Ástin...
...hélt sína fyrstu æfingu eftir stórsigur mánudagsins í gærkvöldi og verður að viðurkennast að líklega hefur leikurinn setið talsvert í mönnum því aðeins 5 leikmenn sem tóku þátt í leiknum mættu. Síðan létu Hörður, Berti og Örvar sjá sig þrátt fyrir að hafa verið hafðir að háði og spotti fyrir lakar afsakanir fjarveru sinnar úr leiknum. Síðan var gleðilegt að sjá ungan og sprækan mann sem greinilega hafði heillast af áferðarfallegum leik Ástarinnar á mánudaginn. Það er skemmst frá því að segja að hann var sægnaður á staðnum og mun styrkja lið Ástarinnar umtalsvert því hann hefur verið einn allra besti leikmaður liðs læknanema sem síðastliðinn vetur stóð uppi sem sigurvegari í hinni geystisterku Háskóladeild. Þessi ungi maður heitir Örvar og spilar helst á miðju eða kanti og nú held ég að Ástinni séu allir vegir færir í sumar. Við rúllum upp þessari aumu deild.
Boltinn
Þá er enn einn Liverpoolvæskillinn búinn að heltast úr lestinni en Danny litli Murphy var að meiða sig í gærkvöld. Það gæti farið svo að bara Michael Owen spilaði á HM úr þessu Liverpool-liði (fyrir England þ.e.a.s.) sem er fínt vegna þess að hann er langskársti leikmaður liðsins. Ég verð þó að viðurkenna að ég væri alveg til í að hafa Gerrard sem þriðja varamann fyrir Butt (Hargreaves nr. 2).
Síðan er það HM-spáin og það er C-riðill í dag:
C-riðill
Það eru sem sé Brasilía, Tyrkland, Kosta Ríka og Kína sem etja kappi í þessum riðli. Ég vona að Brassarnir nái að stilla sig saman og taki þennan riðil með fullt hús og ég held að Tyrkirnir eigi eftir að taka 2. sætið. Það er síðan spurning hvernig leikur Kosta Ríka og Kína fer en ég held að Kínverjarnir séu á uppleið og spái þeim 3. sætinu.
Brasilía fær 9 stig, Tyrkland 6, Kína 3 og Kosta Ríka 0.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli