31. maí 2002

Jæja! Langt síðan síðast en samt verð ég að hryggja ykkur tryggu lesendur með því að þetta verður stutt í dag.

Boltinn
Það er ljóst að HM spá Ljós-Gíslans er hrunin eftir tap Frakka gegn Senegölum í morgunn. Ég ætla nú samt að halda mig við hverjir fara upp úr riðlinum. Það verða Danir og Frakkar.

Vinnan
Það var samið um okkar kjör í gær og því lítur allt út fyrir það að ég sjái ekki mikið af HM-leikjum, en þó eitthvað. Ég átti að mæta til vinnu á morgun laugardag en einn kollegi minn sem er að læra í Danmörku var svo yndislegur að skipta við mig um vakt og því er ljóst að ég hef laugardaginn til að fínpússa ritgerðina. Henni á svo að skila á mánudag og þá er ég formlega búinn að ljúka við 4. árið og má loks fara að praktisera sem læknir út um allt ef mér þóknast svo. Ég ætla nú að láta Slysadeildina duga í sumar. Látum þetta gott heita í bili, heyrumst

Engin ummæli: