Karpað um keisarans skegg!
Magnað að horfa á Ingibjörgu Sólrúnu og Árna Matthiesen karpa um skattbyrði Íslendinga. Þau tvö voru hvort um sig að matreiða mjög einfaldan hlut á þann hátt sem hentaði málflutningnum. Það gefur augaleið að þegar tekjur hækka án þess að persónuafsláttur eða skattbyrði breytist í takt að skattbyrði á hvern einstakling hækki að meðaltali en það gera ráðstöfunartekjurnar að sama skapi. Það er því tilgangslaust fyrir ríkisstjórnina að þræta um það að skattbyrði hafi hækkað að meðaltali í þeirra stjórnartíð. Miklu nær væri að benda á að laun hafa hækkað meira en gengur og gerist annars staðar og að ráðstöfunartekjur einstaklinga hafa hækkað að meðaltali. Það er engum til skammar. Auk þess er hægt að benda á að skattbyrði á fasta krónutölu hefur minnkað, þ.e. það hlutfall sem ríkið tekur af hverri krónu sem einstaklingur vinnur sér inn hefur lækkað. Hins vegar hefur sama hlutfall sem sveitarfélagið Reykjavík hirðir af hverri krónu hækkað og það er eitthvað sem mér fannst Árni ekki koma almennilega á framfæri.
Strákarnir okkar
Eftir frábæra baráttu og framúrskarandi frammistöðu hafa strákarnir okkar líklega lokið keppni á EM í handbolta. Eina von okkar er að Rússar flengi Dani sem ég held að sé ekki líklegt. Mín skoðun er sú að það eina sem hafi komið í veg fyrir að við færum í undanúrslitin sé ótrúleg óheppni með meiðsli og svo var dómgæslan í þessum leik í dag náttúrlega fyrir neðan allar hellur. Ég meina Norðmennirnir voru meira að segja hissa á sumum dómunum sem við fengum á okkur. Sem dæmi má nefna rauða spjaldið sem Heimir fékk í lokin. Þetta var klárlega tveggja mínútna brot en að gefa manni beint rautt fyrir þessa smámuni er náttúrlega fáránlegt. Eins fannst mér þeir gefa Norðmönnum allt of frjálsar hendur með að ýta mönnum inn í teiginn á meðan okkar menn máttu ekki einu sinni horfa á þeirra menn án þess að dæmt væri aukakast. Markvarslan hjá okkur var náttúrlega skelfileg í seinni hálfleik og ég er ekki sammála þessu bulli að vörnin verði að vera góð til að góðir markmenn verji. Við erum að sjá þessa markmenn eins og norska, danska og króatíska hirða algjöra deddara hvað eftir annað og jafnvel verja 3-4 vítaköst í hverjum leik. Við höfum því miður ekki átt almennilegan markvörð síðan Einar Þorvarðarson hætti og það er eitthvað sem ég held að íslensk handboltalið þurfi að skoða. Ef við eigum almennilega markmenn eins og sumir rembast við að halda fram - af hverju er þá enginn af þessum strákum að spila erlendis hjá einhverju stórliði? Svarið er einfalt. Þeir eru einfaldlega ekki nógu góðir. Birkir mundi í mesta lagi teljast meðalmaður á evrópskan mælikvarða og Hreiðar svona skítsæmilegur. Roland var sennilega einn besti markmaður heims 1-2 árum áður en hann fékk íslenskan ríkisborgararétt en þrálát meiðsli setja mark sitt á svona íþróttamenn og slök þjálfun virðist heldur ekki hafa hjálpað honum hér heima heldur. Hann er því bara svona la la í dag. En það breytir því ekki að síðustu daga eru þessir strákar búnir að kynda hressilega undir þjóðarstoltinu og það sannast enn einu sinni að enginn hópur manna er jafnmassívur í að þjappa saman litla þjóðartetrinu í okkur á köldum vetrarkvöldum. Ég segi því áfram strákar og ég hlakka til að sjá ykkur á næsta stórmóti því þetta lið getur aðeins skánað úr þessu. Óli á örugglega 4-5 ár eftir miðað við hvað hann er góður í dag, Guðjón hefur aldrei verið betri og restin eru bara ungir guttar sem eiga langt í land að ná tindi ferilsins svo framtíðin er björt og ég hreinlega hlakka til framtíðarinnar.
CV...
...er held ég það leiðinlegasta fyrirbæri sem ég hef komist í tæri við.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli