19. maí 2002

Boltinn
Það er allt að gerast á leikmannamarkaðnum í Englandi og maður bíður spenntur eftir fréttum af því hvort United nær að krækja í Ronaldo og Ayala eins og slúðurbolta-fréttablöðin segja á netinu. Ég er náttúrlega rosalega ánægður með Ronaldo en er ekki eins viss með Ayala. Hann er svo mikill fauti að það væri bara eins og að vera kominn með nýjan Paul Ince í United-liðið. Mér líst miklu betur á Nesta eða Hofland. Annars stefnir allt í tómt væl hjá Englendingum í HM þannig að ég hef trú á að Svíarnir taki þá og fari upp með Argentínumönnunum. Annars ætla ég að taka næstu daga í að spá fyrir um úrslitin í riðlunum, einn riðil á dag næstu átta daga.
A-riðill
Ég hef mikla trú á Dönunum og Frakkarnir eru auðvitað ríkjandi Heims- og Evrópumeistarar. Senegalarnir geta sjálfsagt ekki rassgat en U-R-Gay-arnir gætu komið eitthvað á óvart og því er ég alls ekki viss um að Frakkarnir klári endilega með fullt hús stiga. Þetta er því mín spá: Frakkar vinna Dani og Senegal en gera jafntefli við Uruguay. Danirnir taka bæði Urugay og Senegal og Uruguay tekur síðan Senegal.
Frakkar verða því efstir með 7 stig, Danirnir í öðru með 6, Uruguay fær 4 og Senegal ekkert.

Skólinn
Það var kláraður 7ein. kúrsus með frekar þægilegu verklegu prófi seinni partinn á föstudaginn. Síðan var grillað í Sörlaskjólinu hjá Rögnu og Gumma sem fá fjóra ljósgeisla fyrir mikla gestrisni og frábært kvöld þrátt fyrir að það væri frekar endasleppt hjá mér vegna vinnu daginn eftir. Síðan er það ritgerðin sem ég þarf að klára á næstu dögum og koma í yfirlestur en ég þarf að skila henni fyrir 31. maí.

Vinnan
Ég byrjaði í aðlögun á Slysó á laugardaginn og var frá 10-22. Það er skemmst frá því að segja að aðlögunin felst í því að vinna eins og skrattinn og það fíla ég ágætlega. Var síðan aftur í dag og þetta er massagaman. Mikið að gera og tólf tímar líða á skotstundu. Í dag uppgötvaði ég t.d. kl. 18.30 að ég var ekkert búinn að gefa mér tíma til að borða síðan kl. 10 í morgunn. Það er svo mikið að gera að maður hefur ekki tíma til að hugsa um svona smáatriði.

Engin ummæli: