Brúðkaup
Brúðkaupið okkar Eddu var síðastliðinn laugardag. Það tókst frábærlega í alla staði. Athöfnin var frábær. Sigurður Grétar prestur var góður og Páll Óskar stóð sömuleiðis fyrir sínu. Hann söng fyrir okkur Ó, hvílíkt frelsi, Ást og fallegan brúðkaupssálm. Síðan fórum við í myndatöku til alveg frábærs ljósmyndara og svo var það veislan sem tókst alveg frábærlega. Maturinn frábær, kakan meiriháttar, nóg af víni, frábærar ræður og umfram allt frábærir gestir. Við enduðum á því að fara í partý hjá tengdaforeldrum mínum sem stóð til kl. 7 um morguninn. Við fórum reyndar heim rétt fyrir 6 en þeir duglegustu fóru ekki heim fyrr en 7. Það voru bræður mínir og Ingvar. Síðan var gestagangur hérna allan sunnudaginn og á mánudagskvöldið líka. Við fengum alveg rosalegt magn af gjöfum en ég ætla ekkert að vera að útlista það hér svo þið komið frekar í heimsókn að kíkja á þetta. Til að freista ykkar enn frekar þá ætla ég að segja ykkur frá einni gjöfinni. Félagar mínir úr Garðabænum gáfu mér forláta kaffivél sem er til þjónustu reiðubúin hverjum þeim sem lætur sjá sig. Það er hins vegar vissara að bíða með það í 10 daga því við Edda ætlum til Parísar í fyrramálið og verðum til 23. janúar.
Boltinn
Ferguson hefur verið iðinn við kolann á leikmannamarkaðnum síðustu daga. Vidic, Evra og nú kannski Gravesen. Það væri fínt að fá Gravesen á miðjuna til að binda þetta betur saman allt saman. Er reyndar ósáttur við hvað þeir eru búnir að vera slakir í sl. leikjum. Jafntefli við Burton&Howe Albion og Blackburn eru bara ekki ásættanleg úrslit en hvort tveggja var reyndar í bikarnum svo það sleppur. Jafnteflið við Arsenal var kannski sínu verra enda hefur Chel$ky deildina nú í hendi sér.
Helvítis DV
Nú eru þeir endanlega búnir að tapa glórunni. Þessir menn, Jónas og Mikael, sönnuðu það endanlega í gær að þeir eru að mínu viti mestu örlagafífl sem ég hef á ævi minni heyrt getið. Það væri svolítið gaman að safna saman öllum þeim sem segjast hafa séð Mikael Torfason taka pínulítið í nefið og láta þá hringja í DV og gefa þeim ábendingu. Það væri gaman að sjá hvort þeir mundu birta það á vitnisburði einum saman eða hvort Jónas mundi sópa því undir borðið til að hlífa Mikka vini sínum og fjölskyldunni hans. Það segi ég að því gefnu að hinn mjög svo siðsami og hjartahlýji Mikael mundi að sjálfsögðu víkja úr ritstjórninni á meðan á umfjöllun málsins stæði. Það væri örugglega hægt að grafa ýmislegt misjafnt um Jónas Kristjánsson upp líka en málið er bara það að ég hef engan áhuga á að mannorð þessara manna séu svert í fjölmiðlum, jafnvel þó þeir eigi það skilið. Það er nú bara einu sinni þannig að allir hafa sinn djöful að draga. Ef menn brjóta lögin er rétt að láta þau mál fara í gegnum réttarkerfið og þegar menn hafa verið dæmdir þar er mér svo sem sama þótt DV birti fréttir um það þá. En að draga upp gamlar beinagrindur úr skápum fólks sem þegar hefur goldið samfélaginu sínar skuldir gengur gegn grundvallarhugmyndum refsilöggjafarinnar, þ.e. að með afplánun eða sektum taki fólk út sína refsingu. Ég er þess fullviss að það er fátt nýtilegt í kúpunni á þessum mönnum annað en saur og hafragrautur en mér gæti skjátlast, alla vega fullyrtu bræður mínir á laugardaginn að mér skjátlaðist stundum. Ég er viss um þeir voru bara að bulla.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli