Jesús minn!
Stundum skil ég ekki vinstri menn. Samfylkingarfólk og óháðir kusu Dag B. Eggertsson sem oddvita sinn. Dagur er myndarlegur strákur sem kemur ágætlega fyrir. Hann er reyndar full skrúðmæltur fyrir minn smekk auk þess sem hann hefur ekki almennilega tök á þeim orðum og orðasamböndum sem hann notar en ég get auðveldlega séð hvað það er sem heillar allt þetta fólk. Dagur er líka að mínu viti ágætis læknir og hann á góða konu sem líka er góður læknir. Allt þetta breytir hins vegar ekki þeirri skoðun minni að Dagur er algerlega gersneyddur öllu því sem ég leita eftir í frambærilegum stjórnmálamanni. Hann er maður orða en ekki verka en mér hefur alltaf líkað betur við menn sem koma einhverju í verk. Að því leyti passar hann eins og sívalningur í þetta Samfylkingar- og Reykjavíkurlistabatterí allt saman. Ég er hins vegar afskaplega glaður yfir því að hann var kosin því ég held að hann sé ólíklegastur af þeim þremur kandídötum sem í boði voru til að leiða listann til sigurs en ég er auðvitað hægri maður og því kannski ekki dómbær á kjörþokka vinstri manna. Tíminn einn mun leiða í ljós hvort ég hef rangt fyrir mér. Það ber ekki að skilja það sem svo að ég sé sérlega hrifinn af Vilhjálmi Vilhjálmssyni heldur. Síður en svo. Ég held ég þurfi alvarlega að setjast niður og hugsa minn gang fyrir þessar kosningar því ekki eru valkostirnir kræsilegir.
Liverpool vs. Manchester United á Anfield...
...í enska FA bikarnum. Ég verð þar með fjórum félögum mínum næstkomandi laugardag og verð þar að auki líklega eini United maðurinn í Liverpoolstúkunni - það verður erfitt verkefni.
Helvítis CV
Er að gera CV fyrir starfsumsókn sem ég er að skila inn á miðvikudag. Það er leiðinlegasta verkefni sem ég hef komið að.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli