28. maí 2002

Skólinn
Jæja, það var sem betur fer verið að framlengja skilafrestinn á ritgerðinni sem ég átti að skila fyrir hádegi á föstudag, fram yfir helgi þannig að ég get andað léttar. Þetta var allt að fara í vaskinn hjá mér. Maður er á fullu á einhverju námskeiði í endurlífgun (það er eitt af þessum námskeiðum í læknisfræði sem maður getur ekki bara sofið á og flett síðan upp ef eitthvað kemur upp á) sem er reyndar mjög gaman. Það verður próf á morgunn þannig að maður verður að renna yfir vinnureglurnar í kvöld og kíkja svo á æfingu svo maður hlaupi ekki í spik. Adrenalín, atropín, amiodaron ... það byrja öll þessi helvítis lyf á A-i svo maður verður að vera ferskur í þessu.

Vinnan
Eins og flestir eru líklega búnir að frétta ætlaði ég að vinna á Slysó í sumar en nú hafa læknanemar sem ætluðu að starfa á sjúkrahúsum í sumar ákveðið að mæta ekki til vinnu vegna vanefndra loforða um launahækkun.
Spítalinn var svo rausnarlegur að svíkja ekki aðeins loforð um launahækkun heldur ákvað síðan Geiri feiti í fjármálaráðuneytinu einhliða að lækka okkur um 5% í viðbót. Við eigum því að vera á 75% af þeim launum sem aðstoðarlæknarnir við hliðina á okkur í sömu vinnu fá í stað þess að fá 90% eins og okkur hafði verið lofað. Fólk réði sig sem sé á þessum forsendum og margir afþökkuðu vinnu sem hafði annars betri launakjör til þess að öðlast reynslu inni á spítölunum.
Það er reyndar ágætt að venjast bara strax nauðgunartilraunum ríkisins í launamálum heilbrigðisstarfsmanna. Það er náttúrlega engu lagi líkt að fólk með 6 ára háskólanám á bakinu slefi ekki yfir 200 kallinn í grunnlaun fyrr en hann er kominn með 2-3 ára starfsreynslu. Síðan er viðskiptafræðinemar sem hafa verið kannski 6 ár að klára það sem á að vera 3 að setja 300 kallinn í vasann við fyrstu mánaðarmót eftir útskrift. Maður er náttúrlega klikkaður að velja sér þennan starfsvettvang. Ég veit að þið haldið örugglega flest að læknar hafi það rosa gott en ég get alveg sagt ykkur að þegar ég verð 65-70 ára langar mig ekkert að vera að taka 3-4 sólarhrings- og helgarvaktir í mánuði. Mig langar til að eiga sumarhús á Kanarí og vera þar í 3 mánuði á ári.
Þannig er þetta nú samt í dag, menn komnir af léttasta skeiði farnir að taka vaktir þar sem allt getur gerst og maður sér nú fyrir sér að þegar einn hjartasjúklingurinn er að reyna að bjarga öðrum þá hljóti það að enda með tveimur hjartasjúklingum sem þarf að bjarga.
Ef einhver þarna úti ætlar í læknisfræði fyrir peningana er hann alvarlega brenglaður í hausnum. Það eru nefnilega engir peningar í heilbrigðiskerfinu, þeir eru allir farnir í klósettið í dómsmálaráðuneytinu, ljót háskólahús, laun fyrir hæfileikalausa listamenn og endalaus umhverfismöt á öræfum sem eru svo langt fyrir utan seilingu manna að þessi 90% umhverfisverndarsinna sem aldrei hafa komið út fyrir 101 geta ekki einu sinni bent þér á það á korti. Ég meina þeir gátu ekki einu sinni x-að við listabókstafinn á kjörseðlinum for crying out loud! “Ha! Vinstri grænir. En það er ekkert Vaff á seðlinum”. Sem betur fer er þetta lið í minnihluta.
Ég er nú ekki mikill náttúruníðingur og finnst Ísland fallegt en ég vil nú frekar sökkva einhverjum öræfum (ég meina vatn er nú líka fallegt) svo fólk geti lifað af þarna fyrir austan en að fá allt þetta lið hérna til Reykjavíkur.. Hún er alveg nógu stór fyrir. Kárahnjúkar verða Kárahólmar, eða Káranes eða hvað þið viljið kalla þá. Vá hvernig komst ég hingað: úr vinnunni austur á land á 80 sek. Hættur í bili, heyrumst.

Engin ummæli: