25. maí 2002

Boltinn
Nú er fyrsti utandeildarbikarleikurinn á morgunn. Ástin mætir þá liði Nings sem ég ímynda mér að séu einhverjir velunnarar staðarins. Það verður auðvitað tekið í þessa menn og þeim kennt hvernig á að spila fótbolta. Ástin sigrar allt!!!

Síðan er það HM-spáin og það er E-riðill í dag:
E-riðill
Það eru Írland, Kamerún, Þýskaland og Sádi Arabía sem mætast hér. Ég veit ekki með Írana án Keane. Þeir eru svolítið skrýtnir á stundum og geta í raun gert hvað sem er. Þeir skildu Hollendingana eftir í undanriðlinum en töpuðu síðan fyrir Suður-Afríku heima um daginn. Ef Keane verður með þeim þá fara þeir upp úr riðlinum ásamt þýska stálinu en annars held ég að Sádarnir fari með þeim. Það er því spá mín eins og staðan er í dag (þ.e. Írarnir án Keane) þá taka Þjóðverjarnir alla leikina í riðlinum Sádarnir gera jafntefli við Íra og vinna Kamerún og Kamerún nær jafntefli á móti Írum. Þetta verður því lokastaðan ef Keane er ekki með:
Þýskaland 9
Sádi Arabía 4
Írland 2
Kamerún 1
Ef Keane verður með fer þetta hins vegar svona
Þýskaland 7
Írland 5
Sádí Arabía 2
Kamerún 1

Pólítíkin
Helvítið hún Holræsa-Solla virðist ætla að gabba saklausa Reykvíkinga enn einu sinni. Það var nú ekki beysin frammistaðan hjá honum Bingó-Bjössa í sjónvarpinu í kvöld. Ólafur F. Magnússon var í raun sá eini sem óx eitthvað í áliti hjá mér en þó ekki mikið (hver er munurinn á skít og kúk?). Annars hef ég á stefnuskránni að gráta mig í svefn á morgunn þegar R-listinn hefur fengið 9 borgarfulltrúa gegn 6 mönnum D-lista og djöflast síðan við að finna mér íbúð í Kópavogi eða Garðabæ þangað sem allt hitt gáfaða fólkið virðist vera flutt. Þar kunna skattborgararnir alla vega að reikna enda sýndi það sig að Reykjavík var lægst sveitarfélaganna á Stór-Reykjavíkursvæðinu í nýafstöðnum samræmdum prófum í stærðfræði ef ég skildi fréttina í dag rétt. Sjáumst á kjörstað á morgunn og x-um rétt.

Engin ummæli: