8. apr. 2004

Umfjöllun um GB
Mér þykir rétt, í ljósi umfjöllunar minnar um GB hér að neðan, að taka það fram að færslan endurspeglar eingöngu skoðun Geislans og er því ekki endilega hægt að rökstyðja á annan hátt en: af því bara. Þeim sem finnst að sér vegið er bent á að hafa samband í síma 543-1000 þar sem tekið verður við kvörtunum í númeraðri stafrófsröð.

Halldór Benjamín...
...frændi minn bauð til vandaðrar teiti í gær í tilefni af aldarfjórðungsafmæli sínu sem bar þetta árið upp á 5. apríl. Við erum fjórir frændur á þessum aldri og tveir okkar tókum okkur saman og gáfum greifanum eðalviskí, 2 L af súrmjólk og púðursykur. Er gjafarþeganum í sjálfsvald sett hvort hann notar hina súru mjólk sem bland eða þynnkubana en ég hef grun um að viskí bragðist betur í súrmjólk en eintómt. Eða eins og vitur maður sagði einhvern tíma er hann hafði unnið viskíflösku í golfmóti: "Oj! Ég er hættur við að vinna. Viskí er vibbi." Svo mörg voru þau orð.

Andreas unglingur Bergmann...
...bróðursonur minn og mikill snillingur átti reyndar afmæli í gær og varð titturinn 14 ára. Veit reyndar ekki hvers vegna ég kalla hann titt því hann er líklega orðinn stærri en ég og getur líklega tekið mig í bóndabeygju með annarri á meðan hann rústar mér í sjómann með hinni. Hann fær innilegar hamingjuóskir Geislans.

Björn Bjarnason...
...er búinn að missa það. Hann er farinn að dissa fjögurra ára gömul lög með því að kalla þau "barn síns tíma". Yfirleitt nota menn þetta orðalag um eitthvað sem var í tísku aftur í grárri forneskju eins og kraftgallana um 1990 eða sítt að aftan í kringum 1985. En Björn hefur svo sem rétt á sinni skoðun og greinilega eru margir sammála honum. Það merkilega er þó að þrátt fyrir að greyin úr Feministaklíku Garðarshólma (sem er svo gamaldags að það hæfir ekki að kenna það við Ísland sem er miklu nútímalegra og yngra hugtak) hafi alla samúð veraldarinnar með sér, jafnvel meiri en Saddam greyið, þá tekst þeim ekki að koma almennilega fyrir í sjónvarpi. Greyið sem kom þarna í Kastljósið í gær er enn föst í þessu svokallaða "kvenréttindabaráttuvælukjóasamtakabullshitti". Af hverju berst þetta fólk ekki bara fyrir almennum mannréttindum því það eitt að kalla þetta kvenréttindi ber vott um misrétti kynjanna. Það eina jákvæða við jákvæða mismunun er það að það dettur ekki nokkrum manni í hug að hlusta á svoleiðis mjálm. Ef það eru tveir jafnhæfir einstaklingar sem sækja um stöðu, annar karl, hinn kona, þá hlýtur sá sem ræður einstaklinginn að láta huglægt mat sitt ráða. Það er bara eðlilegur réttur þess sem rekur fyrirtækið.
Að því sögðu þá er hins vegar greinilegt að í þessu máli hefur verið brotið á rétti konunnar - ekki vegna þess að hún er kona og reyndar líklega síst þess vegna - heldur vegna þess að hún er einfaldlega miklu hæfari (miðað er við óskeikulan fréttaflutning Íslenska útvarpsfélagsins) ef maður skoðar reynslu, menntun og fyrri störf. Það er það sem á að nota í þessu máli og það er raunar það sem hún hefur verið að halda fram eftir því sem ég kemst næst. Fjölmiðlar og kvenréttindakellur hafa hins vegar snúið þessu upp í eitthvað svona strákarámótistelpumstríð eins og í sex ára bekk og það verður allt í einu miðpunktur umræðunnar. Eins og það geri þessa ágætu konu eitthvað betri hæstaréttardómara að hún skuli ekki hafa kylfu og kúlur.
Bjössi greyið hefur líklega farið veggmegin fram úr rúminu í gærmorgun og vankast eitthvað við það.

Engin ummæli: