21. maí 2002

Ástin...
...lék sinn fyrsta leik í Utandeildinni í ár í gærkvöld og stóð auðvitað uppi sem auðveldur sigurvegari gegn öldruðu liði Krikketfélagsins Goza. Leikurinn endaði 4-1 og Það voru fyrst og fremst föst leikatriði sem voru Ástinni hliðholl í þetta skiptið en það hefur einmitt verið einn slakasti þátturinn í leik Ástarinnar undanfarin ár. Þetta er því mjög jákvætt. Leikurinn hófst með látum af hálfu Ástarinnar og það má eiginlega segja að Gozarnir hafi ekki einu sinni fundið lyktina af Ástarinnar framan af fyrri hálfleik. Ástin fékk hins vegar fá færi og menn komu augljóslega sendingaryðgaðir undan vetri. Það var þó ekki að sjá ryð í glæsilegri aukaspyrnu Eika bleika utan af hægri kanti þegar um stundarfjórðungur var af leiknum. Hann sendi hnitmiðaða aukaspyrnu beint á kollinn á nýliðanum Helga sem setti boltann alveg út við fjærstöngina. Óverjandi. Gozarnir lifnuðu við þetta og áttu þrjú skot í rammann í fyrri hálfleiknum en staðan var 1-0 í hálfleik. Í upphafi síðari hálfleiks fengum við síðan óbeina aukaspyrnu á markteig og Jón Þorkell setti boltann hnitmiðað í mitt markið eftir sendingu undirritaðs. Það var síðan komið að Gozum að minnka muninn með augljósu rangstöðumarki en dómarinn sem virtist á bandi Gozanna á þessum tíma í leiknum lét markið standa. Ástin endurgalt þó markið skömmu seinna eftir glæsilega sendingu Odds inn fyrir vörnina og undirritaðir þurfti lítið að gera annað en að klára, sem hann og gerði. Það var síðan Árni Pneumo sem setti punktinn yfir i-ið með glæsilegri afgreiðslu á enn einni snilldaraukaspyrnu frá Eika bleika. Að lokum er komið að vali á manni leiksins sem að mínu mati var Jón Þorkell sem kórónaði frábæran leik sinn í vörninni með marki í seinni hálfleik. Það voru hins vegar margir sem stóðu sig mjög vel og vil ég þar sérstaklega nefna Eika, Þór, Odd og Helga auk þess sem Sverrir var traustur í markinu.

Boltinn
Það er lítið að frétta af boltanum annað en það að hálfvitarnir í Liverpool hættu við að kaupa Anelka sem þýðir að Ferguson er kominn með þá flugu í höfuðið að kaupa viðrinið. Ég vona að honum takist það ekki, ég þoli ekki persónu Anelka innan vallar þrátt fyrir að hann sé sæmilega góður í að sparka bolta. Ég skil bara ekki þennan mikla áhuga á manni sem skoraði ekki nema 5 mörk fyrir Liverpool í næstum 30 leikjum (að ég held).
Síðan er það HM-spáin og það er B-riðill í dag:
B-riðill
Í þessum riðli eru Spánn, Slóvenía, Paraguay og S-Afríka. Það er einlæg von mín að Spánverjarnir blómstri einu sinni því þeir geta hleypt þessari HM upp í skemmtilega keppni ef þeir velgja stóru fótboltaþjóðunum undir uggum. Ég spái því að loksins smelli þetta almennilega hjá þeim og þeir taki fullt hús úr riðlinum. Ég held að það sé engin spurning að S-Afríka botni þennan riðil en þeir gætu tekið stig af bæði Paraguay og Slóveníu. Ég held raunar að keppnin um 2. sætið standi fyrst og fremst á milli Sló. og Par. og það lið sem vinnur innbyrðis fer upp úr riðlinum. Ég spái því svona:
Spánn fær 7-9 stig í fyrsta sæti, Paraguay fær 4-6 stig í annað sætið og Slóvenía verður með 3-4 í þriðja. S-Afríka rekur svo lestina með 0-1 stig.

Engin ummæli: