11. okt. 2005

Nokkrar góðar ræmur!!
Ég er búinn að vera duglegur að glápa á skjáinn um helgina. Eins og sjá má í fyrri færslu var föstudaguskvöldið lagt undir spil en á laugardaginn tókum við skötuhjúin því rólega og horfðum (lesist: ég horfði á meðan Edda svaf) á tvær misgóðar myndir á RÚV. Fyrst horfði ég á The Human Stain með Anthony Hopkins, Nicole Kidman, Gary Sinise, Ed Harris og fleirum. Sá þessa mynd aldrei í bíó eins og ég ætlaði mér og var sannast sagna búinn að steingleyma henni en stundum borgar sig að horfa á RÚV. Í stuttu máli fannst mér hún hreint afbragð. Frábær leikur í mynd sem tekur á mikilvægum málefnum dagsins í dag og raunar sl. 50 ára. Hopkins fer á kostum og hin eru mjög góð líka. Mæli með henni. Á eftir henni kom svo ótrúlega skelfileg mynd með Seann William Scott sem heitir Stark Raving Mad. Þvílík endaleysa en það má þó segja að plottið var ágætt. Mér hefur alltaf þótt He Said/She Said formið vont en það er þegar persónur í myndinni tala við myndavélina og þar með áhorfandann á meðan bakrunnurinn stendur kyrr. Afspyrnu slök leið til að koma söguþræðinum og boðskapnum á framfæri. Lou Diamond Phillips lék líka í henni en það er nánast ávísun á slaka mynd. Ég hef nú svarið þess dýran eið að sjá aldrei mynd þar sem hann leikur stórt hlutverk aftur.
Á sunnudagskvöldið fór ég síðan á ræmuleigu og tók tvær ágætar myndir. Fyrst sá ég Beyond the Sea með Kevin Spacey og fleirum en hún fjallar um ævi dægurlagasöngvarans og frekjudallsins Bobby Darin. Spacey fer á kostum í hlutverki þessa snillings sem gat sungið eins og engill þrátt fyrir alvarlegan hjartasjúkdóm. Mæli með henni fyrir aðdáendur góðrar tónlistar, sérstaklega ef þið hafið gaman af djasstónlist. Hin myndin er Something's Gotta Give með Jack Nicholson og Diane Keaton ásamt fleirum. Þetta er ágætis feelgood mynd sem þau tvö halda uppi með hreint ágætum leik. Ekki kannski beinlínis snilldarverk en alveg þess virði að taka sem gamla ef ekkert kemur upp í hugann.

Boltinn
Unglingalandsliðið tók Svía í kennslustund áðan en ég efast um að það sé fyrirboði um gott gengi aðallandsliðsins gegn frændum okkar á morgunn. Ég er svolítið hræddur um að þeir verði gernaðir en maður veit auðvitað aldrei. Það verður gaman að sjá hvernig vængbrotið lið okkar stendur sig en ég hef trú á að þeir muni tapa stórt. Mín spá er 5-1 fyrir Svía. Sjáum til.

Prófkjörið
Nú er framboðsfrestur útrunninn fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og ég var svolítið hissa að sjá ekki fleiri frambærilega frambjóðendur í þessum slag. Það verður nú frekar auðvelt að raða á þennan lista held ég en við skulum sjá til hvernig menn standa sig áður en ég legg seðilinn í kassann. Kannski eiga einhverjir lítt þekktir sterka innkomu í umræðuna.

Sameiningarfloppið
Ég verð að taka undir með þeim sem gagnrýna þetta sameiningarrugl allt saman. Það sér auðvitað hver maður í hendi sér að það getur skilað meiriháttar hagræðingu fyrir sveitarfélög að sameinast í stærri einingar en sú hagræðing er löngu horfin út í veður og vind með endalausri fjársóun Félagsmálaráðuneytisins við að halda síendurteknar kosningar í hreppum sem margoft hafa sýnt nær einróma andstöðu gegn sameiningu. Mér finnst mál að linni og fólk fái að hafa sjálft að því frumkvæði að sameinast. Það er kannski rétt að hafa sið Englendinga og setja lög sem skikka íbúa hreppa sem ekki vilja sameinast til að gifta börn sín börnum úr öðrum nálægum hreppum sem hafa neitað að sameinast og búa svo í þeim þriðja. Eftir u.þ.b. 80 ár verða þá allir meira og minna ættaðir frá öllum þessum hreppum og geta þá kannski sætt sig við sameiningu. Svo væri hægt að veita t.d. bæjarstjóranum á Akureyri "prima nocte" í öllum litlu hreppunum. Það mundi kannski verða til þess að menn mundu sameinast um það á Eyjafjarðarsvæðinu að koma honum frá völdum og þá er samvinnan komin í gang og hægt að notfæra sér meðbyrinn til að sameina allt heila klabbið. Hvað segið þið um þetta?

Engin ummæli: