Heilsuátak
Ég er byrjaður í heljarinnar heilsuátaki. Það var eiginlega þrennt sem rak mig af stað. Í fyrsta lagi er ég alls ekki í nógu góðu formi, í öðru lagi hefur Edda verið ófeimin við að benda mér á björgunarhringinn minn og í þriðja lagi hefur öxlin verið í hraðri afturför sl. vikur og það varð að lokum til þess að ég dreif mig í Laugar. Keypti mér hálfs árs kort á þriðjudag og er búinn að fara á hverjum degi síðan. Stefnan er að lyfta mánudaga, miðvikudaga og föstudaga með Sverri og Kobba félögum mínum. Síðan ætla ég helst að fara tvo til þrjá aðra daga vikunnar að hlaupa til að þjálfa þolið og brenna fitu. Síðan er ég í fótbolta þrisvar í viku svo að meðaltali ætti ég að fara 7-8x í viku í einhverja hreyfingu þannig að ég ætti að vera snöggur að koma mér í form. Ég leyfi ykkur að fylgjast með hvernig gengur.
Boltinn
Mínir menn voru rétt í þessu að skora fyrsta mark leiksins gegn Sunderland og mér er nokkuð sama þó það verði það síðasta einnig. Væri fínt að ná 3 stigum á útivelli í dag. Það var hinn frábæri Wayne Rooney sem sett'ann. Hann er allur að koma til og hefur staðið sig vel í haust þrátt fyrir að vera á köflum helst til óstýrilátur.
Síðan er Chelsea undir í hálfleik gegn Bolton og Arsenal að gera jafntefli við West Brom á útivelli. Það væri ekki leiðinlegt ef það yrðu lyktir þeirra leikja. Sjáum hvað setur.
Góð heimsókn
Mér finnst rosalega gaman að heimsækja fólk en jafnvel enn meira gaman að fá vini í heimsókn til mín. Í gærkvöldi litu góðir vinir við og það var meiriháttar notaleg kvöldstund, sátum og spjölluðum langt fram yfir miðnætti. Í kvöld ætlum við skötuhjúin síðan að grilla humar á teini og kíkja svo aðeins til vina okkar í netta konnastemmingu og rólegheit. Ég hlakka heilmikið til.
Landsfundurinn
Hef því miður ekki haft almennileg tök á því að fylgjast með gangi mála þar en sá inntakið í ræðu Davíðs og fannst hann skemmtilega herskár að skilnaði. Það er greinilega heilmikil orka eftir í kallinum og ég er að mörgu leyti sammála því sem hann sagði þótt hann hafi á köflum verið fullherskár í tali. Fyrir utan þetta hef ég því miður lítið fylgst með og ætla því ekkert að vera að gaspra hér út í loftið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli