Helgin...
...var rosaleg. Var reyndar rólegur á föstudag og horfði á ræmu með Eddu, Möggu og Magga. Tek umfjöllun hérna að neðan. Á laugardaginn var síðan nóg að gera. Fór í ræktina, svo að hjálpa tengdapabba með einhverja skápa. Síðan að versla og svo kíkti ég aðeins á settið. Seinnipartinn kíktum við Edda til Írisar og Halldórs og við Halldór horfðum á leikinn saman og grétum. Ömurlegt. Um kvöldið var svo árshátið knattspyrnufélagsins Duffa sem tókst frábærlega. Nánar um það hér að neðan. Sunnudagurinn fór síðan að mestu í þynnku en ég kíkti þó í fjölskylduboð í tilefni af 85 ára afmæli afa sem á reyndar afmæli í dag eins og Svenni mágur. Til hamingju með það báðir tveir.
Uppskeruhátíðin
Jóhann Sveinn var óumdeildur maður kvöldsins á uppskeruhátíðinni og hirti verðlaun sem besti leikmaðurinn, besti varnarmaðurinn, besti sturtufélaginn auk þess sem hann fékk verðlaun fyrir flest D í sumar en fyrir þá sem ekki vita voru gefin 0-4D fyrir frammistöðu í leikjum í sumar. Maggi Ella var dauðafærabani ársins annað árið í röð en margir öttu við hann kappi, þar með talinn undirritaður. Maggi Gísla var valinn síbrotamaður Duffa, Eiki var hrakfallabálkur ársins (eftir harða keppni við mig) og Gauti var besti nýliðinn. Grétar og Biggi komust í hundrað leikja klúbbinn en fyrir í honum var Gestur stjóri. Einhver fleiri verðlaun voru veitt en ég man þau ekki í svipinn.
Alexander
Tók þessa mynd á föstudaginn. Bjóst svo sem ekki við miklu enda fékk hún skelfilega dóma á sínum tíma. Hún var samt verri en ég bjóst við. Þegar maður tekur mynd um mesta herstjóra sögunnar býst maður við mynd um stríð en myndin snýst eiginlega meira um kynhneigð Alexanders og undarlegar ákvarðanir hans í einkamálum sínum. Myndina vantar tilfinnanlega alla orku og heldur sjaldan dampi. Ef þið ætlið að sjá hana er ráðlegt að fá hana bara lánaða á netinu eða eitthvað. Það er alla vega ekki þess virði að borga leigu fyrir hana.
Prison Break
Shitturinn titturinn hvað ég er orðinn háður þessum þáttum. Átta þættir búnir og þeir verða sífellt meira spennandi. Fylgist með þegar og ef þeir koma hingað.
Prófkjörið
Hef markvisst verið að kynna mér frambjóðendurna í prófkjörinu hjá Sjálfstæðismönnum í Reykjavík. Verð ég nú að segja að ekki er um auðugan garð að gresja. Ég er nú reyndar búinn að finna nokkra sem ég gæti hugsað mér að setja á listann en það eru margir sem ég er búinn að útiloka. Það verður erfitt að finna níu manns til að setja á listann en ætli síðustu þrjú til fjögur sætin verði ekki bara uppfyllingarefni.
Vinnan
Ég er að fíla mig mjög vel í vinnunni. Svæfingar og gjörgæsla eiga áhuga minn allan þessa dagana. Ég ætla að láta aðra um að dæma frammistöðuna en ég skammast mín alla vega ekki eftir hverja einustu vakt fyrir hana. Manni er líka treyst fyrir sífellt meiru þannig að maður tekur sennilega einhverjum framförum. Sjáum hvort mér tekst að halda vinnunni út ráðninguna. Þá er ég alla vega skárri en ekki neitt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli