Jæja!
Ég hef tekið þá afdrifaríku ákvörðun að þið hinir vitleysingarnir (þið eruð hér er það ekki?) getið ekki lifað án þess að vita af skoðunum mínum á mönnum og málefnum. Undanfarnar vikur hafa líka verið svo lygilegar í þjóðmálaumræðunni að það nær ekki nokkurri átt og þið hafið auðvitað velt upp þeirri augljósu spurningu hvað Ljós-Gíslanum finnst um málið.
Baugsmálið
Ég veit ekki hvar ég á eiginlega að byrja. Ég veit ekki einu sinni hvort ég á að byrja en almannaheill er í húfi svo það er kannski eins gott að láta flakka.
1.
Hvers vegna láta Baugsmenn svona ófriðlega í fjölmiðlum þrátt fyrir að vera vissir um eigið sakleysi. Gæti verið að þeir telji sig þurfa að þyrla ryki í augu almennings til að koma í veg fyrir að hann kynni sér almennilega einstaka þætti málsins og kæmist þannig að þeirri augljósu niðurstöðu að þeir séu í raun og veru ótýndir glæpamenn. Ég er sannfærður að Landsímadrengurinn mun verða þjófnaðarlegur smárindill við hliðina á þessum lortum.
2.
Hvaða heilvita maður sendir Jónínu Ben. viðkvæman tölvupóst. Ég mundi ekki einu sinni þora að senda henni fingurkoss af ótta við að Edda mundi lesa um það í Séð og Heyrt (en mestmegnis logið). Það er miklu betra að segja henni það bara augliti til auglitis því þá getur maður verið viss um að hún verður búin að gleyma því þegar rennur af henni (ef það gerist þá einhvern tíma).
3.
Þeir sem ríða brim alnetsins á hina merku síðu www.andriki.is hafa vafalaust lesið nýlega úttekt þeirra á því "andrúmslofti" sem vinstri menn telja að kærur J.G. Söllenberger (héðan í frá kallaður Sölli) hafi sprottið fram í. Í ljós kemur að hæst gullu gagnrýnisraddir á Baug í þeim stallsystkinum Ingibjörgu Sólbrúnu og Össuri Skarp á Alþingi um þær mundir sem kærurnar komu fram. Nú spyr ég mig: Væri ekki nær að gagnrýna þau fyrir að hvetja Sölla ekki til að kæra fremur en að gagnrýna Moggann fyrir aðstoð sýna við að koma kærunum á framfæri. Ekki það að ég vilji verja Styrmi greyið sem ég held að ætti að sjá sóma sinn í að víkja úr ritstjórn Moggans. Ef ekki fyrir afskipti sín af málinu í fæðingu þá fyrir fáránleg greinaskrif sín á undanförnum dögum. Maðurinn hefur misst allan trúverðugleika sem hlutlaus ritstjóri og á meðan hann situr í ritsjórn er ekki hægt að líta á Mbl. sem annað en opinbert málgagn uppkominna stuttbuxnadrengja.
Davíð laxtur
Mestu stórtíðindin hljóta nú samt að vera yfirvofandi brotthvarf Dabba kóngs úr brúnni hjá Sjálfstæðisflokknum. Það er náttúrlega sjónarsviptir af þeim gamla en persónulega fannst mér kominn tími á þetta. Hann er einkabarn sinnar eigin byltingar og hún hefur eins og byltinga er von og vísa gert heiðarlega tilraun til að leggja sér Dabba til munns. Hann var reyndar eitthvað tormeltur og hefur tekist að rymja nokkra smellna one-linera úr koki hinnar digru einkavæðingarbyltingar en nú er komið að því að honum verði kyngt niður í maga hins pólítíska gímalds og setjist að í Virkinu við Akraborgarbryggju. Einhverjum búkhljóðum held ég að við megum búast við og ekki kæmi mér á óvart þó byltingin fengi alvarlegar meltingartruflanir eftir brotthvarf svo mikils leiðtoga.
Ég vil persónulega þakka Davíð fyrir að hrinda í framkvæmd mörgum af þeim þjóðþrifamálum sem mörg okkar, er teljumst hægra megin á hrygg pólítíkurinnar, dreymdi um fyrir nokkrum árum en á einu sviði mér hugleiknu hefur honum ekki tekist að hrinda af stað bráðnauðsynlegri einkavæðingarbylgju og það er í heilbrigðisgeiranum. Kannski tekst Geiranum betur upp í þeim efnum. Davíð hefur samt staðið sig vel og ég held að hann eigi líka eftir að standa sig vel í Seðlabankanum. Ég meina Steingrímur Hermannsson kláraði þetta for kræing ád lád!!!! Ég var reyndar alveg steinhissa að Guttormur Húsdýragarðsnaut skildi ekki erfa stöðuna hans en hann var víst full svona þver skilst mér á kunnugum.
Ég geri ráð fyrir því að Davíð muni einbeita sér að því að veiða lax á kostnað okkar skattborgarana undir því yfirskini að það sé mikilvægt fyrir gengisþróun og vaxtastýringu. Verði honum að góðu. Vona að hann veiði vel.
Tökum nú upp léttara hjal!!
Boltinn hefur alltaf verið snar þáttur í skrifum mínum hér og mun það ekki breytast. Ég er hundóánægður með mína menn þessa dagana en það voru klár batamerki á leik liðsins um helgina. Rúðan er líka komin í gang og finngálknið unga Wayne Rooney er líka að standa sig. Park er líka farinn að finna sig eins og ég bjóst reyndar við og það var meiriháttar að sjá hvað hann var ógnandi um helgina. Áfram MUFC.!!!
Drykkja, matur, hestar og bíó
Helgin var góð. Á föstudag átti ég góða stund í Hólmgarðinum með gömlum félögum úr menntó. Serbinn, Króatinn og Kobbi fruma kíktu við og nokkrum bjórum var rennt niður. Notaleg kvöldstund og ég fór lúinn að sofa.
Á laugardag fórum við Edda í bæinn eftir að hafa sofið út. Um kvöldið fór ég svo með Eddu á Hótel Óðinsvé. Við fengum ljúffenga máltíð sem markaði tímamót. Við vorum bæði í fyrsta skipti á ævinni að panta okkur sjávarfang á veitingastað sem bíður upp á annað. Ég fékk mér dýrindis skötusel með humarhala og einhverju hrísgrjónadrasli. Mjög gott. Edda fékk sér pönnusteikta lúðu sem var ágæt en ekki eins góð og hjá mömmu. Í það heila notaleg kvöldstund sem endaði hjá Svenna mág og Kötu svil í nettu spjalli.
Á sunnudaginn var svo hestaleiðangur. Þurfti að sækja hest í aðgerð fyrir Nonna bróður og fara svo með Sindra hennar Eddu og annan hest frá pabba í tamningu. Okkur feðgunum varð ekki skotaskuld úr þessu og ég var kominn heim nógu tímanlega til að sjá GOAL! í bíó kl. 20 í Kringlubíó. Ágætis fílgúd mynd en ég held að Óskar frændi muni ekki slefa yfir þessari. Góð mynd fyrir fótboltaáhugamenn.
Læt þetta duga í bili, nógu er kombakkið orðið kröftugt. Reyni að vera duglegri næstu daga og vikur og mánuði og ár.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli