Prófkjörið
Ég er svolítið hissa á einu. Þrátt fyrir að vera skráður í Sjálfstæðisflokkinn hef ég ekki fengið eitt einasta símtal frá frambjóðendunum. Kannski halda allir að ég sé of þver til að mér verði snúið og kannski hafa þeir nokkuð til síns máls. Ég er tiltölulega þver eins og fólk sem þekkir mig veit en það er nú kannski eitthvað sem framtíðarpólítíkusar verða að geta gert. Sannfært þá sem eru ósammála þeim. Ég frétti til dæmis í dag að ég er með fýlukall fyrir framan nafnið mitt í skránum hjá Vilhjálmi. Ekki veit ég hvernig þeir fengu það út enda hefur enginn þeirra talað við mig. Kannski eru framboðin með lið í að fletta nafni frambjóðandans upp á Google á hverjum degi til að fylgjast með andanum í þjóðfélaginu. Hver veit? Þó ég hafi ekki trú á að Vilhjálmur leiði hægrimenn til sigurs var ég nú að spá í að hafa hann ofarlega á mínum lista en nú er ég ekki svo viss. Hvurslags eiginlega stjórnmálamaður gefst bara upp? Ég bara spyr.
Annars hef ég haldið áfram að kynna mér frambjóðendurna og ég er kominn á þá skoðun að loksins loksins er kominn stór hópur af frambærilegum konum í framboð fyrir flokkinn. Loksins eru komnar konur í framboð sem eru raunverulegir valkostir. Ég held bara að það endi með því að ég setji þær allar á listann hjá mér og sumar þeirra mjög ofarlega. Ekki nóg með að þær séu með ágætis áherslur í málefnum heldur koma þær þeim frá sér með sóma og hafa persónutöfra í ríkum mæli. Áfram stelpur!! ;)
Stund sannleikans
Var á vaktinni í nótt og því átti ég vaktafrí í dag. Við pabbi nýttum daginn í hestastúss. Sindri hennar Eddu er loksins kominn á tamningaraldur og er búinn að vera hjá tamningamanni í mánuð. Það var orðið ágætt í bili enda Sindri ennþá hálfgerður unglingur. Hann er hins vegar að lofa rosalega góðu og ég var í það minnsta meiriháttar ánægður með framfarirnar. Nú fær hann frí eitthvað fram á vorið og þá kannski tek ég aðeins til við hann sjálfur og kenni honum praktíska hluti eins og að teymast og fleira. Hann lofar alla vega mjög góðu og mér skilst á tamningamanninum að hann verði góður konuhestur sem eru nákvæmlega það sem hann átti að verða.
Fótboltinn
Nú er ég alveg að gefast upp á mínum mönnum. Þeir voru að tapa í Meistaradeildinni fyrir Lille og nú er útlitið svart. Kannski er bara kominn tími á að láta Ferguson fara og selja Keane. Ég er nú ekki sammála Keane samt með Richardson sem hefur verið að standa sig ágætlega. En ég er fullkomlega sammála honum með Rio og Fletcher. Þeir hafa bara ekki verið að sýna neitt með liðinu í vetur og ég var hissa að sjá Rio í liðinu í kvöld. Ég held samt að það sé hægt að leysa vandamálið með einum eða tveimur góðum miðjumönnum. Sjáum til hvernig fer en ég held að ef ástandið lagast ekki á næstu vikum fái einhverjir hausar að fjúka um áramótin.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli