31. ágú. 2002

Búdapest
Er mjög falleg í myrkri. Kom á áfangastað um 23:30 í gærkvöldi. Fékk ekki farangurinn með frá Köben en það verður vonandi búið að kippa því í liðinn fyrir kvöldið. Er á leiðinn niður í bæ að redda hreinum nærum, bolum og sokkum. Hitt sleppur vonandi. Síðan er planið að skoða hinn víðfræga kastala sem er staðsettur í Búda sem er hinum megin við Dóná en ég er sem sé í Pest sem mér virðist að sé miklu stærri hluti af Búdapest. Hótelið er mjög fínt stúdentaráðstefnucenter með stórum herbergjum og góðu baðherbergi. Thad vantar reyndar ofna þar og hitinn er skammtaður eins og í gömlu austantjaldslöndunum. Gott í bili.

30. ágú. 2002

Búdapest
Flýg kl. 1315 í dag til Búdapest og verð þar til á laugardaginn 7. sept. Veit ekki hvernig netkaffimenningin er í Búdapest en vonast til að geta bloggað e-ð. Svo er auðvitað að skoða helstu perlur Búdapestar og synda fullur í Dóná (eða ekki). Þetta verður því ekki lengra í dag en það verður rosaleg ferðasaga þegar ég kem heim. Látið ykkur líða vel á meðan.

29. ágú. 2002

Greyið hann Sjonni...
...reynir á aumkunarverðan hátt að svara fyrir þögn sína. Hann gerir sér hins vegar ekki grein fyrir því að nákvæmlega sama röksemdafærsla á við um mína bloggun í sumar þannig að viðurnefnið á mig fellur um sjálft sig. Þá hugsar Sjonni með sér að hann hafi verið þögull miklu skemur. Á þessu tvennu er hins vegar miklu frekar stigsmunur en eðlismunur. Skv. því væri ég t.d. AUMINGJABLOGGARI á meðan Sjonni er bara aumingjabloggari. Síðan reynir hann að réttlæta þetta með því að hann hafi tilkynnt um fjarveru sína. Er þá maður sem segist ætla að fremja morð og gerir það síðan, ekki jafnsekur og sá sem gerir það í hita augnabliksins? Málið er auðvitað það að hann er miklu sekari. Hann ígrundaði brot sitt alvarlega og ætti því að þola þunga refsingu. Svör þín eru aumkunarverð Sigurjón og sæma ekki svo greindum manni. Reyndu nú að færa almennileg rök fyrir máli þínu eða settu skottið á milli lappana og ýlfraðu þig í svefn.

Dizzzzzz dagsinz í boði Geizlans
Dizz dagsins fellur á vesalings konuna sem kom fram í Kastljósinu í gær og kvartaði undan heilbrigðiskerfinu. Hún sagði raunarsögu sína og eiginmanns síns og var hún mjög átakanleg enda hefur þetta fólk verið utangátta í heilbrigðiskerfinu eins og flest fólk sem komið er af léttasta skeiði. Það sem var sorglegast var það að konan virtist engan vegin gera sér grein fyrir að það voru 130 kg sem héngu utan á henni sem orsökuðu heilsubrest hennar miklu frekar en umhirðan um manninn. Hann er sem sé með þann hræðilega sjúkdóm Alzheimer's og þarf mikla umhirðu. Af vorkunn við konunni ætla ég að láta hér staðar numið en tilgangurinn með skrifunum er sá að benda á þá hræðilegu staðreynd að fólk virðist lifa í afneitun um óheilbrigt líferni sitt og kennir alltaf kerfinu um hvernig er komið um fyrir því. Ekki verða svona fólk.

Boltinn
Mínir menn auðvitað að brillera á þriðjudagskvöldið. Ruud og Skærið komnir í gang og Beckurinn ætlar að byrja tímabilið vel líka. Svo er það auðvitað þessi O'Shea sem er snillingur. Annars lítið að frétta úr boltanum annað en Ingvar Jón var eitthvað að blaðra um að Eiður væri á leiðinni til MUFC fyrir 7M punda. Ekki mikill peningur fyrir Eið og þá hefði maður svo sannarlega afsökun til að kaupa sér treyjuna. Annars held ég reyndar að hann mundi bara daga uppi þarna. Ruud og Skerið halda honum utan við liðið og ég held hann meiki ekki að vera ekki í sviðsljósinu.

Búdapest
Keypti mér ferðahandbók um Búdapest í gær og gluggaði aðeins í hana. Líst vel á þetta allt saman. Búdapest er greinilega falleg borg og ég á eftir að hafa nóg að gera í að skoða mig um. Reyni að blogga eitthvað á meðan ég er úti - það hlýtur að vera internetkaffi í Búdapest. Læt þetta duga í bili.

27. ágú. 2002

Góðan daaag!

Dizzzzz dagsinz í boði Geizlans
Ég hef átt erfitt með að kyngja svolitlu hjá ofurverkfræðingnum og tölvunörranum Sjonna. Hann vælir heil ósköp yfir svívirðingum Viðars um að hann sé orðinn aumingjabloggari. Ég get svo sem alveg fallist á rök Sigurjóns að hann hafi tilkynnt fjarveru sína frá siðmenningarvélunum en það sem vefst fyrir mér er hins vegar hvernig Sigurjón greyið hefur getað svarað fyrir sig á tölvupósti án þess að hafa aðgang að tölvu (Ég hefði átt að fara í lögfræði). Kannski er Sjonni búinn að hanna einhverja leið til að senda tölvupóst án tölvu (sem væri þversögn aldarinnar). Æ æ Sjonni. Ertu kannski bara aumingjabloggari eftir allt saman.

Boltinn...
...byrjar að rúlla hjá okkur sunnudagsdrengjunum á sunnudagskvöldið nk. Við erum í sárum eftir að 18% okkar flúðu land en Viðar Páls stakk af til Amríku og Eiki fór til Hafnarfjarðar í Danmörku (Árósar). Hann Eiki greyið er nú reyndar ekki farinn eftir því sem ég best veit en Guðný var auðvitað lík sjálfri sér og reddaði honum íbúð á mettíma. Guðný komst sem sé að í Danmörku í læknisfræði. Til hamingju með það Guðný!! Góðar fréttir fyrir veikt fólk á Íslandi.

Enski boltinn...
... byrjaður að rúlla einnig og mun ég í vetur deila með ykkur réttum viðhorfum um þá ágætu afþreyingu. Þið ættuð því ef þið eruð á villigötum í áliti ykkar á enskri knattspyrnu, en eins og allir vita er sú iðja einungis stunduð á Old Trafford, að fylgjast með þessari síðu í vetur til að læra eitthvað gagnlegt.
Hvað varðar mína menn þá líst mér alveg ótrúlega vel á þennan O'Shea. Hann var bara kóngurinn á móti Chelsea og hafði Jimmy í vasanum á þeim köflum sem ég horfði á þetta. Ferguson ætti bara að róa sig með budduna og leyfa þessum gutta að spreyta sig aðeins.
Annars er einn leikmaður sem ég er farinn að halda alveg yfirnáttúrulega mikið upp á og það er Nicky Butt. Hann var að mínu mati einn af bestu mönnum Englendinga á HM í sumar, hann var algerlega snilldarlegur í desember á síðasta ári þegar United sneri 4 leika ósigurgöngu upp í 7 leikja sigurgöngu og svo er hann líka svona maður sem heldur kjafti í blöðunum. Það er einmitt þetta sem ég fíla við þessa rauðhærðu snillinga á miðjunni hjá United, Scholes og Butt, þeir láta bara verkin tala. Ekkert helvítis væl í blöðin. Þeir bara spila fótbolta. Ég vona eiginlega hálfpartinn að Ferguson missi Keane í leikbann vegna tæklingarinnar á Álfinn Haaland. Síðan væri fínt ef honum tækist ekkert að kaupa fleiri leikmenn og þá fær þessi írski snillingur O'Shea að spreyta sig aðeins. Þetta United-lið vinnur ekkert titilinn ef það er alltaf verið að kaupa einhverjar nýjar prímadonnur. Það er alveg nóg að eiga Beckham, Giggs, Keane og Veron. Snilldarlegasta uppstillingin væri auðvitað: Barthez í markinu, O'Shea og Ferdinand miðverðir, Silvestre og Brown bakverðir, Giggs á vinstri vængnum, Beckham hægra megin, Keane og Veron á miðju og Scholes og Nistelrooy frammi. Síðan væru Butt og Skærið tilbúnir á bekknum ef allt fer til andskotans og redda málunum. Það væri líka allt í lagi að hafa aðra systurina á bekknum ásamt Caroll og Stewart. Síðan væri hægt að hafa guttana til að fylla í skörðin ef einhver meiðist eins og Ferguson gerði þegar allir þessir snillingar voru að byrja.

Menning
Menningarnótt nýliðin hefur verið kollegum mínum Hauki Þór og Hjörleifi hugleikin og mæli ég með þeirra umfjöllun (kann ekki að linka á þetta drasl). Annars finnst mér þeir hafa misst af miklu ef þeir fóru ekki inn í verslun Eymundsson í Austurstræti þennan dag því þar spiluðu snillingarnir í Tríó Briggs. Þetta tríó skipa Árni Grímur bekkjarbróðir minn og vinur ásamt vinum sínum þeim Kolbeini TUMA og Óskari. Ég sá þá reyndar ekki á menningarnótt en var viðstaddur brúðkaup um helgina þar sem þeir léku undir matnum. Þetta var snilld hjá drengjunum. Þrátt fyrir að sums staðar heyrði maður að þeir voru ekki í góðri æfingu þá voru jass-útsetningar þeirra á lögum eins og "Hungry like a Wolf" og "Sísí fríkar út" alger snilld. Ég hef persónulega farið fram á að eignast upptökur með drengjunum en þær eru víst eitthvað af skornum skammti. Ég get hins vegar hlakkað til því ég hef haft spurnir af því að þeir muni spila í öðru brúðkaupi að 3 vikum liðnum og þar er ég einmitt boðinn. Að tónlistinni slepptri er nafn hljómsveitarinnar auðvitað snilld líka. Keep up the good work, drengir.
Sæl aftur!
Fyrsta skipti í marga mánuði sem aumingjabloggarinn bloggar tvo daga í röð. Það er náttúrlega ekki mikið að frétta síðan í gær. Fór reyndar á vakt á barnadeildinni í gær og fór í mínar fyrstu fæðingar (1 keisaraskurð og 1 klukkufæðingu). Síðan var náttúrlega ekkert að gera og maður bara tjillaði fram eftir kvöldi. Síðan bara heim í háttinn. Það er farið að styttast allsvakalega í að ég fari út og ég er orðinn svolítið kvíðinn. Ætlaði að finna heimasíðu hótelsins sem ég gisti á en það er ekki með slíka síðu eftir því sem ég kemst næst. Ætli það sé rennandi vatn þarna? Ef ekki þá safna ég bara úr Dóná og nota það til að baða mig. Nóg er víst af vatni í henni. Annars held ég að ég láti þetta gott heita í dag. Læt kannski bara heyra betur í mér seinni partinn.

26. ágú. 2002

Jæja tryggu lesendur, ég er kominn aftur!

Ég hef verið fremur mikill aumingjabloggari í sumar en hyggst ráða bót á því í vetur. Af mér er svo sem ekki mikið að frétta. Var að byrja í skólanum í dag og mun hefjast handa við að hrekkja börn á barnadeildinni næstu 6-7 vikurnar. Raunar hef ég hugsað mér að gera krakkagreyjunum þann greiða að draga mig í hlé eftir fyrstu vikuna og dvelja í 9 daga í hinni forkunnarfögru borg Búdapest. Ég er búinn að pakka björgunarbát og -vesti og fór á tveggja vikna námskeið í björgun úr vatni hjá slysavarnarskóla sjómanna. (Mamma reddar þessu í gegnum SVFLandsbjörgu) Ég er s.s. að fara til Búdapest að kynna niðurstöður verkefnisins sem ég hef verið að vinna í sl. ár. Síðan eru það auðvitað íbúðamál sem eru í svolítilli biðstöðu þessa daganna vegna mikilla anna hjá mér. Annars verður bloggið í dag tileinkað einni af fjórum mikilvægustu konum í lífi mínu. Sú fyrsta er auðvitað mamma gamla sem verður alltaf besta mamma í heimi, svo er auðvitað Edda Guðrún sem er kona sem ég hitti svona einu sinni í viku ef ég er heppinn með vinnuskemað, sú þriðja er bróðurdóttir mín Unnur Jónsdóttir Bergmann mín sem er krónprinsessan í fjölskyldunni og sú fjórða er hin glænýja og forkunnarfagra (ég meina hún er nú einu sinni Bergmann) Hekla María Óttarsdóttir Bergmann sem kom í heiminn seint í gærkvöldi að íslenskum tíma í IOWA í USA. Það gekk sem sé allt vel hjá Ótta bróður og Björku konunni hans. Þau fá endalausar hamingjuóskir frá Íslandi og ég skora á þau að senda okkur myndir á netinu hið fyrsta.

Læt þetta gott heita í bili og vona að þið látið sjá ykkur reglulega hér í vetur.

P.s. Par helgarinnar er síðan auðvitað Gummi og Ragna sem kinkuðu kolli við altarið í Háteigskirkju á laugardaginn. Glæsilegt brúðkaup hjá glæsilegu pari. Áhugasömum er bent á Brúðkaupsþáttinn Já annan þriðjudag (þ.e. 3. sept.) Til hamingju aftur Gummi og Ragna

28. júl. 2002

Jæja!


Það er eitthvað lítið að gera hérna á slysadeildinni í nótt. Skríllinn greinilega að hvíla lúin bein fyrir helgi verslunarmanna. Raunar er þetta eitt mesta rangnefni á helgi sem ég hef nokkurn tíma heyrt. Það eru bókstaflega allir í fríi nema verslunarmenn (og reyndar heilbrigðisstarfsfólk). Það ætti að kalla einhverju skárra nafni eins og t.d. unglingahelgin í ljósi þess að hver einasti unglingur sem bokku getur borið lætur veigar renna um kverkar sínar (og raunar allan líkamann að utan sem innan). Annars er ég mjög hlynntur þessari helgi. Gott tækifæri til að detta í það með stæl. Æ Æ er ég kannski bara að vinna um "verslunarmannahelgina"? Það verður síðan tekið á því í fyrrnefndri ferð Ferðafélags PAPA CHUCK og félaga sem verður farinn aðra helgi. Þá verður sko stuð.


Á föstudaginn nk. kemur til landsins víkingur mikill og landkönnuður er Gunnar öfugfætti heitir en hann hefur dvalið við sukk og svínarí á meginlandi Evrópu síðastliðna fimm mánuði eða svo. Er ég auðvitað búinn að sjá til þess að hann fá afar hlýlegar gúmmímóttökur á Keflavíkurflugvelli enda maðurinn með eindæmum grunsamlegur í útliti. En til að útskýra viðurnefnið þá hlýst það ekki einungis af því að Gunnar notar vitlausan fót til að sparka í leðurknetti heldur einnig vegna þess að hann getur bara skorað með réttum fæti. Það er því augljóst að himnafaðirinn er að reyna að koma einhverjum skilaboðum til Gunnars sem í linnulausu ölæði sínu skilur ekki upp né niður og reynir ítrekað að nota öfugan fót. Því hefur hann fengið viðurnefnið Gunnar öfugfætti.


Í gær var Viðar nokkur Pálsson með grillveislu og kíkti ég til hans við litla kátínu viðstaddra enda eru félagar mínir úr Garðahreppi farnir að gleyma mér vegna afburðaslakrar þátttöku í hittelsi hópsins síðustu misseri. Viðar hefur þó, eins og sönnum félaga sæmir, ekki gleymt mér og fær hann eina þökk fyrir boðið og aðra fyrir minnið. Eins og allir sem Viðar þekkja vita þá er heilinn í drengum eins og dótið sem hengt er í fjósloft til að flugur límist á það. Maðurinn man bókstaflega allt sem hann les. För U-HU-heilans er heitið vestur á bóginn en hann hyggst leita að fornum ritum í Kaliforníu, nánar tiltekið í Berkley. Þetta er auðvitað þekkt andófsmiðstöð og gaman verður að sjá hvort Viðari tekst ætlunarverk sitt að verða fyrsti hægrisinnaði sagnfræðingur sögunnar þrátt fyrir að læra þar sem mótmæli við allt og alla eru iðulega skipulögð. Annars er eftirsjá í honum Viðari. Nú muna Garðahreppsmenn sjálfsagt ekki eftir mér framar.


Af mér er allt gott að frétta. Mér hefur tekist að narra Eddu til að kaupa með mér íbúð og erum við að fara að þreifa fyrir okkur á kaupmarkaðnum á næstunni. Það verður greiðslumat og pakkinn í byrjun ágúst og síðan byrjum við að leita. Ég er spenntastur fyrir Vesturbænum og Hlíðunum en Edda vil endilega kaupa einhvers staðar út á landi t.d. Grafarvogi. Ætli við förum ekki milliveginn og kaupum í Fossvogi, Smáíbúðahverfi eða Ártúnsholti. Hlakka annars til vetursins. Ég má að öllum líkindum vinna á slysó eins mikið og ég kæri mig um (72 tíma í mánuði) og verður það kærkomið þegar afborganir af íbúð fara að hrannast upp. Síðan eru auðvitað mjög skemmtilegir kúrsar á 5. árinu, m.a. geð-, tauga-, kvenna-, barna- og augnlæknisfræði. Ég er eins og flestir vita svolítið heitur fyrir barnalæknisfræði enda trúi ég að menn eigi að pína þá sem eru í þeirra þyngdar- og/eða stærðarflokki. Síðan hefur sumarið opnað mér nýja sýn á bæklunarskurðlæknisfræði en eins og allir vita hef ég ekki verið spenntur fyrir skurðgreinum hingað til. Annars er mér sagt að ég hafi ekki réttu eiginleikana í þetta fag, menn verða víst að vera jafnsterkir og górilla en ekki meira en tvöfalt greindari. Því miður uppfylli ég bara annað skilyrðið.


Að lokum ætla ég að fagna tveimur yndislegustu fréttum sumarsins. #1 Rio kominn til MUFC, maðurinn er náttúrlega snillingur og hverrar krónu virði. #2 Það er búið að selja greppitrýnið til Blackburn og ætti vinur minn og nafni Magnús Gísli að vera glaður og kátur þessa daganna enda hefur hatað fátt meira um dagana en Andy Cole og Dwight greyið Yorke. Til hamingju Maggi.


KK Gísli BB


P.S. Blökkumennirnir hjá UNITED verða sífellt hvítari sbr. Rio og Wes
Jæja!

Í fyrsta skipti í marga mánuði er stund milli stríða í vinnunni til að blogga svolítið. Af mér er lítið að frétta annað en vinnan, svefninn og sumarið. Boltinn hefur meira að segja setið á hakanum og hef ég aðeins mætt í fimm leiki Ástarinnar í sumar og fengið að líta eitt rautt spjald, þrjú gul (þar af tvö fyrir kjaft) auk þess sem ég hef skorað 3 og lagt upp önnur 3. Þetta hefur þó verið fremur rýrt hjá okkur riddurum Ástarinnar.

Vinnan er fín og í fyrsta skipti síðan ég var í sveit sem ég hef kynnst alvöru vinnu með hamagangi og látum og hinum yndislega þreytusvefni eftir vaktirnar. Þetta er sem sé mjög fínt. Plan sumarsins það er sem eftir er liggur fyrir. Vinna og sumó um verslunarmannahelgi. Ferðaklúbbur Papa Chuck skoðar Austurland helgina þar á eftir. Síðan er vinnuhelgi og loks kemur síðasta vinnutörnin sem líkur föstudaginn 23. ágúst og síðan er brúðkaup þann 24. ágúst hjá Rögnu megabeibi og Gumma körfunörra. Síðan er það bara vinna og svefn inn á milli. Byrja að blogga aftur af krafti í haust.

KK Gísli BB

12. jún. 2002

Jæja! Það er komin vika síðan ég skrifaði síðast og mikið búið að gerast.

Verkefnið
Var á Ísafirði um síðustu helgi á Ársþingi íslenskra lyflækna þar sem ég kynnti niðurstöðurnar úr rannsóknarverkefninu mínu. Síðan var auðvitað drukkið hressilega að hætti innfæddra á Ísafirði.

Boltinn
Vá, hvað spáin mín var mikið bull. Ég hreinlega skeit á mig í þessu. Frakkar og Argentínumenn farnir heim en ég áleit þetta tvær sigurstranglegustu þjóðirnar. Það er ljóst að knattspyrnan í heiminum er á hraðri uppleið því nú eru þjóðir frá öllum heimsálfum að blanda sér í baráttuna. Meira að segja Bandaríkin eiga góðan séns á að komast upp úr sínum riðli. Ég held nú samt að í ljósi þess að Frakkar og Argentínumenn eru farnir heim þá verði það Brassar og Ítalir sem spili til úrslita eins og 1994 og aftur munu Brassarnir taka þetta.

Riðlar
A-riðill Danir og Senegalar (staðfest)
B-riðill Spánn og Paraguay (staðfest - þetta var rétt hjá mér)
C-riðill Brasilía og Tyrkland
D-riðill Portúgal og Bandaríkin
E-riðill Þýskaland og Írland (staðfest)
F-riðill Svíþjóð og England (staðfest)
G-riðill Ítalía og Mexíkó
H-riðill Japan og Rússland

16-liða úrslit (sigurvegarar skáletraðir)
Þýskaland : Paraguay
Danmörk : England
Svíþjóð : Senegal
Spánn : Írland
Ítalía : Bandaríkin
Brasilía : Rússland
Japan : Tyrkland
Portúgal : Mexíkó

8-liða úrslit:
Danmörk : Brasilía Brassarnir vinna en naumt þó
Þýskaland : Ítalía Ítalirnir taka þetta 1-0 að hætti hússins
Spánn : Portúgal Spánverjar vinna en það verður fullt skorað 2:3 eða 3:4
Senegal : Japan Senegal vinnur 2:1

Undanúrslit:
Ítalía : Spánn Ítalía vinnur 3:2
Senegal : Brasilía Brasilía vinnur 4:1 (Ronaldo með þrennu)

Úrslit:
Brasilía : Ítalía Brasilía vinnur 3:1

4. jún. 2002

Skólinn & Vinnan & Lífið
Jæja!! Ritgerðinni skilað í gær og líklega er ég home-free á fimmta árið. Það er ágætt að vera bara kominn í sumarfrí og byrjaður að vinna. Maður vinnur ca. 4 12 tíma vaktir í viku sem þýðir að maður vinnur aðra hverja helgi (þ.e. fö-sun) og 2-3 daga í miðri viku. Ég er einmitt í fríi um næstu helgi og ætla mér að vera á mörgum stöðum í einu. Ég fer til Ísafjarðar á föstudagsmorgunn á árlegt málþing lyflækna og mun flytja þar erindi á laugardagseftirmiðdag kl. 14.00. Síðan verður flogið í bæinn um kl. 16 beint í útskriftina hjá spúsunni sem var að brillera í skólanum í vor og fékk m.a. 9,0 fyrir lokaverkefnið sitt. Frábær árangur!! Það verður náttúrlega djammað en Edda hefur lofað að djamma ekki eins hressilega og við stúdentsútskriftina sína sem var víst skrautleg.

Boltinn
Þetta er búið að vera fín heimsmeistarakeppni til þessa og rétt í þessu var ég að ljúka við að horfa á Japan-Belgía. Fínn leikur og ég var hissa á hvað Japanirnir voru skemmtilegir. Þetta var bara sambabolti á köflum hjá þeim. Vona að þeir skilji leiðinlegt lið Belga eftir og fari upp með Rússunum. Síðan voru það auðvitað Brassarnir sem voru frábærir en unnu samt á dómaraskandal og voru í þokkabót með leiðindaleikaraskap og væl. Rivaldo átti náttúrlega að fá gult spjald fyrir leikaraskap en mér fannst reyndar rétt hjá dómaranum að gefa Tyrkjanum gult, sem var hans annað gula spjald og því rautt. Hann nelgdi nátturlega boltanum í Rivaldo og það er bara árás. Annars var þetta skemmtilegur leikur og frábær mörk. Það er aðeins farið að koma mynd á þetta og eftir næstu umferð getur maður farið að spá aðeins meira í hverjir fara upp. Ég vona að Danir og Senegalar skilji Frakkana eftir. Það er ekki gott fyrir hrokagikki eins og þá að vinna of mikið á stuttum tíma. Ég vona að þeirra tími sé liðinn í bili. Eftir að hafa fylgst með þessum með hálfu auga í ritgerðarsmíðunum held ég að Ítalía og Argentína eigi eftir að fara langt. Ég spái því að Danir verði spútnik lið keppninnar og fari a.m.k. í undanúrslit. Brassarnir gætu farið langt og ef þeir vinna riðilinn sinn mæta þeir raunar Dönum í 8 liða-úrslitum að því gefnu að Danir vinni A-riðilinn. Það er því í rauninni vont fyrir Brassana hvernig sem fer því þeir lenda sennilega alltaf á móti sterku liði úr A-riðli í 8-l-úrsl. Annars eru Portúgal og Rússland einu sterku liðin sem maður á eftir að sjá og svo er náttúrlega S-Kórea sem hefur verið að gera frábæra hluti að undanförnu og voru rétt í þessu að fífla Pólverja með fyrsta markinu í leik þessara liða. Ég vona að Japan og S-Kórea fari langt, það er gott fyrir knattspyrnuna að fá breidd í þetta og Asía og Afríka verða að koma sterkari inn á næstu árum til að halda lífi í þessu. Það er náttúrlega frekar súrt að aðeins 7 þjóðir hafi nokkurn tíma unnið HM og allar frá S-Ameríku eða Evrópu.
Hér er spá til loka.

Riðlar
A-riðill Danir og Frakkar upp
B-riðill Spánn og Paragvæ
C-riðill Brasiía Tyrkland
D-riðill Portúgal og S-Kórea
E-riðill Þýskaland og Kamerún
F-riðill Argentína og England
G-riðill Ítalía og Mexíkó
H-riðill Rússland og Japan

16-liða úrslit (sigurvegarar skáletraðir)
Þýskaland : Pargvæ
Danmörk : England
Argentína : Frakkland
Spánn : Kamerún
Ítalía : S-Kórea
Brasilía : Japan
Rússland : Tyrkland

8-liða úrslit:
Danmörk : Brasilía Brassarnir vinna en naumt þó
Þýskaland : Ítalía Ítalirnir taka þetta 1-0 að hætti hússins
Spánn : Portúgal Portúgalar vinna en það verður fullt skorað 2:3 eða 3:4
Argentína : Tyrkland Argentína vinnur 5:1 eftir að Tyrkir missa 2 menn út af

Undanúrslit:
Ítalía : Portúgal Ítalía vinnur 3:2
Argentína : Brasilía Þetta verður leikur keppninnar fyrir mig því ég held með þessum tveimur liðum og það er ómögulegt að segja hver vinnur og mér er alveg sama. Ég held samt að Argentínumennirnir eigi meiri sjens á að vinna Ítalina.

Úrslit:
Argentína : Ítalía Argentína verður meistari sem væri frábært
eða
Brasilía : Ítalía Ítalía verður meistari sem væri líka allt í lagi því Ítalirnir eru að spila miklu skemmtilegri bolta en undanfarin ár.

31. maí 2002

Jæja! Langt síðan síðast en samt verð ég að hryggja ykkur tryggu lesendur með því að þetta verður stutt í dag.

Boltinn
Það er ljóst að HM spá Ljós-Gíslans er hrunin eftir tap Frakka gegn Senegölum í morgunn. Ég ætla nú samt að halda mig við hverjir fara upp úr riðlinum. Það verða Danir og Frakkar.

Vinnan
Það var samið um okkar kjör í gær og því lítur allt út fyrir það að ég sjái ekki mikið af HM-leikjum, en þó eitthvað. Ég átti að mæta til vinnu á morgun laugardag en einn kollegi minn sem er að læra í Danmörku var svo yndislegur að skipta við mig um vakt og því er ljóst að ég hef laugardaginn til að fínpússa ritgerðina. Henni á svo að skila á mánudag og þá er ég formlega búinn að ljúka við 4. árið og má loks fara að praktisera sem læknir út um allt ef mér þóknast svo. Ég ætla nú að láta Slysadeildina duga í sumar. Látum þetta gott heita í bili, heyrumst

28. maí 2002

Skólinn
Jæja, það var sem betur fer verið að framlengja skilafrestinn á ritgerðinni sem ég átti að skila fyrir hádegi á föstudag, fram yfir helgi þannig að ég get andað léttar. Þetta var allt að fara í vaskinn hjá mér. Maður er á fullu á einhverju námskeiði í endurlífgun (það er eitt af þessum námskeiðum í læknisfræði sem maður getur ekki bara sofið á og flett síðan upp ef eitthvað kemur upp á) sem er reyndar mjög gaman. Það verður próf á morgunn þannig að maður verður að renna yfir vinnureglurnar í kvöld og kíkja svo á æfingu svo maður hlaupi ekki í spik. Adrenalín, atropín, amiodaron ... það byrja öll þessi helvítis lyf á A-i svo maður verður að vera ferskur í þessu.

Vinnan
Eins og flestir eru líklega búnir að frétta ætlaði ég að vinna á Slysó í sumar en nú hafa læknanemar sem ætluðu að starfa á sjúkrahúsum í sumar ákveðið að mæta ekki til vinnu vegna vanefndra loforða um launahækkun.
Spítalinn var svo rausnarlegur að svíkja ekki aðeins loforð um launahækkun heldur ákvað síðan Geiri feiti í fjármálaráðuneytinu einhliða að lækka okkur um 5% í viðbót. Við eigum því að vera á 75% af þeim launum sem aðstoðarlæknarnir við hliðina á okkur í sömu vinnu fá í stað þess að fá 90% eins og okkur hafði verið lofað. Fólk réði sig sem sé á þessum forsendum og margir afþökkuðu vinnu sem hafði annars betri launakjör til þess að öðlast reynslu inni á spítölunum.
Það er reyndar ágætt að venjast bara strax nauðgunartilraunum ríkisins í launamálum heilbrigðisstarfsmanna. Það er náttúrlega engu lagi líkt að fólk með 6 ára háskólanám á bakinu slefi ekki yfir 200 kallinn í grunnlaun fyrr en hann er kominn með 2-3 ára starfsreynslu. Síðan er viðskiptafræðinemar sem hafa verið kannski 6 ár að klára það sem á að vera 3 að setja 300 kallinn í vasann við fyrstu mánaðarmót eftir útskrift. Maður er náttúrlega klikkaður að velja sér þennan starfsvettvang. Ég veit að þið haldið örugglega flest að læknar hafi það rosa gott en ég get alveg sagt ykkur að þegar ég verð 65-70 ára langar mig ekkert að vera að taka 3-4 sólarhrings- og helgarvaktir í mánuði. Mig langar til að eiga sumarhús á Kanarí og vera þar í 3 mánuði á ári.
Þannig er þetta nú samt í dag, menn komnir af léttasta skeiði farnir að taka vaktir þar sem allt getur gerst og maður sér nú fyrir sér að þegar einn hjartasjúklingurinn er að reyna að bjarga öðrum þá hljóti það að enda með tveimur hjartasjúklingum sem þarf að bjarga.
Ef einhver þarna úti ætlar í læknisfræði fyrir peningana er hann alvarlega brenglaður í hausnum. Það eru nefnilega engir peningar í heilbrigðiskerfinu, þeir eru allir farnir í klósettið í dómsmálaráðuneytinu, ljót háskólahús, laun fyrir hæfileikalausa listamenn og endalaus umhverfismöt á öræfum sem eru svo langt fyrir utan seilingu manna að þessi 90% umhverfisverndarsinna sem aldrei hafa komið út fyrir 101 geta ekki einu sinni bent þér á það á korti. Ég meina þeir gátu ekki einu sinni x-að við listabókstafinn á kjörseðlinum for crying out loud! “Ha! Vinstri grænir. En það er ekkert Vaff á seðlinum”. Sem betur fer er þetta lið í minnihluta.
Ég er nú ekki mikill náttúruníðingur og finnst Ísland fallegt en ég vil nú frekar sökkva einhverjum öræfum (ég meina vatn er nú líka fallegt) svo fólk geti lifað af þarna fyrir austan en að fá allt þetta lið hérna til Reykjavíkur.. Hún er alveg nógu stór fyrir. Kárahnjúkar verða Kárahólmar, eða Káranes eða hvað þið viljið kalla þá. Vá hvernig komst ég hingað: úr vinnunni austur á land á 80 sek. Hættur í bili, heyrumst.
HM-spáin (2 riðlar í dag)
G-riðill
Hér spila Ítalía, Króatía, Mexíkó og Ekvador. Þetta verður örugglega svolítið skemmtilegur riðill en hann á örugglega eftir að líða fyrir það að sterkasta liðið í honum, þ.e. Ítalía, spilar líklega leiðinlegasta boltann. Maður vonar þó að leikmenn eins og Del Piero, Totti og Fiore geti dregið þetta varnarsinnaða lið aðeins fram á völlinn og sýnt skemmtileg tilþrif. Ég held það sé ekkert vafamál að Ítalir taka þennan riðil en þeir gætu alveg misst stig á móti annað hvort Króötum eða Mexíkóum. Það veltur allt á því að þessi minni lið skori á undan og dragi þannig Ítalina framar á völlinn og opni leikinn. Ég held að þessi lið vinni öll Ekvadorana þannig að keppnin um 2. sætið verður á milli Króatíu og Mexíkó. Ég vona að Króatía vinni en spái Mexíkönum sigur því þeir eru að ég held í betri leikæfingu. Ég hef ekkert séð af Ekvador en ég held að þeir ríði ekki feitum hesti frá þessum riðli. Spáin er því þannig
Ítalía 7-9 stig
Mexíkó 6 stig
Króatía 3-4 stig
Ekvador 0 stig
H-riðill
Þetta er trúlega langslakasti riðill keppninnar á pappírunum en samt eru hér nokkur a.m.k. þrjú lið sem gætu alveg komið á óvart. Þetta eru Belgía, Rússland og Japan en Túnisbúar eru síðan með fjórða liðið. Belgar eru með reynslumikið lið og svona gutta eins og snillinginn Emile Mpenza inn á milli. Rússar tóku Frakkana á Stade de France nú fyrir skömmu og gætu alveg komið á óvart og Japan er auðvitað á heimavelli og eiga á að skipa mjög teknískum og fljótum leikmönnum. Ég held hins vegar að Túnisbúar fái max eitt stig úr riðlinum en líklega ekki neitt. Spái því að Belgar verði efstir eftir jafntefli við Rússa og sigra gegn Japan og Túnis. Rússarnir fá 5 eftir jafntefli við Belga og Japan en sigur gegn Túnis. Japanirnir enda svo í 3ja sæti eftir sigur á Túnis.
Belgía 7 stig
Rússland 5 stig
Japan 4
Túnis 0

Pólítíkin
Ég flyt í Kópavoginn!!! Ég vil ekki láta skollótta og illa lyktandi Holræsarottu taka mig í rassgatið meðan gerpið hann Stebbi þjóðarsál horfir á og heillar gömlu konurnar sem síðan skrifa lesendabréf í moggann yfir aðförunum.

25. maí 2002

Boltinn
Ástin átti fyrsta leikinn í bikarnum í dag og auðvitað stóðum við uppi sem auðveldir sigurvegarar gegn ungu liði Nings. Það var þó lengi framan af í fyrri hálfleik sem lítið gekk og það var ekki fyrr en undir lok hálfleiksins sem Helgi átti glæsilega stungusendingu á fjærstöng sem undirritaður afgreiddi í netið enda lítið annað hægt að gera eftir svo frábæra sendingu. 1-0 Þannig var sem sé staðan í hálfleik en það var skammt liðið af seinni hálfleik þegar Helgi átti frábæran sprett upp að endamörkum hægra megin og setti hann út í teiginn þar sem ofurmiðjumaðurinn Bertus Maximus var. Hann kláraði með glæsilegum snúningsbolta í fjærhornið. 2-0 Fyrsta mark Bertans fyrir Ástina og nú var hún komin í gang. Skömmu seinna tók Eiki eina af sínum baneitruðu aukaspyrnum utan af hægri kanti og hún virtist við fyrstu sýn vera fremur slöpp en Helgi gafst ekki upp og keyrði kollinn í knöttinn og inn fór hann úr þröngu færi. 3-0 Síðan var aftur komið að Eika að leggja upp þegar hann komst í ákjósanlegt færi en kaus þess í stað að leggja hann út á undirritaðan sem stóð fyrir opnu marki og þurfti bara að renna honum í netið. 4-0. Síðan náðu Nings að klóra í bakkann eftir sjaldséð mistök Örvars sem annars átti frábæran leik á miðjunni. 4-1. Síðan var það Helgi sem setti fimmta naglann í kistuna með baráttumarki. Eiki hafði lent í návígi á miðjunni og setti boltann hátt í loft upp. Varnarmenn Nings hikuðu og Helgi var ekki lengi að notfæra sér það og setti boltann örugglega í netið. 5-1. Glæsileg úrslit og maður leiksins að mínu mati Helgi sem átti tvær glæsilegar stoðsendingar og tvö góð mörk. Annars voru Jón og Þór traustir og Eiki, Berti og Örvar góðir á miðjunni. Helgi var frábær í framlínunni og hreint frábært að spila með svo góðum leikmanni.

Síðan er það HM-spáin og það er F-riðill í dag:
F-riðill
Hér er komið að dauðariðlinum með fjögur firnasterk lið. Ég held nú samt að Argentínumenn klári þennan riðil með fullt hús stiga enda eitt allra besta lið veraldar í dag. Englendingarnir eru svolítið skrýtnir og geta ýmist verið frábærir eða ömurlegir. Ég ætla nú samt að vera bjartsýnn og spá þeim öðru sætinu með 4 stig. Þeir vinna Nígeríu og gera jafntefli við Svía. Svíarnir tapa svo fyrir Nígeríumönnum og lenda neðstir en sú spá er fyrst og fremst vegna þess að ég vona innilega að Svíarnir sitji á botninum í riðlinum. Lokaspáin er því:
Argentína 9
England 4
Nígería 3
Svíþjóð 1

Pólítíkin
Kosningadagur og svartur dagur í sögu borgarinnar. Holræsa-Solla á örugglega eftir að taka þetta og ríða borgarbúum í rassinn með risastóru skatta-strap-onni næstu fjögur árin. Snökt og tár.
Boltinn
Nú er fyrsti utandeildarbikarleikurinn á morgunn. Ástin mætir þá liði Nings sem ég ímynda mér að séu einhverjir velunnarar staðarins. Það verður auðvitað tekið í þessa menn og þeim kennt hvernig á að spila fótbolta. Ástin sigrar allt!!!

Síðan er það HM-spáin og það er E-riðill í dag:
E-riðill
Það eru Írland, Kamerún, Þýskaland og Sádi Arabía sem mætast hér. Ég veit ekki með Írana án Keane. Þeir eru svolítið skrýtnir á stundum og geta í raun gert hvað sem er. Þeir skildu Hollendingana eftir í undanriðlinum en töpuðu síðan fyrir Suður-Afríku heima um daginn. Ef Keane verður með þeim þá fara þeir upp úr riðlinum ásamt þýska stálinu en annars held ég að Sádarnir fari með þeim. Það er því spá mín eins og staðan er í dag (þ.e. Írarnir án Keane) þá taka Þjóðverjarnir alla leikina í riðlinum Sádarnir gera jafntefli við Íra og vinna Kamerún og Kamerún nær jafntefli á móti Írum. Þetta verður því lokastaðan ef Keane er ekki með:
Þýskaland 9
Sádi Arabía 4
Írland 2
Kamerún 1
Ef Keane verður með fer þetta hins vegar svona
Þýskaland 7
Írland 5
Sádí Arabía 2
Kamerún 1

Pólítíkin
Helvítið hún Holræsa-Solla virðist ætla að gabba saklausa Reykvíkinga enn einu sinni. Það var nú ekki beysin frammistaðan hjá honum Bingó-Bjössa í sjónvarpinu í kvöld. Ólafur F. Magnússon var í raun sá eini sem óx eitthvað í áliti hjá mér en þó ekki mikið (hver er munurinn á skít og kúk?). Annars hef ég á stefnuskránni að gráta mig í svefn á morgunn þegar R-listinn hefur fengið 9 borgarfulltrúa gegn 6 mönnum D-lista og djöflast síðan við að finna mér íbúð í Kópavogi eða Garðabæ þangað sem allt hitt gáfaða fólkið virðist vera flutt. Þar kunna skattborgararnir alla vega að reikna enda sýndi það sig að Reykjavík var lægst sveitarfélaganna á Stór-Reykjavíkursvæðinu í nýafstöðnum samræmdum prófum í stærðfræði ef ég skildi fréttina í dag rétt. Sjáumst á kjörstað á morgunn og x-um rétt.

24. maí 2002

Pólítík
Sá mér til mikillar gleði tvo þætti í kvöld í imbanum. Sá fyrri var Ísland í dag eða hvað það nú heitir Kastljósið á Stöð2. Þar voru oddvitar flokkanna í Kópavogi á grillinu. Það er skemmst frá því að segja að þvoglumæltu þumbararnir úr meirihlutanum, þeir Sigurður Geirdal aftursóknarmaður og Gunnar Birgisson LÍN-klumpur tóku vinstri greyin og skeindu sér á þeim. Við lok þáttarins var Flosi greyið Eiríksson, sem mér hefur hingað til þótt bara sæmilega lítið takmarkaður miðað við að vera vinstri maður, orðinn alveg hjartanlega sammála meirihlutanum um flest allt þrátt fyrir að hann kæmi því að að hann ætti auðvitað hugmyndina að þessu öllu saman. Mér fannst þeir fóstbræður alveg ótrúlega skýrir (ath. ekki skýrmæltir þó) í svörum og gátu einfaldlega hrakið allt sem vinstri mennirnir létu út úr sér.
Seinni þátturinn var alvöru Kastljós þar sem fjallað var um bæjarmálin í Akureyrarbæ og þar voru samankomnir líklega þrír heimskulegustu stjórnmálaleiðtogar veraldarinnar, einn frá Samsuðusullinu, annar frá frá vinstri vitgrönnum og sá þriðji frá svokölluðum Akureyrarlista. Það kom bara ekki orð af viti upp úr þeim greyjunum. Síðan var greyið hann Jakob Björnsson sem var einu sinni efnilegasti framsóknarmaðurinn en er núna hálfútbrunninn greyið. Hann var nú samt furðulega góður og mun skárri en þessir framsóknaraumingjans aumingjar sem sitja í gluggunum svokölluðu í krambúllu Holræsa-Sollu. Síðan var Kristján Júlíusson sem var bara nokkuð góður og kjaftfor. Það er alveg frábært ef það fæst ekki annað en þessi grey til að leiða lista vinstri greyjanna út á landi því þá getur ekki verið mikið af fólki sem kemur í landsmálin hjá þeim.
Ég hlakka til að sjá hvernig þetta fer á laugardaginn og hvernig sem það fer þá vona ég að Gísli Marteinn komist inn. Hann er framtíðarmaður í forystusveit D-listans í borginni og í honum held ég að loksins sé kominn maður sem gæti kannski komist með tærnar þar sem Davíð hefur hælana. Síðan vonar maður bara að frjálslyndir taki sætið af Holræsa-Sollu þó það sé kannski ekki skárra að fá hann Óla-klöguskjóðu í staðinn. Munurinn á þeim er bara sá að það verða allir búnir að sjá í gegnum Óla litla eftir 4 ár en Solla er miklu slóttugri og gæti gabbað fólk í nokkur ár í viðbót.
Það magnaðasta við þessa kosningabaráttu hefur verið það sem ég kalla persónudýrkun á Skalla-Sollu. Alltaf þegar maður segi vinstrimanni/-konu að maður ætli að kjósa D, þá segja þau. Ekki viltu frekar hafa Björn sem borgarstjóra en Ingibjörgu Sólrúnu. Málið er bara það að mér er alveg sama hver er borgarstjóri. Þetta er bara flott á CV-inu. Aðalatriðið er að kjósa ábyrga einstaklinga sem maður treystir að laga skuldastöðu borgarinnar og ef valið stendur milli Orku-Alfreðs, Súkkulaði-Stefáns, Dags-Komma og Holræsa-Sollu annars vegar og Gísla Marteins, Björns, Ingu Jónu og félaga þá treysti ég þeim síðastnefndu betur. Látum þetta gott heita í bili.

23. maí 2002

Bekkurinn
Við vorum í sumarbústað í gærkvöldi þar sem Emmi beitti þeirri frægu aðferð að dýptarmæla ár með andlitið á undan. Hann fékk nokkra skurði karlinn en er að mestu heill á húfi og talið er að sár hans muni gróa áður en hann kvænist. Síðan fékk Sigurdís ókeypis fataþvott frá undirrituðum og Árna Grími en við gleymdum víst að færa hana úr fötunum fyrst þannig að það var ekki mikil kátína í herbúðum unglingsins. Síðan var auðvitað vakað fram eftir og drukkið hressilega. Annars var þetta fremur fámenn ferð en það var þrumustuð og þeir slappir sem ekki mættu. Kolla sagði fallegar sögur frá veru sinni í Venezuela og við grétum öll í kór. Síðan var fólk auðvitað í gegnsæara lagi í morgunsárið en það fór að hýrna yfir fólkinu upp úr hádeginu og allir búnir að yfirgefa pleisið um 13-leytið til að fara í ritgerðarsmíð á heimavelli.

Boltinn
Búið að reka Keane heim. Alger synd að besti afturliggjandi miðvallarleikmaður heims skuli ekki vera á HM en hann átti svo sem skilið að fá spark upp í sigmoid-colon eftir ummæli sín í fjölmiðlum. Svona er lífið, það borgar sig að þegja bara og brosa eins og Ingvar.
Síðan er það HM-spáin og það er D-riðill í dag:
D-riðill
Hér mætast Portúgal, Pólland, Suður-Kórea og Bandaríkin. Það getur held ég allt gerst í þessum riðli því S-Kórea og Bandaríkin eru landslið á uppleið en Portúgal og Pólland eru lið sem hafa verið að rokka svolítið í getu. Ég held nú samt að Portúgalirnir taki riðilinn með því að vinna S-Kóreu og Bandaríkin og gera jafntefli við Pólverja. Pólverjarnir gera síðan jafntefli við S-Kóreu og vinna USA en S-Kórea og USA gera jafntefli. Lokastaðan ætti skv. því að vera...
Portúgal 7
Pólland 5
S-Kórea 2
Bandaríkin 1

22. maí 2002

Ástin...
...hélt sína fyrstu æfingu eftir stórsigur mánudagsins í gærkvöldi og verður að viðurkennast að líklega hefur leikurinn setið talsvert í mönnum því aðeins 5 leikmenn sem tóku þátt í leiknum mættu. Síðan létu Hörður, Berti og Örvar sjá sig þrátt fyrir að hafa verið hafðir að háði og spotti fyrir lakar afsakanir fjarveru sinnar úr leiknum. Síðan var gleðilegt að sjá ungan og sprækan mann sem greinilega hafði heillast af áferðarfallegum leik Ástarinnar á mánudaginn. Það er skemmst frá því að segja að hann var sægnaður á staðnum og mun styrkja lið Ástarinnar umtalsvert því hann hefur verið einn allra besti leikmaður liðs læknanema sem síðastliðinn vetur stóð uppi sem sigurvegari í hinni geystisterku Háskóladeild. Þessi ungi maður heitir Örvar og spilar helst á miðju eða kanti og nú held ég að Ástinni séu allir vegir færir í sumar. Við rúllum upp þessari aumu deild.

Boltinn
Þá er enn einn Liverpoolvæskillinn búinn að heltast úr lestinni en Danny litli Murphy var að meiða sig í gærkvöld. Það gæti farið svo að bara Michael Owen spilaði á HM úr þessu Liverpool-liði (fyrir England þ.e.a.s.) sem er fínt vegna þess að hann er langskársti leikmaður liðsins. Ég verð þó að viðurkenna að ég væri alveg til í að hafa Gerrard sem þriðja varamann fyrir Butt (Hargreaves nr. 2).
Síðan er það HM-spáin og það er C-riðill í dag:
C-riðill
Það eru sem sé Brasilía, Tyrkland, Kosta Ríka og Kína sem etja kappi í þessum riðli. Ég vona að Brassarnir nái að stilla sig saman og taki þennan riðil með fullt hús og ég held að Tyrkirnir eigi eftir að taka 2. sætið. Það er síðan spurning hvernig leikur Kosta Ríka og Kína fer en ég held að Kínverjarnir séu á uppleið og spái þeim 3. sætinu.
Brasilía fær 9 stig, Tyrkland 6, Kína 3 og Kosta Ríka 0.

21. maí 2002

Ástin...
...lék sinn fyrsta leik í Utandeildinni í ár í gærkvöld og stóð auðvitað uppi sem auðveldur sigurvegari gegn öldruðu liði Krikketfélagsins Goza. Leikurinn endaði 4-1 og Það voru fyrst og fremst föst leikatriði sem voru Ástinni hliðholl í þetta skiptið en það hefur einmitt verið einn slakasti þátturinn í leik Ástarinnar undanfarin ár. Þetta er því mjög jákvætt. Leikurinn hófst með látum af hálfu Ástarinnar og það má eiginlega segja að Gozarnir hafi ekki einu sinni fundið lyktina af Ástarinnar framan af fyrri hálfleik. Ástin fékk hins vegar fá færi og menn komu augljóslega sendingaryðgaðir undan vetri. Það var þó ekki að sjá ryð í glæsilegri aukaspyrnu Eika bleika utan af hægri kanti þegar um stundarfjórðungur var af leiknum. Hann sendi hnitmiðaða aukaspyrnu beint á kollinn á nýliðanum Helga sem setti boltann alveg út við fjærstöngina. Óverjandi. Gozarnir lifnuðu við þetta og áttu þrjú skot í rammann í fyrri hálfleiknum en staðan var 1-0 í hálfleik. Í upphafi síðari hálfleiks fengum við síðan óbeina aukaspyrnu á markteig og Jón Þorkell setti boltann hnitmiðað í mitt markið eftir sendingu undirritaðs. Það var síðan komið að Gozum að minnka muninn með augljósu rangstöðumarki en dómarinn sem virtist á bandi Gozanna á þessum tíma í leiknum lét markið standa. Ástin endurgalt þó markið skömmu seinna eftir glæsilega sendingu Odds inn fyrir vörnina og undirritaðir þurfti lítið að gera annað en að klára, sem hann og gerði. Það var síðan Árni Pneumo sem setti punktinn yfir i-ið með glæsilegri afgreiðslu á enn einni snilldaraukaspyrnu frá Eika bleika. Að lokum er komið að vali á manni leiksins sem að mínu mati var Jón Þorkell sem kórónaði frábæran leik sinn í vörninni með marki í seinni hálfleik. Það voru hins vegar margir sem stóðu sig mjög vel og vil ég þar sérstaklega nefna Eika, Þór, Odd og Helga auk þess sem Sverrir var traustur í markinu.

Boltinn
Það er lítið að frétta af boltanum annað en það að hálfvitarnir í Liverpool hættu við að kaupa Anelka sem þýðir að Ferguson er kominn með þá flugu í höfuðið að kaupa viðrinið. Ég vona að honum takist það ekki, ég þoli ekki persónu Anelka innan vallar þrátt fyrir að hann sé sæmilega góður í að sparka bolta. Ég skil bara ekki þennan mikla áhuga á manni sem skoraði ekki nema 5 mörk fyrir Liverpool í næstum 30 leikjum (að ég held).
Síðan er það HM-spáin og það er B-riðill í dag:
B-riðill
Í þessum riðli eru Spánn, Slóvenía, Paraguay og S-Afríka. Það er einlæg von mín að Spánverjarnir blómstri einu sinni því þeir geta hleypt þessari HM upp í skemmtilega keppni ef þeir velgja stóru fótboltaþjóðunum undir uggum. Ég spái því að loksins smelli þetta almennilega hjá þeim og þeir taki fullt hús úr riðlinum. Ég held að það sé engin spurning að S-Afríka botni þennan riðil en þeir gætu tekið stig af bæði Paraguay og Slóveníu. Ég held raunar að keppnin um 2. sætið standi fyrst og fremst á milli Sló. og Par. og það lið sem vinnur innbyrðis fer upp úr riðlinum. Ég spái því svona:
Spánn fær 7-9 stig í fyrsta sæti, Paraguay fær 4-6 stig í annað sætið og Slóvenía verður með 3-4 í þriðja. S-Afríka rekur svo lestina með 0-1 stig.

19. maí 2002

Boltinn
Það er allt að gerast á leikmannamarkaðnum í Englandi og maður bíður spenntur eftir fréttum af því hvort United nær að krækja í Ronaldo og Ayala eins og slúðurbolta-fréttablöðin segja á netinu. Ég er náttúrlega rosalega ánægður með Ronaldo en er ekki eins viss með Ayala. Hann er svo mikill fauti að það væri bara eins og að vera kominn með nýjan Paul Ince í United-liðið. Mér líst miklu betur á Nesta eða Hofland. Annars stefnir allt í tómt væl hjá Englendingum í HM þannig að ég hef trú á að Svíarnir taki þá og fari upp með Argentínumönnunum. Annars ætla ég að taka næstu daga í að spá fyrir um úrslitin í riðlunum, einn riðil á dag næstu átta daga.
A-riðill
Ég hef mikla trú á Dönunum og Frakkarnir eru auðvitað ríkjandi Heims- og Evrópumeistarar. Senegalarnir geta sjálfsagt ekki rassgat en U-R-Gay-arnir gætu komið eitthvað á óvart og því er ég alls ekki viss um að Frakkarnir klári endilega með fullt hús stiga. Þetta er því mín spá: Frakkar vinna Dani og Senegal en gera jafntefli við Uruguay. Danirnir taka bæði Urugay og Senegal og Uruguay tekur síðan Senegal.
Frakkar verða því efstir með 7 stig, Danirnir í öðru með 6, Uruguay fær 4 og Senegal ekkert.

Skólinn
Það var kláraður 7ein. kúrsus með frekar þægilegu verklegu prófi seinni partinn á föstudaginn. Síðan var grillað í Sörlaskjólinu hjá Rögnu og Gumma sem fá fjóra ljósgeisla fyrir mikla gestrisni og frábært kvöld þrátt fyrir að það væri frekar endasleppt hjá mér vegna vinnu daginn eftir. Síðan er það ritgerðin sem ég þarf að klára á næstu dögum og koma í yfirlestur en ég þarf að skila henni fyrir 31. maí.

Vinnan
Ég byrjaði í aðlögun á Slysó á laugardaginn og var frá 10-22. Það er skemmst frá því að segja að aðlögunin felst í því að vinna eins og skrattinn og það fíla ég ágætlega. Var síðan aftur í dag og þetta er massagaman. Mikið að gera og tólf tímar líða á skotstundu. Í dag uppgötvaði ég t.d. kl. 18.30 að ég var ekkert búinn að gefa mér tíma til að borða síðan kl. 10 í morgunn. Það er svo mikið að gera að maður hefur ekki tíma til að hugsa um svona smáatriði.