21. mar. 2007
Slæmir hlutir, gott fólk!
Ég horfði líka á Fyrstu skrefin áðan með Eddu. Þar var viðtal við unga foreldra sem eiga litla dóttur með krabbamein. Faðirinn heitir Haukur Daníel Hrafnsson og var bekkjarfélagi minn í Álftanesskóla og samtíða í Garðaskóla. Það var forvitnilegt að sjá jafnaldra sína hafa slíkt æðruleysi á lífið sem þau sýndu í viðtalinu. Fær mann til að velta því fyrir sér hvort maður á þetta til ef svo skelfilega vildi til að maður þyrfti að ganga í gegnum veikindi með barnið sitt. Yfirvofandi foreldrahlutverk fær mann til að hugsa um svona hluti.
1 ummæli:
Blessaður Gísli gamli bekkjarbróðir:o)
Já, það sem maður finnur ekki á netinu. Vildi taka undir með þér, virkilega þroskandi að horfa á Hauk takast á við svona þrekvirki.
Til hamingju annars með yfirvofandi föðurhlutverkið, ég bíð sjálf með það enn að fjölga mannkyninu, en "minn tími mun koma":o)
Kveðja af nesinu, Gunna.
Skrifa ummæli