21. apr. 2004

Bullið er ættgengt!
Ætli ég verði ekki að setja þetta á einfaldan hátt fyrir þá bræður til að þeir skilji þetta.
Tilgangur prestsins með predikun sinni var að sögn þeirra bræðra að sýna fólki fram á hversu röng, út frá siðaboðskap biblíunnar, árás Ísraelsmanna á Hamas-leiðtogann var. Ég held að það þurfi ekki prest til að benda fólki á það en við skulum, í þágu rifrildisins, taka þá röksemdafærslu gilda.

Þar sem ég geri ekki ráð fyrir að meginþorri fólks standi nokkurn tíma í þeim sporum að taka ákvörðun um að sprengja einhvern í loft upp geri ég ráð fyrir að prestgarmurinn hafi ætlað að koma þeim skilaboðum til safnaðarins að hann ætti ekki að styðja menn sem taka slíkar ákvarðanir. Hér værum við þá að tala um Ísraelsstjórn.

Þar sem ég geri ekki ráð fyrir að nokkur heilvita maður styðji slíkar aftökur þá hefur presturinn líklega verið að biðla til fólks að styðja ekki menn sem styðja slíkar ákvarðanir. Hér væri það þá Bush Bandaríkjaforseti.

Fæst okkar eigum sennilega eftir að hitta Bush til að heita honum stuðningi okkar við stjórnarákvarðanir hans og því mætti ætla að presturinn hafi verið að gagnrýna þá sem styðja Bush, t.d. íslensku ríkisstjórnina. Boðskapurinn hefur því líklega verið sá hjá prestinum að hvetja fólk til að gera hið eina kristilega í stöðunni að hans mati og það er að styðja ekki ríkisstjórnina heldur andstæðinga hennar. Það má því auðveldlega álykta að presturinn hafi verið að beita stöðu sinni til að hvetja söfnuð sinn til að styðja frekar stjórnarandstöðuna heldur en stjórnina.

Presturinn gerir hins vegar sömu mistök og Þorgeir í röksemdafærslu sinni. Það er ekki jafnaðarmerki á milli þess að styðja við bakið á Bush í Írak og styðja allar ákvarðanir hans. Pílan gengur í aðra áttína ekki hina. Þó Dabbi styðji Bush sem styður Sharon sem styður á hnapp til að sprengja einhvern annan morðingja í loft upp er ekki hægt að ætla Dabba greyinu að styðja á hnappinn væri hann í sömu aðstöðu og Sharon.

Engin ummæli: