Fyrir þá sem ekki vissu erum við skötuhjúin með eitt í ofninum. Það verður okkar fyrsta en vonandi ekki það síðasta. Allt gengur vel. Við erum að bresta í 27 vikurnar á mánudaginn og þetta er að verða raunverulegt fyrir mér einhvern veginn núna. Ég hlakka til að verða sá gamli en auðvitað er maður pínulítið kvíðinn líka. Annað væri held ég afar óvenjulegt. Til hliðar er mynd tekin eftir tæpar 25 vikur. Myndarleg ekki satt. Kúlan er öll að koma.
Skemmtileg orðatiltæki sem við þurfum að skýra fyrir börnunum okkar
Ég hef verið að hugsa upp á síðkastið um allskonar orðatiltæki sem við notum sem eru raunverulega orðin úrelt. Eitt er til dæmis að setja plötuna á fóninn. Við erum flest löngu hætt að hlusta á plötur eða setja tónlist á fóninn en samt er þetta orðatiltæki notað reglulega. Annað er að hlutirnir "gangi á afturfótunum". Síðast þegar ég gáði göngum við öll á afturfótunum og það er bara allt í góðu lagi en sennilega vísar þetta til ferfættra fararskjóta fyrri tíma. Leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér. Það er samt gaman að pæla í svona hlutum.
Annað sem er gaman er að pæla í hvernig veröldin var þegar við sem erum nú í kringum þrítugt vorum lítil. Þá voru engir örbylgjuofnar eða DVD spilarar. Geislaspilarar voru bara komnir á allra efnuðustu heimili. Fáir áttu myndbandsupptökuvélar og ekki voru allir einu sinni búnir að kaupa sér myndbandstæki. Sjónvörpin voru næstum öll frá ITT og dugðu miklu meira en þau 3 ár sem nú er meðallíftími viðtækja. Útvarpsstöðvar voru nákvæmlega 2, Rás 2 og RÚV, það var ekkert sjónvarp á fimmtudögum og ekki heldur í júlí. Barnaefnið var líka kúl en ekki eitthvað sálfræðimombojombo eins og núna. Við fengum að horfa á Thundercats og Transformers á laugardagsmorgnum og þar var slegist og barist án afláts. Samt rættist úr okkur. Ég man líka að bræður mínir eignuðust snemma Comador 64 sem var ein alheitasta leikjatölvan þá. Í hana voru til svona 3 leikir og enginn þeirra skemmtilegur. Það var samt mjög svalt. Gemsarnir voru heldur ekki komnir og mæður okkar þurftu í alvöru að fara út úr húsi til að leita að okkur í matinn. Reyndar var líka hægt að hringja í nágrannanna til að spyrja hvort einhver hefði séð mann en það var náttúrlega á þeim tíma sem fólk hafði tíma til að þekkja nágrannana sína. Ég veit að ég hljóma eins og gamall karl en ég held í alvöru að það hafi verið miklu auðveldara að vera barn þegar ég var yngri en það er í dag. Nú skilgreinir það fátækramörk hvort fólk geti gefið börnunum sínum nýjustu playstationtölvuna í jólagjöf eða ekki. Við erum öll í miðju lífsgæðakapphlaupinu og finnst við öll vera að tapa en þegar allt kemur til alls er þetta bara eins og unglingavinnan. Það er ekki aðalatriðið að vinna, það er nóg að vera bara með og komast í mark.
Boltinn
Dapurlegt að tapa fyrir West Ham. Ég veit ekki hvað ég á að segja um það. Bara dapurlegt. Það er samt fínt að Saha skuli vera búinn að framlengja, alltaf gott að ganga frá slíku. Nú er bara að binda restina niður og láta þá skrifa undir.
Hvað ætli deyi margir hermenn vegna heimsku yfirmanna þeirra?
Reyndar má auðveldlega færa rök fyrir því að allir hermenn deyi vegna heimsku yfirmanna þeirra en sá sem dó hér suður með sjó í fyrradag var klárlega einn af þeim sem deyr algerlega að óþörfu. Hverslags hálfbjáni sendir 9 danska sjóliðsdrengi út í íslenskt brim á gúmmíslöngu til að bjarga áhöfn af gríðarstóru flutningaskipi þegar þyrlur eru til staðar til að bjarga málunum. Þetta hlýtur bara að flokkast undir morð. Skipið er ekki enn sokkið tveim dögum seinna en mannfíflið sem stýrir þessum danska ryðkláfi fékk þá grillu í höfuðið að bjarga þeim á gúmmítúttu. Þið getið hengt ykkur upp á það að hann ætlaði sér að fá heiðurinn af björguninni. Hreinn og klár metnaður. Engin virðing fyrir mannslífum. "Ekkert að bíða eftir því að gera hlutina skynsamlega. Neibb. Strákarnir redda þessu á gúmmítuðrunni bara." Það fyrsta sem maður lærir á námskeiðum í hjálp í viðlögum er að tryggja eigið öryggi alltaf fyrst, því annars ertu bara að skapa enn meiri hættu. Þennan mann á að draga fyrir dómstóla og aldrei senda hann á sjó aftur. Ekki það að ég hafi nokkurt vit á sjómennsku og auðvitað er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á en hann er yfirmaður á herskipi og á að vita betur. Hann er fífl að mínu viti.
Menntskælingurinn
Andreas bróðursonur minn fékk úr prófunum í 3ja bekk í MR í dag. Stóð sig með stakri prýði drengurinn nema í íslensku og stærðfræði. Íslenskan var svo sem ekkert sjokk því hann hefur búið í Noregi í 8 ár en í stærðfræðinni hefði hann átt að gera betur. Hann brilleraði hins vegar í öllu öðru og tók 9 í næstum öllu öðru. Ég mundi kalla það frábæran árangur miðað við að hann flutti til Íslands aftur í haust. Ég var búinn að aðstoða hann í stærðfræði og efnafræði og verð því að taka á mig hluta af sökinni. Hann fær þétta kennslu á vorönn hjá mér og Viðari í stærðfræði og íslensku. Hann tekur þetta í vor. Drengurinn er náttúrlega bara snillingur.

