8. okt. 2005

Súsanna segir loks eitthvað af viti
Mæli með að þið lesið bakþanka Súsönnu Svavarsdóttur á baksíðu Fréttablaðsins í gær. Ég held þetta sé í fyrsta sinn sem ég er sammála henni. Ég er nú samt þeirrar skoðunar ólíkt mörgum að óbreyttir lögreglumenn eigi ekki að vera sýnilega vopnaðir skotvopnum enn sem komið er. Mér segir svo hugur að ástæðan fyrir hægri skotvopnaþróun hins almenna krimma hér á landi sé einmitt sú að lögreglan er lítt vopnuð. Sennilega á þetta eftir að breytast næstu árin en ég held að lögreglan ætti að fara hægt í sakirnar með að bera skotvopn dags daglega. Þessi íhaldsemi byggist þó algerlega á því að lögreglan búi yfir sterkri, vel vopnaðri sérsveit sem er ávallt í viðbragðsstöðu ef einhver klikkhaus ákveður að ógna lögreglumönnum eða samborgurum sínum með hættulegum vopnum. Því held ég að auknar fjárveitingar til sérsveitarinnar séu hið besta mál.

Pólland-Ísland
Ég er ánægður með hvað Íslendingar stóðu uppi í hárinu á Pólverjum þrátt fyrir að þeir hafi tapað að lokum. Það er gott að vita til þess að menn hafi kjark til að sækja á útivelli gegn sterkari andstæðingum. Menn ná aldrei framúrskarandi árangri nema þeir standi frammi fyrir erfiðum verkefnum af reisn, leggi sig alla fram og reyni að sigrast á líkunum. Þannig getur maður alltaf sagt að maður hafi gert sitt besta og aðeins betur en það ef það er það sem þarf. (skelfilegur texti handboltalandsliðsins fyrir B-keppnina forðum daga). Ég er líka ánægður með hvað þessir ungu strákar eru að koma sterkir upp. Kári Árnason og Hannes Sigurðsson ásamt Gunnari Heiðari Þorvaldssyni eru líklega efnilegustu landsliðsmennirnir okkar. Kannski er vonin um sæti á HM í nánustu framtíð ekki svo fjarlæg þegar við eigum svo marga efnilega stráka. Verst er þó hve margir þeirra eru að upplagi sóknarmenn. Við eigum núna a.m.k. fjóra mjög frambærilega framherja (Eið, Heiðar, Gunnar og Hannes) auk þess sem nokkrir ungir og upprennandi hafa samið við stór lið í Evrópu sl. misseri. Við eigum líka nokkra sæmilega miðjumenn og síðan eru auðvitað ágætis varnarmenn og frábær markvörður. Þetta er bara að verða nokkuð frambærilegt. Kannski maður fari að splæsa sér í íslenska landsliðsbúninginn.
Áfram Ísland

Víkingur í djúpum
Það er ekki gaman að vera Víkingsaðdáandi þessa dagana. Þjálfaramál meistaraflokks karla í upplausn eftir að Siggi Jóns sagði upp og menn eru greinilega alvarlega að spá í Loga Ólafsson eða Magnús Gylfason. Mér finnst nú frekar skrýtið að menn ætli að ráða tvo menn sem hefur mistekist svo rosalega sl. mánuði. Magnús stóð sig reyndar vel með Eyjamenn í fyrra og Logi færði Víkingum þeirra eina Íslandsmeistaratitil í fótbolta hingað til en báðir eru þeir á niðurleið. Ég vil helst sjá Eyjólf Sverrisson eða Þorvald Örlygsson í þessu. Svo væri líka gaman að reyna við Heimi Guðjónsson en hann er reyndar nýbúinn að skrifa undir samning við FH um að gerast aðstoðarþjálfari meistaraflokks ef ég man rétt. Sjáum hvað setur.
Síðan er hálft 2. flokksliðið komið í bann. Þar af einn í næstum 9 mánuði eftir að þeir veittust að dómara eftir að síðasta leik tímabilsins lauk. 6 leikmenn fengu rautt spjald eftir að venjulegum leiktíma lauk og 1 í leiknum. Sá áttundi var síðan kominn með 6 gul á tímabilinu og fær eins leiks bann vegna þess. Skammarlegt að menn láti dómara, þó þeir séu lélegir, fara svona hrikalega í sig. Skilst reyndar á þeim sem sáu leikinn að hann hafi verið skelfilegur en það afsakar ekki að hann sé sleginn eftir leik. Vonandi læra þessir strákar að hafa stjórn á sér í framtíðinni svo þeir geti hjálpað mínum mönnum að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni að ári. Þar eigum við heima.

Heiðar og Þorgeir eiga greinilega góðar konur
Garðabæjargengið spilaði í gær Axis&Allies og stýrði Gunni og Hjölli öxulveldunum en ég, Heiðar og Þorgeir stýrðum "allies". Tvísýnt spil lengi vel en úrslitin réðust sennilega í fyrstu umferðunum þegar Þorgeir (USA) og Heiðar (UK) áttu við fáránlega fötlun á teningunum að etja. Þeir misstu nær allan flotann sinn í tveimur fyrstu umferðunum án þess að gera öxulveldunum teljandi skráveifu og það þýddi að ég stóð einn með Rússana í stríði við Japan og Þýskaland á meginlandinu. Uppbyggingin var síðan erfið og kom of seint og Hjölli náði af mér Moskvu í fimmtu umferð og þar með var spilið búið þrátt fyrir að París væri fallin í okkar hendur aftur. Þjóðverjar voru einfaldlega allt of sterkir til þess að eitthvað vit væri í að halda áfram. Gunni stýrði líka Japan af miklu öryggi og ég held að það hafi verið viturlegt af honum að rjúfa friðhelgi Rússlands eins snemma og hann gerði. Rússar hafa einfaldlega ekki bolmagn í að berjast á tveimur vígstöðvum í jafnvíðáttumiklu landi og þeir ráða yfir. Til þess eru fjárráðin of lítil. Ég komst reyndar í 40 framleiðslustig þegar best lét enda einbeittu Þjóðverjar sér að flotaorrustum á Atlantshafi fremur en á austurvígstöðvunum en þegar hann fékk frið á höfunum var hann einfaldlega of sterkur fyrir mig.
Frábært spil og niðurstaðan sú í ljósi fáránlegra óheppni Þorgeirs og Heiðars með teningana að þeir hljóti að eiga góðar konur.

Engin ummæli: