24. maí 2002

Pólítík
Sá mér til mikillar gleði tvo þætti í kvöld í imbanum. Sá fyrri var Ísland í dag eða hvað það nú heitir Kastljósið á Stöð2. Þar voru oddvitar flokkanna í Kópavogi á grillinu. Það er skemmst frá því að segja að þvoglumæltu þumbararnir úr meirihlutanum, þeir Sigurður Geirdal aftursóknarmaður og Gunnar Birgisson LÍN-klumpur tóku vinstri greyin og skeindu sér á þeim. Við lok þáttarins var Flosi greyið Eiríksson, sem mér hefur hingað til þótt bara sæmilega lítið takmarkaður miðað við að vera vinstri maður, orðinn alveg hjartanlega sammála meirihlutanum um flest allt þrátt fyrir að hann kæmi því að að hann ætti auðvitað hugmyndina að þessu öllu saman. Mér fannst þeir fóstbræður alveg ótrúlega skýrir (ath. ekki skýrmæltir þó) í svörum og gátu einfaldlega hrakið allt sem vinstri mennirnir létu út úr sér.
Seinni þátturinn var alvöru Kastljós þar sem fjallað var um bæjarmálin í Akureyrarbæ og þar voru samankomnir líklega þrír heimskulegustu stjórnmálaleiðtogar veraldarinnar, einn frá Samsuðusullinu, annar frá frá vinstri vitgrönnum og sá þriðji frá svokölluðum Akureyrarlista. Það kom bara ekki orð af viti upp úr þeim greyjunum. Síðan var greyið hann Jakob Björnsson sem var einu sinni efnilegasti framsóknarmaðurinn en er núna hálfútbrunninn greyið. Hann var nú samt furðulega góður og mun skárri en þessir framsóknaraumingjans aumingjar sem sitja í gluggunum svokölluðu í krambúllu Holræsa-Sollu. Síðan var Kristján Júlíusson sem var bara nokkuð góður og kjaftfor. Það er alveg frábært ef það fæst ekki annað en þessi grey til að leiða lista vinstri greyjanna út á landi því þá getur ekki verið mikið af fólki sem kemur í landsmálin hjá þeim.
Ég hlakka til að sjá hvernig þetta fer á laugardaginn og hvernig sem það fer þá vona ég að Gísli Marteinn komist inn. Hann er framtíðarmaður í forystusveit D-listans í borginni og í honum held ég að loksins sé kominn maður sem gæti kannski komist með tærnar þar sem Davíð hefur hælana. Síðan vonar maður bara að frjálslyndir taki sætið af Holræsa-Sollu þó það sé kannski ekki skárra að fá hann Óla-klöguskjóðu í staðinn. Munurinn á þeim er bara sá að það verða allir búnir að sjá í gegnum Óla litla eftir 4 ár en Solla er miklu slóttugri og gæti gabbað fólk í nokkur ár í viðbót.
Það magnaðasta við þessa kosningabaráttu hefur verið það sem ég kalla persónudýrkun á Skalla-Sollu. Alltaf þegar maður segi vinstrimanni/-konu að maður ætli að kjósa D, þá segja þau. Ekki viltu frekar hafa Björn sem borgarstjóra en Ingibjörgu Sólrúnu. Málið er bara það að mér er alveg sama hver er borgarstjóri. Þetta er bara flott á CV-inu. Aðalatriðið er að kjósa ábyrga einstaklinga sem maður treystir að laga skuldastöðu borgarinnar og ef valið stendur milli Orku-Alfreðs, Súkkulaði-Stefáns, Dags-Komma og Holræsa-Sollu annars vegar og Gísla Marteins, Björns, Ingu Jónu og félaga þá treysti ég þeim síðastnefndu betur. Látum þetta gott heita í bili.

Engin ummæli: