Salka Valka
Fór í gær með Eddu, Möggu Pálu og tengdamömmu á Sölku Völku í Borgarleikhúsið. Þetta var bara nokkuð skemmtilegt. Almennt fannst mér uppsetningin skemmtileg, sviðið opið og lýsingin hjálpaði mikið til við að marka skil í tíma. Mér finnst hins vegar hljómburðurinn ótrúlega slakur og maður sá að gestir áttu oft í vandræðum með að greina orðaskil, sérstaklega þegar margir voru að tala.
Hvað leikarana varðar þá voru nokkrir sem voru góðir. Ilmur átti frábæra frammistöðu sem Salka og er svo sannarlega að stimpla sig inn sem ein mest spennandi leikkonan hérlendis að mínu mati. Sveinn Geirsson var góður sem Arnaldur og Halldóra Geirharðsdóttir var ágæt sem móðir Sölku en mér fannst Ellert A. Ingimundarson eiginlega bestur en hann lék Steinþór. Laddi fór einnig á kostum í nokkrum hlutverkum og var sérlega góður sem Jóakim, einn af kærustum móður Sölku.
Annars mæli ég eindregið með því að þið skellið ykkur að sjá stykkið, það er klárlega þess virði.
Boltinn
Mínir menn hér heima búnir að ráða Magnús Gylfason sem þjálfara. Ég veit ekki hvort ég er sáttur við það en maður verður víst að sætta sig við hann næstu 2 árin miðað við fréttirnar því samningurinn er óuppsegjanlegur af beggja hálfu í þessi tvö ár. Hann er hins vegar harður á því að Viktor Bjarki og Grétar Sigfinnur komi heim eftir að hafa verið í láni hjá Fylki og Val svo það er í það minnsta jákvætt. Sjáum til hvað hann gerir karlinn.
Kranabyltan
Ég er þessa vikuna á Gjörgæslunni og kranabyltan fræga blasir við okkur ofan af 6. hæð. Það var nú enginn smáhvellur þegar hann hlunkaðist niður og maður hélt bara að eitthvað hefði hrunið í gólfið uppi á deild í fyrstu. En það voru einhverjir þarna sem höfðu séð það sem gerðist svo maður var fljótur að átta sig. Í dag eru þeir búnir að vera að rembast eitthvað við að lyfta krananum og þegar ég fór heim voru þeir að búa sig undir að rétta kranabílinn við. Fyrr í dag færðu þeir kranaarminn, sem verið var að lyfta þegar slysið varð, í burtu í nokkrum pörtum og virtist það ganga vel. Líklega verður allt búið í fyrramálið þegar ég kem í vinnuna.
Sheringham er snillingur
Sá þessa frábæru frétt á www.tribalfootball.com. Hann kann sko að koma fyrir sig orði þó hann sé orðinn gamall og hrumur.
Andríki
Góð grein á Andríki í dag um ökuleyfi atvinnubílstjóra. Kíkið þangað.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli