Bekkurinn
Við vorum í sumarbústað í gærkvöldi þar sem Emmi beitti þeirri frægu aðferð að dýptarmæla ár með andlitið á undan. Hann fékk nokkra skurði karlinn en er að mestu heill á húfi og talið er að sár hans muni gróa áður en hann kvænist. Síðan fékk Sigurdís ókeypis fataþvott frá undirrituðum og Árna Grími en við gleymdum víst að færa hana úr fötunum fyrst þannig að það var ekki mikil kátína í herbúðum unglingsins. Síðan var auðvitað vakað fram eftir og drukkið hressilega. Annars var þetta fremur fámenn ferð en það var þrumustuð og þeir slappir sem ekki mættu. Kolla sagði fallegar sögur frá veru sinni í Venezuela og við grétum öll í kór. Síðan var fólk auðvitað í gegnsæara lagi í morgunsárið en það fór að hýrna yfir fólkinu upp úr hádeginu og allir búnir að yfirgefa pleisið um 13-leytið til að fara í ritgerðarsmíð á heimavelli.
Boltinn
Búið að reka Keane heim. Alger synd að besti afturliggjandi miðvallarleikmaður heims skuli ekki vera á HM en hann átti svo sem skilið að fá spark upp í sigmoid-colon eftir ummæli sín í fjölmiðlum. Svona er lífið, það borgar sig að þegja bara og brosa eins og Ingvar.
Síðan er það HM-spáin og það er D-riðill í dag:
D-riðill
Hér mætast Portúgal, Pólland, Suður-Kórea og Bandaríkin. Það getur held ég allt gerst í þessum riðli því S-Kórea og Bandaríkin eru landslið á uppleið en Portúgal og Pólland eru lið sem hafa verið að rokka svolítið í getu. Ég held nú samt að Portúgalirnir taki riðilinn með því að vinna S-Kóreu og Bandaríkin og gera jafntefli við Pólverja. Pólverjarnir gera síðan jafntefli við S-Kóreu og vinna USA en S-Kórea og USA gera jafntefli. Lokastaðan ætti skv. því að vera...
Portúgal 7
Pólland 5
S-Kórea 2
Bandaríkin 1
Engin ummæli:
Skrifa ummæli