28. maí 2002

HM-spáin (2 riðlar í dag)
G-riðill
Hér spila Ítalía, Króatía, Mexíkó og Ekvador. Þetta verður örugglega svolítið skemmtilegur riðill en hann á örugglega eftir að líða fyrir það að sterkasta liðið í honum, þ.e. Ítalía, spilar líklega leiðinlegasta boltann. Maður vonar þó að leikmenn eins og Del Piero, Totti og Fiore geti dregið þetta varnarsinnaða lið aðeins fram á völlinn og sýnt skemmtileg tilþrif. Ég held það sé ekkert vafamál að Ítalir taka þennan riðil en þeir gætu alveg misst stig á móti annað hvort Króötum eða Mexíkóum. Það veltur allt á því að þessi minni lið skori á undan og dragi þannig Ítalina framar á völlinn og opni leikinn. Ég held að þessi lið vinni öll Ekvadorana þannig að keppnin um 2. sætið verður á milli Króatíu og Mexíkó. Ég vona að Króatía vinni en spái Mexíkönum sigur því þeir eru að ég held í betri leikæfingu. Ég hef ekkert séð af Ekvador en ég held að þeir ríði ekki feitum hesti frá þessum riðli. Spáin er því þannig
Ítalía 7-9 stig
Mexíkó 6 stig
Króatía 3-4 stig
Ekvador 0 stig
H-riðill
Þetta er trúlega langslakasti riðill keppninnar á pappírunum en samt eru hér nokkur a.m.k. þrjú lið sem gætu alveg komið á óvart. Þetta eru Belgía, Rússland og Japan en Túnisbúar eru síðan með fjórða liðið. Belgar eru með reynslumikið lið og svona gutta eins og snillinginn Emile Mpenza inn á milli. Rússar tóku Frakkana á Stade de France nú fyrir skömmu og gætu alveg komið á óvart og Japan er auðvitað á heimavelli og eiga á að skipa mjög teknískum og fljótum leikmönnum. Ég held hins vegar að Túnisbúar fái max eitt stig úr riðlinum en líklega ekki neitt. Spái því að Belgar verði efstir eftir jafntefli við Rússa og sigra gegn Japan og Túnis. Rússarnir fá 5 eftir jafntefli við Belga og Japan en sigur gegn Túnis. Japanirnir enda svo í 3ja sæti eftir sigur á Túnis.
Belgía 7 stig
Rússland 5 stig
Japan 4
Túnis 0

Pólítíkin
Ég flyt í Kópavoginn!!! Ég vil ekki láta skollótta og illa lyktandi Holræsarottu taka mig í rassgatið meðan gerpið hann Stebbi þjóðarsál horfir á og heillar gömlu konurnar sem síðan skrifa lesendabréf í moggann yfir aðförunum.

Engin ummæli: