20. mar. 2006

Letin að drepa mann!
Hef ekki bloggað í rúman mánuð og er það nær eingöngu vegna leti og anna við eitthvað ómerkilegra en að koma skoðunum mínum á blað. Reyni að bæta úr þessu fljótlega en get glatt hundtrygga lesendur með því að mínir menn í ensku eru að draga Chelsea uppi. Munurinn kominn í 12 stig og við eigum leik til góða. Það verður létt að ná þeim fyrir vorið með sama áframhaldi. Annars vildi ég að Heiðar Helguson væri í öllum liðum sem Chelsea spilar á móti. Hann mundi fiska einhvern út af með rautt í hverjum leik. Alger klikkhaus þessi drengur.

Annars er bara gott að frétta af okkur. Við erum búin að standa í stórræðum með stofuna sl. vikur - keyptum okkur stofuskáp og bókaskáp í sama stíl í febrúar og byrjum mars og svo hefur hestamennskan verið í lykilhlutverki hjá mér. Edda er ekki úr hófi fram dugleg en það lagast alltaf með vorinu þegar veðrið setur ekki strik í reikninginn.

Síðan er fótboltinn farinn að rúlla með ágætum. Æfum á fimmtudögum og spilum leik á þriðjudögum. Erum búnir að vera að skora mikið og fá á okkur lítið af mörkum sem er alltaf jákvætt. Ég er búinn að setja eitt og leggja upp a.m.k. eitt líka. Þetta er allt að slípast og ég er kominn i sæmilegt form sem skánar reyndar með hverjum deginum. Ég hef eiginlega alveg sloppið við meiðsli í vetur sem er alltaf gott en utanlandsferðirnar tvær hafa ekki hjálpað til með björgunarhringinn. Það er þó að leka úr honum hægt og bítandi svo þetta er allt í áttina.
Þar til næst;)

Engin ummæli: