17. okt. 2005

Fiskur er hollur og góður
Á þessu staglaðist mamma alla mína æsku. Ég mótmælti því svo sem ekki að hann væri hollur enda hafði ég ekki mikið vit á því. En góður var hann sko ekki. Ég fussaði og sveiaði í hvert skipti sem fiskur var á boðstólnum. Mamma þreyttist hins vegar aldrei á því að hafa fisk svo ég fékk hann a.m.k. einu sinni í viku allan minn uppvöxt. Smátt og smátt lærði ég að meta fiskinn að verðleikum og eftir að ég flutti að heiman hef ég saknað þess sífellt meira að fá ekki fisk reglulega. Nú er svo komið að ég elska humar og skötusel og mér finnst steiktur fiskur ennþá alveg rosalega góður með soðnum kartöflum og kokkteilsósu. Ég er farinn að panta mér fisk á veitingastöðum en slíkt hefði ég talið ávísun á geðveiki fyrir nokkrum árum.
Nú síðustu dagana hef ég verið að velta fyrir mér framtíð Reykjavíkur og hvernig væri hægt að tryggja framtíð hennar. Þá mundi ég eftir orðum mömmu gömlu og komst að þeirri niðurstöðu að Reykjavík þyrfti bæði hollan og góðan fisk!!!! Og viti menn! Jú!! Gísli Marteinn er fiskur. Þess vegna held ég að hann sé framtíðarkostur Reykvíkinga.
En að öllu rugli slepptu hef ég ákveðið að styðja hann í prófkjörinu. Það þarf einfaldlega unga og ferska vinda inn í pólítíkina. Gísli er eini raunhæfi kosturinn eins og er. Áfram nafni.

Vinnan
Ég er farinn að finna mig vel í vinnunni finnst mér. Ég hlakka til að fara í vinnuna á morgnana og mér finnst gaman á vöktunum. Kannski er ég bara búinn að finna mína hillu eða kannski fæ ég leið á þessu eftir nokkra mánuði. Alla vega er ég alsæll núna og vona að svo verði áfram.

Afmælisbörn
Í gær áttu afmæli tveir snillingar. Sigrún mágkona mín, eiginkona Jóns Braga bróður, varð 25 í 13da skipti og Sveinn Fannar Sveinsson bróðursonur Eddu varð 7 ára. Til hamingju með daginn bæði.

Engin ummæli: