Komin aftur frá París
Nú eru Geislinn og nýbökuð spúsa hans komin aftur úr brúðkaupsferð til Parísar sem heppnaðist í alla staði mjög vel. Veðrið var gott nær allan tímann og það var fremur lítið um ferðamenn svo maður hafði nógan tíma og pláss til að skoða sig um. En þá snúum við okkur að ferðasögunni sem gæti orðið í lengra lagi og birst í nokkrum pörtum.
Ferðasagan
Föstudagurinn 13. janúar
Vöknuðum eldsnemma heima í Hólmgarði og litum út. 20 cm jafnfallinn snjór, fyrsta almennilega snjókoma vetrarins og við á leiðinni út á flugvöll. Vorum snögg að drífa okkur af stað til að hafa nógan tíma. Reykjanesbrautin var illfær vegna fannfergis því ekki hafði verið skafið þarna kl. 5 um morgunn. Við vorum hins vegar tímanlega í því og fluginu var þar að auki frestað um rúman hálftíma svo við vorum í góðum málum. Komumst í loftið áfallalaust og fyrir utan smá ókyrrð yfir Skotlandi gekk flugið vel líka. Lentum á Charles de Gaulle um hádegisbilið og náðum okkur í leigubíl. Reyndar má eiginlega segja að hann hafi náð í okkur því það var einhver leigubílstjóri sem snaraði okkur eins og kálf á ródeói og teymdi okkur í ómerkta leigubílinn sinn. Í ljós kom að hann ætlaði að rukka okkur 95 evrur sem okkur þótti heldur mikið en létum okkur hafa það. Komumst að því seinn að gangverðið á þessari leið er ca. 70-100 evrur svo við vorum ekki rænd neitt meiriháttar. Vorum komin á hótelið (Hotel Cardinal Rive Gauche = Kardínálahótelið á vinstri bakkanum) upp úr kl. eitt og kom í ljós að þetta var fínasta hótel. Herbergið var reyndar heldur minna en lesa mátti úr lýsingunum en það var notalega innréttað og allur nauðsynlegasti munaður fyrir hendi. Það er líka staðsett í útjaðri Latínuhverfisins og aðeins örskot verið að labba niður í bæ. Um kvöldið fórum við út að svipast í kringum okkur og átta okkur á umhverfinu. Uppgötvuðum fljótlega að í beinu framhaldi af götunni okkar var ein rótgrónasta markaðs- og verslunargata Parísar, Rue Mouffetard. Gengum hana nær á enda og settumst síðan inn á bistrotbar sem ber nafnið Le Mouffetard. Fengum fínan kvöldverð og á eftir drifum við okkur heim á hótel í svefninn því við vorum vansvefta eftir stutta nótt.
Laugardagurinn 14. janúar
Vöknuðum seint og illa en vorum komin á ról um ellefuleytið. Fórum í mikinn göngutúr um Latínuhverfið. Skoðuðum St. Medard kirkjuna, Pantheon (þar sem Rousseau, Voltaire og Victor Hugo eru jarðsettir) og St. Etienne du Mont. Gengum síðan um háskólahverfið og fram hjá Sorbonne. Síðan skoðumum við Miðaldasafnið að utan og getur maður séð Galló-Rómönsku böðin fremur vel utan frá. Síðan fram hjá Severin kirkjunni sem er umlukin íbúðarhúsum í mjög þröngri götu. Þaðan fram hjá St. Julien le Pauvre og að útimarkaðnum við Mauberttorgið. Þarna komu gönguleiðakort sem við fengum í brúðkaupsgjöf frá gömlu hestagrúppunni sér að góðum notum eins og reyndar alla ferðina. Nú var liðið langt á eftirmiðdaginn og við drifum okkur heim á hótel því von var á Huldu systur hennar Eddu og Jens kærasta hennar. Þau gáfu okkur í brúðkaupsgjöf, út að borða og miða á kabarettsýningu í Lido sem er heimsfrægur kabarett við Champs Elysee's. Vorum svolítið snemma í því og fengum okkur göngutúr um breiðstrætið fræga en síðan var komið að matnum og sjóvinu og var það í einu orði sagt stórkostlegt. Á eftir fórum við síðan niður í bæ á bar sem heitir Le Petit Pont og er á Signubökkum gegnt Frúarkirkju. Þar fengum við Jens okkur vindil og bjór en stelpurnar fengur sér sykursæta kokkteila. Síðan fórum við heim í bælið um kl. 3 eftir frábæra kvöldstund.
Sunnudagurinn 15. janúar
Vöknuðum aftur um kl. 11 en höfðum ákveðið kvöldið áður að borða morgunmat á Coffee Parisien sem er morgunverðastaður í amerískum stíl nálægt St. Germain de Pres. Vorum mætt alveg um 12 þegar þeir opna og fengum sæti en það mátti ekki tæpara standa því 5 mínútum eftir að við komum var orðið troðið og fjöldi fólks beið eftir sæti. Ég fékk mér auðvitað amrískar pönnukökur en Edda fékk sér einhverja eggjaköku. Pakksödd drifum við okkur í neðanjarðarlestina og tókum hana norður í Montmartre sem er hæð í norðanverðum miðbæ Parísar. Þar blasti strax við Rauða myllan og síðan skoðuðum við líka Moulin de la Galette og Moulin Radet sem eru í hverfinu fyrir ofan Rauðu mylluna. Skoðuðum síðustu vínekruna innan borgarmarkana og lítinn kabarett þar sem Picasso og Renoir voru fastagestir áður en þeir urðu heimsfrægir. Þaðan þræddum við okkur um þröngar verslunargötur að Tertre-torginu þar sem fjöldi listamanna málar myndir undir berum himni um helgar. Keyptum glæsilega mynd í stofuna hér af öldnum snillingi. Skoðuðum síðan Sacre Cæur sem er einhver fallegasta kirkja sem ég hef komið í en hún stendur eiginlega á toppi Montmartehæðarinnar. Fórum nú niður í bæ og skoðuðum Place de la Concorde og fórum yfir Alexanders III brúnna á leið okkar að Hotel Invalides þar sem er hergagnasafn og dómkirkjan þar sem kista Napóleons með jarðneskum leifum hans er geymd og til sýnis. Fórum því næst í stutt stopp á hótelið áður en við röltum niður á Rue Mouffetard til að fá okkur að borða á frábærum fonduestað sem við munum ekki hvað heitir. Þar var afslappað andrúmsloft og góður matur. Síðan var komið að kveðjustund því Hulda og Jens þurftu að snúa aftur til Brussel og við þurftum að halda áfram í brúðkaupsferð. Fórum síðan heim á hótel í háttinn.
Framhald á morgunn eða í kvöld.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli