum þegar vaktinni lýkur...
...en ekki öllum.

P.S. Já, Þorgeir ég líkti þér við fótboltamann.

Boltinn
Mínir menn réttu úr kútnum í gær og lögðu Charlton sem er gott. Það sem er enn betra er það að Gary Neville skyldi skora aftur. Hann hefur ekki einu sinni skorað með svona stuttu millibili í svefnherberginu áður. Gott hjá þér Gary.

Engin ummæli: