25. maí 2002

Boltinn
Ástin átti fyrsta leikinn í bikarnum í dag og auðvitað stóðum við uppi sem auðveldir sigurvegarar gegn ungu liði Nings. Það var þó lengi framan af í fyrri hálfleik sem lítið gekk og það var ekki fyrr en undir lok hálfleiksins sem Helgi átti glæsilega stungusendingu á fjærstöng sem undirritaður afgreiddi í netið enda lítið annað hægt að gera eftir svo frábæra sendingu. 1-0 Þannig var sem sé staðan í hálfleik en það var skammt liðið af seinni hálfleik þegar Helgi átti frábæran sprett upp að endamörkum hægra megin og setti hann út í teiginn þar sem ofurmiðjumaðurinn Bertus Maximus var. Hann kláraði með glæsilegum snúningsbolta í fjærhornið. 2-0 Fyrsta mark Bertans fyrir Ástina og nú var hún komin í gang. Skömmu seinna tók Eiki eina af sínum baneitruðu aukaspyrnum utan af hægri kanti og hún virtist við fyrstu sýn vera fremur slöpp en Helgi gafst ekki upp og keyrði kollinn í knöttinn og inn fór hann úr þröngu færi. 3-0 Síðan var aftur komið að Eika að leggja upp þegar hann komst í ákjósanlegt færi en kaus þess í stað að leggja hann út á undirritaðan sem stóð fyrir opnu marki og þurfti bara að renna honum í netið. 4-0. Síðan náðu Nings að klóra í bakkann eftir sjaldséð mistök Örvars sem annars átti frábæran leik á miðjunni. 4-1. Síðan var það Helgi sem setti fimmta naglann í kistuna með baráttumarki. Eiki hafði lent í návígi á miðjunni og setti boltann hátt í loft upp. Varnarmenn Nings hikuðu og Helgi var ekki lengi að notfæra sér það og setti boltann örugglega í netið. 5-1. Glæsileg úrslit og maður leiksins að mínu mati Helgi sem átti tvær glæsilegar stoðsendingar og tvö góð mörk. Annars voru Jón og Þór traustir og Eiki, Berti og Örvar góðir á miðjunni. Helgi var frábær í framlínunni og hreint frábært að spila með svo góðum leikmanni.

Síðan er það HM-spáin og það er F-riðill í dag:
F-riðill
Hér er komið að dauðariðlinum með fjögur firnasterk lið. Ég held nú samt að Argentínumenn klári þennan riðil með fullt hús stiga enda eitt allra besta lið veraldar í dag. Englendingarnir eru svolítið skrýtnir og geta ýmist verið frábærir eða ömurlegir. Ég ætla nú samt að vera bjartsýnn og spá þeim öðru sætinu með 4 stig. Þeir vinna Nígeríu og gera jafntefli við Svía. Svíarnir tapa svo fyrir Nígeríumönnum og lenda neðstir en sú spá er fyrst og fremst vegna þess að ég vona innilega að Svíarnir sitji á botninum í riðlinum. Lokaspáin er því:
Argentína 9
England 4
Nígería 3
Svíþjóð 1

Pólítíkin
Kosningadagur og svartur dagur í sögu borgarinnar. Holræsa-Solla á örugglega eftir að taka þetta og ríða borgarbúum í rassinn með risastóru skatta-strap-onni næstu fjögur árin. Snökt og tár.

Engin ummæli: